![]() |
| 3. tbl. 2004 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Hagvöxtur og heilbrigðisútgjöld
Hlutfall heilbrigðisútgjalda af landsframleiðslu fór vaxandi á uppsveifluárunum 1998 til 2002, úr tæpum 7% í tæp 8,5%. Ef heilbrigðisútgjöld hefðu aukist í svipuðum takti og landsfram-leiðslan hefði það að öðru óbreyttu þýtt liðlega 32 milljarða króna lægri útgjöld til heilbrigðismála á tímabilinu en raunin varð.
Fyrirtækin best til að efla traust á atvinnulífinu
Þrír af hverjum fjórum Svíum telja að eigendur og stjórnendur fyrirtækja séu best til þess fallnir að efla traust almennings á atvinnulífinu. Fimmt-ungur nefnir stjórnmálamenn. Svíar telja einnig að bestu hugmyndirnar um leiðir til að efla hagvöxt sé að finna hjá atvinnulífinu.
|
|
|
Félagafrelsi starfsmanna og dómsvald Félagsdóms
Nýlegur dómur Hæstaréttar vekur upp aðkallandi spurningar um félaga-frelsi starfsmanna og ekki síður um þörf á endurskoðun dómsvalds Félagsdóms, en dómar hans eru endanlegir, segir Hrafnhildur Stefáns-dóttir, yfirlögfræðingur SA. Hún segir Hæstarétt af þeirri ástæðu hafa lagt dóm Félagsdóms til grundvallar bótaskyldu starfsmanna, en þar var því hafnað að félagafrelsisákvæði stjórnarskrár hafi áhrif á túlkun forgangs-réttarákvæða kjarasamninga. Niðurstaðan er því sú að þeim er jafnað til aðildarskyldu að félagi.
|
|
|
Kaupmáttur jókst um 2,5%
Á tímabilinu frá 4. ársfjórðungi 2002 til 4. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,1%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,6%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 2,5%. Laun kvenna hækkuðu um 6,1% en karla um 4,7%.
Kjaraviðræður hjá sáttasemjara
Verslunarmenn hafa vísað kjaraviðræðum sínum við SA til ríkissátta-semjara, með vísan í að þær hafi tafist. Fundað var í dag með verslunar-mönnum og gera má ráð fyrir að hafnar verði viðræður við fleiri hópa á næstu dögum. Forgangsmál SA að sinni er hins vegar að ljúka samningum við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið, þar sem lokið hefur verið gerð allra sérsamninga en nokkuð ber á milli um almennar launahækkanir, lífeyrismál o.fl. |
|
|
3,7% atvinnuleysi í janúar
Í janúar sl. voru skráðir 111.880 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 3,7% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysið jókst úr 3,1% frá desember, en var ívið minna en í janúar 2003, þegar það var 3,8%.
Einelti á vinnustað
Regnbogabörn hafa hafið samstarf við Brynju Bragadóttur, doktor í heilsusálfræði. Hún heimsækir m.a. vinnustaði og heldur fyrirlestra fyrir starfsfólk. Markmiðin eru m.a. að upplýsa fólk um eðli og einkenni eineltis, og hjálpa fólki að taka á vandanum.
|
|
|
Aðalfundur SA 4. maí
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2004 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 4. maí. Dagskrá fundarins verður kynnt síðar. |
|
|
Stækkun EES: um 1% myndi hyggja á flutning
Eitt prósent íbúa væntanlegra aðildarríkja ESB og EES myndu hyggja á flutning til einhvers af núverandi aðildarríkjum á næstu fimm árum eftir stækkun, ef þeir hefðu frjálsan aðgang að vinnumarkaði ríkjanna, skv. könnun ESB. Reynslan segir að það yrðu færri í raun. ESB segir áhyggjur af miklum fólksflutningum vegna stækkunarinnar óþarfar. Danmörk: hálf milljón vill ekki vinna
Einungis fjórðungur Dana á aldrinum 30-66 ára sem ekki eru í vinnu vilja fá vinnu. Samkvæmt könnun dönsku hagstofunnar eru 656.000 Danir á aldrinum 30-66 ára ekki í vinnu. Af þeim vilja hins vegar einungis 147.000 fá vinnu, eða 22%. Áhuginn á að fá vinnu fer lækkandi með hækkandi aldri.
European Business Summit 11.-12. mars
Dagana 11.-12. mars standa ESB, UNICE o.fl. fyrir European Business Summit í Brussel, þar sem forystumenn úr atvinnulífi og stjórnmálum munu fjalla um rannsóknir og nýsköpun sem leið til bættrar samkeppnishæfni álfunnar. Meðal ræðumanna verða Romano Prodi og Dr. Jürgen Strube. Aðildarfyrirtæki SA fá 50% afslátt á þátttökugjaldi.
|
|
|
Lágmarkskröfur með lágmarkstilkostnaði
Mikið fjölmenni var á opnum fundi SA um vernd skipa, farms og farþega, þar sem fjallað var um væntanlega löggjöf um vernd gegn hryðju-verkum o.fl., og áhrif hennar, eftirlit, kostnað, umsýslu o.s.frv. Almenn samstaða var um að uppfylla yrði alþjóðlegar lágmarkskröfur, en jafnframt um að halda yrði kostnaði og umstangi vegna þessa í lágmarki.
Löng leið erlends starfsfólks
Á málþingi Alþjóðahúss, SA o.fl. um mannauð innflytjenda fjallaði Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, um mikilvægi jákvæðrar umræðu um málefni innflytjenda, langa leið starfsfólks frá löndum utan EES til Íslands, efnahagslegt mikilvægi sæmilega greiðs aðgangs að íslenskum vinnumarkaði o.fl. Ferlið við öflun dvalar- og atvinnuleyfa hér tekur oft um þrjá mánuði.
Skoðun á þingmáli?
SA berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar og eru upplýsingar um umsagnarferlið birtar á vef samtakanna, þ.e. hvenær mál barst samtökunum, hver sé ábyrgðar-maður málsins og hvenær það sé afgreitt. Félagsmenn SA sem vilja hafa áhrif á gerð umsagnar eru hvattir til að hafa samband við ábyrgðarmann. |
|
|
Verðmætamat í raforkuflutningskerfinu byggist á arðsemi
Í bókun fulltrúa SA í nefnd iðnaðarráðherra um fyrirkomulag flutnings raforku er áhersla lögð á að mat á verðmæti eigna í flutningskerfinu byggist á arðsemi en ekki stofnkostnaði. Þá er meðal annars tekið fram að opinber stuðningur við tiltekna raforkunotendur eigi að vera eins gegnsær og unnt sé.
Boðin út verkefni fyrir 54 milljarða
Útboðsþing Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda var haldið á dögunum. Þar var kynnt yfirlit yfir öll helstu útboð verklegra framkvæmda á vegum ríkisins, Reykjavíkurborgar og Kópavogs á þessu ári. Ætla má að alls verði boðin út verkefni fyrir tæpa 54 milljarða á vegum þessara aðila á árinu.
|
|
|
Styrkir vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmennt-unar í atvinnulífinu, í flokkunum 1) ný tækifæri til náms, með sérstakri áherslu á nám í verk- og tæknigreinum, og 2) ferðaþjónusta og útivist. Umsóknarfrestur er til 12. mars og rétt til að sækja um styrki eiga m.a. fyrirtæki og samtök atvinnurekenda og launafólks.
Auðvelda leit erlendra samstarfsaðila í starfsmenntum
Landsskrifstofa Leonardó og Mennt eru að undirbúa uppsetningu gagna-banka um íslenska aðila sem hafa áhuga á evrópsku samstarfi undir merkjum Leonardó starfsmenntaáætlunar ESB. Tilgangurinn er að flýta fyrir leit íslenskra sem erlendra aðila að samstarfsaðilum.
|
|
|
Þjónustugjöldin lægst hér á landi
Í nýrri skýrslu GJ Fjármálaráðgjafar fyrir Samtök banka og verðbréfafyrirtækja er borinn saman kostnaður almennings af þjónustu banka og spari-sjóða í fjórum löndum, Danmörku, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Árleg gjöld meðalneytanda á Íslandi af þjónustu banka og sparisjóða eru samkvæmt könnuninni 3.172 kr., en 13.205 kr. að jafnaði í hinum löndunum.
Fimm ráð til að varast búðarþjófnaði
Á vef SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu er að finna fimm heilræði til að varast rán og þjófnaði, eða lágmarka áhrif þeirra. Fram kemur að mikilvægast sé að fara rækilega í gegnum þær hættur sem kunna að steðja að og haga skipulagi starfseminar í samræði við það.
Ölgerðin fékk viðurkenningu ICEPRO
ICEPRO, samstarf um rafræn viðskipti, veitir í ár Ölgerð Egils Skallagríms-sonar hf. ICEPRO-verðaunin fyrir góðan árangur og markvissa stefnu á sviði rafrænna viðskipta.
Upplýsingar um persónuhlífar
Vinnueftirlitið hefur sett upp upplýsingasíðu um persónuhlífar, svo sem öryggishjálma, heyrnarhlífar, öryggisskó, hlífðarhanska, öndunarfærahlífar o.fl. Fjallað er um lög, reglur, staðla, notkun o.fl. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins. |
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum |