1. tbl. 2004
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Lítil hreyfing á vinnumarkaði
Yfir 70% fyrirtækja hyggjast halda óbreyttum fjölda starfsfólks næstu 3-4 mánuði, samkvæmt könnun SA. Álíka mörg fyrirtæki hyggjast fjölga starfsfólki og fækka, eða um 15%, en stærri fyrirtækin hyggjast öðrum fremur fækka starfs-fólki. Fjölgun virðist framundan hjá fjármála-fyrirtækjum og hjá rafverktökum, en fækkun í ferðaþjónustu, verslun og þjónustu. Þessar niðurstöður koma nokkuð á óvart miðað við hagvaxtarspár, en ekki miðað við atvinnuleysistölur.
Mikil fjölgun opinberra starfsmanna
Á tímabilinu 1998-2002 fjölgaði starfandi fólki í einkageiranum um 8%, en á sama tíma fjölgaði opinberum starfsmönnum um 17%. Fjölgunin nam 30% í opinberri stjórnsýslu og 40% í fræðslustarfsemi. Í atvinnulífinu hefur starfandi fólki fækkað í framleiðslugreinum en fjölgað í þjónustugreinum.
Íslensk laun - hvergi hærra hlutfall verðmætasköpunar
Nærri 70% af verðmætasköpuninni í landinu fara í launagreiðslur, sem er bæði sögulegt hámark og mun hærra hlutfall en í nágrannalöndunum. ESB-meðaltalið er 57%. Meginskýringu þessarar þróunar er að leita í þeirri miklu almennu kaup-máttaraukningu sem varð umfram framleiðni-aukningu í þensluástandinu í lok síðasta áratugar.
Árangur atvinnulífsins
Samkeppni hefur almennt stóraukist í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum samfara auknu frelsi, þar sem „klasarnir“ eru nú margir sem hafa afl til að láta til sín taka, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann segir atvinnulífið hafa skilað stórkostlegum árangri til samfélagsins undanfarin ár og bendir m.a. á þriðjungs hækkun kaupmáttar og margföldun á fjölda eignafólks. Ávallt sé sjálfsagt að skoða regluumhverfi atvinnulífsins, en aðalatriðið sé að íslenskt atvinnulíf fái að búa við sambærilegar reglur og gildi í helstu samkeppnislöndum.
Verslunarmenn leggja fram kröfugerð
LÍV og VR hafa kynnt SA kröfugerð verslunar-manna við gerð nýs kjarasamnings. Í kröfu-gerðinni kemur m.a. fram að félögin leggja áherslu á að tryggja áfram þann stöðugleika sem skapast hefur og að verðbólgu verði haldið í skefjum. Áhersla verði lögð á hækkun lægstu launa, en launakröfur verða nánar skilgreindar nú í janúar.
Rafiðnaðarmenn kynna kröfugerð
RSÍ hefur kynnt kröfugerð sína fyrir komandi kjarasamninga. Í henni fara þeir m.a. fram á að lágmarkslaun verði kr. 170.000 fyrir rafiðnaðarmann með sveinspróf, en kr. 215.000 fyrir sveina með þriggja ára starfsreynslu. Launahækkun á ári skili 2-3% kaupmáttaraukningu.
Samiðn leggur fram kröfugerð sína
Samiðn, samband iðnfélaga, hefur kynnt SA kröfugerð sína fyrir komandi kjarasamninga. Þar er gert ráð fyrir að almennar launabreytingar skili 3% kaupmáttaraukningu á ári og að samið verði til tveggja ára.
Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja
Framkvæmdastjórn ESB hefur haft frumkvæði að umræðu um eðli og inntak félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja, sem hún hefur sjálf skilgreint sem þær skuldbindingar sem fyrirtæki kjósa að taka á sig gagnvart starfsfólki, umhverfi og viðskiptavinum umfram það sem kveður á um í kjarasamningum, lögum eða reglugerðum.
Þörf áætlana um góða virkni innri markaðarins
Ráðgjafarnefnd EFTA hvetur EFTA/EES-ríkin til að gera áætlanir um góða virkni hins sameiginlega innri markaðar. Í áliti nefndarinnar er m.a. fjallað um mikilvægi kynningarátaks um EES meðal núverandi og væntanlegra aðildarríkja ESB, um lágmörkun reglubyrði, gagnkvæmar viðurkenningar o.fl.
Kjarasamningar ættu að nást án átaka
Það kæmi á óvart ef menn sæju ástæðu til þess að efna til kjaradeilna nú, þegar höfð er í huga hin mikla aukning kaupmáttar undanfarin ár, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í áramótasamtali við Morgunblaðið. Hann segir mestu skipta að andrúms-loftið er jákvætt og að almenn ánægja ríkir með árangur af yfirstandandi samningum, sem hafa skilað launafólki meiri raunhækkun launa en dæmi eru um áður.

 
Lagi sig að leikreglum á almennum vinnumarkaði
Starfsgreinasambandið hefur kynnt SA nýja kröfugerð í lífeyrismálum, þar sem farið er fram á sambærileg lífeyrisréttindi og ríkisstarfsmenn búa við. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, eðlilegt að lífeyrisréttindi verði samræmd, en sú samræming verði að vera þannig að opinberir launagreiðendur lagi sig að þeim leikreglum sem gildi á almennum vinnumarkaði.
Skoðun á þingmáli?
SA berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar og eru upplýsingar um umsagnarferlið birtar á vef samtakanna, þ.e. hvenær mál barst samtökunum, hver sé ábyrgðar-maður málsins og hvenær það sé afgreitt. Félagsmenn SA sem vilja hafa áhrif á gerð umsagnar eru hvattir til að hafa samband við ábyrgðarmann.
Fundur um veikindafjarvistir frestast vegna veikinda
Morgunverðarfundur Vinnueftirlitsins o.fl. um veikindafjarvistir, sem fyrirhugað var að haldinn yrði á morgun, föstudaginn 9. janúar á Grand Hótel, frestast um óákveðinn tíma vegna veikinda erlends fyrirlesara.
Morgunverðarfundur um skattamál 13. janúar
Skattadagur Deloitte, Viðskiptablaðs Morgunblaðsins og SA verður haldinn þriðjudaginn 13.janúar á Grand Hótel Reykjavík. Fjallað verður um skatta-leg atriði varðandi skuldsetta yfirtöku, Hybrid fjármögnun, kauprétt og önnur hlunnindi, um breytingar á skattalögum 2003, mörk skattasnið-göngu og skattafyrirhyggju o.fl.
Menntadagur iðnaðarins 15. janúar
Á málþingi á menntadegi iðnaðarins 15. janúar nk. verða frumbirtar niðurstöður úr könnun SI og Gallup um þörf iðnaðarins fyrir menntun. Mennta-málaráðherra ávarpar málþingið og fjallað verður um tengsl menntunar og verðmætasköpunar.

 
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Eða leiðbeinanda? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni sem veittir eru af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar 2004 og kynningarfundur verður haldinn 15. janúar.
3% atvinnuleysi í nóvember
Í nóvember voru skráðir 87.963 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.400 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins um mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysið var 2,8% í október sl., sem og í nóvember 2002.
Skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ um menntareikninga
Grunnhugmyndin um menntareikninga byggist á því að tekið er fast hlutfall af launum hvers starfsmanns sem er síðan ávaxtað í séreignasjóði með skattfríðindum þar til viðkomandi launþegi ákveður að nýta sér innistæðuna til að sækja sér menntun eða þjálfun, segir í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ.
Einkatölvupóstur: fyrirtækin setji reglur
Það er að sjálfsögðu hvers fyrirtækis að ákveða hvort eða að hvaða marki persónleg netnotkun starfsmanna er heimiluð, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlög-fræðingur SA, í samtali við tímaritið Birtu. Það er hins vegar ráðlegt að fyrirtæki setji skýrar reglur um slíka notkun.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum