2. tbl. 2004
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Fyrirtæki hyggjast draga úr fjárfestingum
Nokkur samdráttur virðist framundan í fjár-festingum fyrirtækja. 31% fyrirtækja hyggst fjárfesta minna í ár en á síðasta ári, 47% hyggjast fjárfesta álíka mikið og 22% hyggjast fjárfesta meira en í fyrra, skv. könnun SA. Áberandi  mestur samdráttur er framundan í sjávarútvegi en einungis fjármálafyrirtækin hyggjast fjárfesta meira í ár en í fyrra. 
Einkaneysla byggð á skuldasöfnun
Skuldir heimilanna hafa aukist gríðarlega á undanförnum árum og stefna í 100% af kostnaðarverði íbúðarhúsnæðis. Á sama tíma hefur markaðsverð fasteigna hækkað hraðar en kostnaðarverð, sem er vísbending um að raunverð gæti lækkað, alla vega til lengri tíma litið. Slík þróun setur aukinni einkaneyslu og þar með hagvexti þrengri skorður í náinni framtíð.
Enn af fjölgun opinberra starfsmanna
Í ýmsum nágrannaríkjum okkar setur vöxtur opinbera geirans samhliða hækkandi meðalaldri sívaxandi þrýsting á efnahagslífið sem líkja má við krísu, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA. Gústaf segir að ætla megi að Ísland verði í þessari stöðu eftir um áratug, verði engin breyting á þróuninni.
Vernd skipa, farms og farþega - fundur 10. febrúar
við höfnina„Vernd skipa, farms og farþega“ er yfirskrift morgunfundar SA þriðjudaginn 10. febrúar nk. Þar verður fjallað um væntanlega löggjöf um siglingavernd og áhrif hennar - eftirlit, kostnað, umsýslu o.fl. Málið varðar m.a. útflytjendur, skipafélög og hafnir. Um er að ræða innleiðingu alþjóðlegra skuldbindinga um ráðstafanir til að koma í veg fyrir hryðjuverk o.fl.
Aðalfundur SA 4. maí

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2004 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 4. maí. Dagskrá fundarins verður kynnt síðar.

Verslunarmenn fara fram á 4-5% hækkun launa á ári
kröfugerð VR og LÍVVerslunarmenn hafa kynnt kröfur sem snúa að launaliðnum vegna komandi kjarasamninga, en þeir höfðu áður lagt fram aðrar kröfur sínar. Verslunarmenn munu fara fram á sérstaka hækkun lægstu launa, 5% almenna launa-hækkun á ári næstu tvö árin og 4% árin 2006 og 2007.
Hálf milljón aukalega á mann
Nærri 70% af verðmætasköpuninni í landinu fara í launa-greiðslur, sem er bæði sögulegt hámark og mun hærra hlutfall en í nágrannalöndunum. ESB-meðaltalið er 57%. Í samanburði við ESB fer rúmlega hálf milljón króna aukalega í launagreiðslur á hvern vinnandi mann hérlendis ár hvert, alls 90 milljarðar króna.
Skýrslugerð um eftirlitsiðnaðinn
Næstu vikur munu SA, í samstarfi við aðildarfélög, vinna skýrslu um hinn svokallaða eftirlitsiðnað á Íslandi, þar sem m.a. verða lagðar fram tillögur að hagkvæmara fyrirkomulagi í einstökum greinum. Áhugasamir um gerð skýrslunnar eru hvattir til að hafa samband.
Guðrún Johnsen til RAND Corporation

Guðrún JohnsenGuðrún Johnsen, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnu-lífsins, hefur þekkst boð rannsóknarstofnunarinnar RAND Corporation um rannsóknarstöðu hjá höfuð-stöðvum fyrirtækisins í Santa Monica, Kaliforníu. Guðrún hóf þar störf nú í byrjun febrúar. Samtökin þakka Guðrúnu vel unnin störf og óska henni velfarnaðar í nýju starfi.

 

Stimpilgjöld og vörugjöld tímaskekkja
Í setningarræðu á skattadegi Deloitte, Mbl og SA fjallaði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. um þær jákvæðu breytingar sem orðið hafa á skattalegu umhverfi íslenskra fyrirtækja. Hann sagði verkinu þó ekki lokið, m.a. þyrfti að afnema hinn nánast séríslenska eignarskatt, stimpil-gjöld og vörugjöld, sem hlytu að teljast tímaskekkja í nútímaefnahagskerfi.
Frestun á frjálsri för launafólks frá nýjum EES-ríkjum
Stjórnvöld hafa ákveðið að fresta gildistöku reglunnar um frjálsa för gagnvart launafólki frá flestum hinna væntanlegu aðildarríkja EES. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, samtökin ekki telja þörf á frestuninni en að þau setji sig ekki upp á móti í ljósi stefnu annarra landa o.fl. Hægt sé að hugsa sér rýmri reglur gagnvart nýju aðildarríkjunum en ríkjum utan EES. 
Enginn úr einkarekstri í nefnd um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, lýsir í samtali við Viðskiptablaðið undrun sinni á því að ráðherra skipi nefnd um stefnumótun íslensks viðskipta-umhverfis án þess að aðilar í atvinnu- og viðskiptalífi eigi neina aðkomu að þeirri vinnu. Í nefndinni sé t.d. enginn sem starfi hjá einkafyrirtæki.
Endurskoða þarf starfsaðferðir Samkeppnisstofnunar
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Viðskiptablaðið að taka þurfi starfsaðferðir Samkeppnisstofnunar til endurskoðunar. Hann segir það vægt til orða tekið að vinnubrögð stofnunarinnar, áherslur starfs-manna og nálgun þeirra að viðfangsefnum stofnunarinnar hafi vakið mikla undrun.
Uppfinningar starfsmanna teljist eign vinnuveitanda
Samkvæmt frumvarpi til laga á starfsmaður rétt til uppfinningar sem hann kemur fram með. Í umsögn sinni árétta SA að þegar vinna starfs-manna í þágu vinnuveitanda leiði til uppfinningar sé það skýlaus krafa að þær uppfinningar teljist hans eign, eðlilegt sé að vinnuveitandi eigi afraksturinn af vinnu sem hann greiði fyrir.
SA mótmæla frumvarpi um vátryggingasamninga
SA og fimm aðildarfélög mótmæla harðlega frumvarpi til laga um vátryggingasamninga. Samtökin sjá ekki þörf fyrir heildarendurskoðun laganna og telja frumvarpið ekki standast grundvallarkröfur sem gera verður til slíkrar heildarendurskoðunar gildandi laga, m.a. um mat á kostnaðaráhrifum.
Skoðun á þingmáli?
SA berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar og eru upplýsingar um umsagnarferlið birtar á vef samtakanna, þ.e. hvenær mál barst samtökunum, hver sé ábyrgðar-maður málsins og hvenær það sé afgreitt. Félagsmenn SA sem vilja hafa áhrif á gerð umsagnar eru hvattir til að hafa samband við ábyrgðarmann.
Styrkir vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, í flokkunum 1) ný tækifæri til náms, með sérstakri áherslu á nám í verk- og tæknigreinum, og 2) ferðaþjónusta og útivist. Umsóknarfrestur er til 12. mars og rétt til að sækja um styrki eiga m.a. fyrirtæki og samtök atvinnurekenda og launafólks.
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Eða leiðbeinanda? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni sem veittir eru af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar.
Eðlilegt að vinnuveitendur spyrji um fjölskylduhagi
Ég tel að það sé alveg eðlilegt að vinnuveitendur spyrji umsækjendur um störf um fjölskylduhagi þeirra, rétt eins og þeir spyrja um menntun, fyrri störf, viðhorf til vinnunnar og áhugamál, segir Ari Edwald, framkvæmda-stjóri SA, í samtali við Morgunblaðið.
Eftirspurn eftir iðn- og raungreinamenntuðum

Á næstu þremur árum þurfa fyrirtæki innan SI að bæta við sig 771 nýjum starfsmanni með raungreina-, tækni- og verkfræðimenntun og 2252 starfsmönnum með iðn- og starfsmenntun. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar IMG Gallup á þörfum iðnaðarins fyrir menntun.

Vinnumálastofnun spáir um 3% atvinnuleysi 2004
Meðalatvinnuleysi á árinu 2003 var 3,4% af áætluðum mannafla á vinnu-markaði. Vinnumálastofnun telur líkur á að atvinnuleysi verði nokkru minna á árinu sem er að hefjast en á því síðasta, og verði að meðaltali um eða lítið eitt hærra en 3%. 
Átak SVÞ í öryggismálum
SVÞ hafa gert samning við Securitas hf. um fræðslu til starfsmanna í þeim tilgangi að fyrirbyggja hnupl, rán, kortasvik og annan slíkan skaða sem færist í aukana. Securitas hf. mun þannig taka að sér fræðslu í verkefninu Varnir gegn vágestum sem rekið er í samstarfi við Lögregluna í Reykjavík.
Hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi í Evrópu
Ísland er með hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi af þeim Evrópulöndum sem taka þátt svokallaðri GEM-rannsókn, sem unnin er hérlendis af HR með stuðningi SA o.fl. Um 11% einstaklinga á aldrinum 18-64 ára taka hér þátt í frumkvöðlastarfsemi, sem er svipað og í Bandaríkjunum og Ástralíu, en mun hærra hlutfall en á hinum Norðurlöndunum.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum