11. tbl. 2003
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Hóflegar hækkanir skila meiri kaupmætti
Laun hafa lengi hækkað meira hér en í viðskiptalöndunum. Á yfirstandandi samningstímabili hafa umframhækkanir launa hér á landi verið „leiðréttar“ með lækkun gengis krónunnar og niðurstaðan er sambærilegar launa-hækkanir og erlendis þegar samanburður er gerður í erlendri mynt. Á árunum 1980-1990 hækkuðu laun um 1.450% en kaupmáttur minnkaði  um 14%. Hóflegar launahækkanirnar eru líklegri til að skila sér í auknum kaupmætti.
Heilbrigðiskerfi í vanda
Hlutfall 65 ára og eldri er það 5. lægsta hér á landi af 30 löndum OECD, en heildarútgjöld til heilbrigðismála þau 5. hæstu, sem hlutfall af landsframleiðslu. Þá eru útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála næst hæst hérlendis og hafa hækkað mest hér á undanförnum áratugum. Þar sem hlutfall eldra fólks er lægra en hér eru heilbrigðisútgjöld mun lægri.
Prósentuhækkanir og kaupmáttur
Háar prósentuhækkanir launa búa ekki til kjarabætur, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, og bendir á að kaupmáttur dróst saman um 14% á tímabilinu 1980-1990, þegar laun hækkuðu um 1450%. Vinnufriður og efnahagslegur stöðugleiki stuðla að framleiðniaukningu sem bætir lífskjör.
Skref í átt til einsleitari vinnumarkaðar
Sérstaða og sérkjör opinberra starfsmanna hafa skaðleg áhrif á frjálst flæði fólks milli almenns og opinbers vinnumarkaðar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann segir fjármálaráðherra eiga hrós skilið fyrir að stíga skref í átt til einsleitari vinnumarkaðar á Íslandi.
Desemberuppbót
Starfsmenn skulu eigi síðar en 15. desember fá greidda desemberuppbót, sem er miðað við fullt starf allt árið kr. 37.000 hjá flestum starfsgreinum nema verslunarmönnum, þar sem hún er kr. 42.000.
Flóabandalagið birtir kröfugerð sína
Flóabandalagið hefur birt kröfugerð sína fyrir komandi kjarasamninga. Miðað er við að allir launataxtar undir 93.000. kr. verði felldir út við upphaf samnings og nýtt taxtakerfi byggist á þeim grunni, lægstu laun hækki um 30%, almennar launahækkanir nemi 19,25% og innröðun í nýtt launakerfi nemi 2,5%.
Starfsgreinasambandið birtir kröfugerð sína
Starfsgreinasamband Íslands hefur birt kröfugerð sína vegna komandi kjarasamninga. Höfuðáhersla er lögð á að samið verði um nýja launatöflu, sem byggi á sex þrepum, og hækkun lægstu launa hefur forgang. Krafan gerir m.a. ráð fyrir að lægstu taxtar hækki um 30% á fjögurra ára samningstímabili og að almennar launahækkanir verði 19%.
Viðbrögð SA koma fram í viðræðunum sjálfum
Viðbrögð SA við kröfugerð Starfsgreinasambandsins sem slíkri koma ekki fram fyrr en í samningaviðræðunum sjálfum, segir Ari Edwald, fram-kvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Það sé þó augljóst að hún sé hærri en nemur þeim kostnaðarhækkunum sem atvinnulíf býr við í nágrannalöndum okkar.
Kaupmáttur jókst um 3,3%
Á tímabilinu frá 3. ársfjórðungi 2002 til 3. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,4%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,0%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 3,3%. Laun kvenna hækkuðu um 6,4% en karla um 4,9%.
Hádegisverðarfundur um alþjóðleg reikningsskil
Upptaka alþjóðlegra reikningsskilastaðla, innleiðing og áhrif. Þetta er meðal þess sem verður til umræðu á hádegisverðarfundi um alþjóðleg reikningsskil, þriðjudaginn 9. desember kl. 12-14, á Grand Hótel Reykjavík. Fundinn heldur Deloitte í samstarfi við SA og SBV.
Nýr hagfræðingur til SA
Vilborg H. Júlíusdóttir hefur verið ráðin til starfa á hagdeild SA. Vilborg starfaði sem hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun á árunum 1987 til 2002, en hefur frá árinu 2002 gegnt starfi forstöðumanns hagdeildar Tryggingastofnunar. Vilborg er með cand oecon gráðu og hefur lokið hluta meistaranáms við viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

 
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins opnuð
Opnuð hefur verið Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, sem stofnuð var af SA og ASÍ. Fræðslumiðstöðin mun fyrst og fremst sinna þeim hópi, sem ekki hefur lokið framhaldsskóla, innflytjendum og öðrum sambærilegum hópum. Á íslenskum vinnumarkaði er þessi hópur mjög stór eða um 40%.
Íslenska menntakerfið samkeppnishæfara
Stytting námstíma í framhaldsskóla hefur sem slík ekki mikil bein áhrif atvinnulífið, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í samtali við Viðskiptablaðið. Hún mun hins vegar hafa ýmis jákvæð samfélagsleg áhrif og auka samkeppnishæfni íslenska menntakerfisins.
Skoðun á þingmáli?
SA berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar og eru upplýsingar um umsagnarferlið birtar á vef samtakanna, þ.e. hvenær mál barst samtökunum, hver sé ábyrgðar-maður málsins og hvenær það sé afgreitt. Félagsmenn SA sem vilja hafa áhrif á gerð umsagnar eru hvattir til að hafa samband við ábyrgðarmann.
Brýnt að samkeppnislög verði endurskoðuð í heild
SA telja brýna nauðsyn á heildarendurskoðun samkeppnislaga og hafa gert ítarlegar tillögur um breytingar á einstökum ákvæðum laganna. Samtökin mæla hins vegar gegn samþykkt fyrirliggjandi lagafrumvarps um afmarkaðar breytingar á samkeppnislögum.
Ekki áhyggjur af stækkun EES og vinnumarkaðnum
Í samtali við Morgunblaðið um möguleg áhrif stækkunar EES á íslenskan vinnumarkað segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, samtökin ekki telja að stækkunin þarnist neins sérstaks undirbúnings að því leyti. „Ekki frekar en tilkoma EES-samningsins á sínum tíma.“ Stjórnvöld hafi þó rétt til að grípa til ráðstafana ef sérstök vandkvæði og ójafnvægi komi upp.
Nýjar bandarískar reglur um innflutning matvæla
Þann 12. desember nk. taka gildi nýjar reglur í Bandaríkjunum um innflutning matvæla, og taka þær m.a. til skráningarskyldu fyrirtækja sem flytja matvæli þangað. Utanríkis- og sjávarútvegsráðuneytið hafa staðið fyrir kynningu á reglunum fyrir íslensk fyrirtæki.
Stöðug framúrkeyrsla heilbrigðisstofnana
Síðastliðin fimm ár hafa 34 heilbrigðisstofnanir farið stöðugt fram úr fjárlögum, að meðaltali um rúm 21%. Átta stofnanir voru hins vegar oftast undir fjárlögum eða rétt fyrir ofan og eru þær flestar sjálfseignarstofnanir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í endurskoðaðri athugun SA, þar sem brugðist hefur verið við gagnrýni á upphaflega framsetningu.
Reglur um meðhöndlun, urðun og brennslu úrgangs
Umhverfisráðherra hefur gefið út þrjár reglugerðir á sviði úrgangsmála, um meðhöndlun, urðun og brennslu úrgangs, sem taka þegar gildi.
2,8% atvinnuleysi í október
Í októbermánuði voru skráðir 93.408 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.059 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 2,8% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Meðalfjöldi atvinnulausra var um 15% meiri en í október árið 2002. 
Fjölgun ferðamanna
Ferðaþjónustan virðist vera að ná sér á strik eftir hremmingar síðasta árs. Fjöldi erlendra ferða-manna til Íslands, sem fór um Keflavíkurflugvöll, var orðinn 282.000 í lok október en hann var 277.900 allt árið í fyrra. Allt útlit er fyrir að farþegar til landsins verði hátt í 315.000.
Vörugjöldum mótmælt
Könnun SVÞ á áhrifum vörugjalds og virðisaukaskatts á verðlag leiðir í ljós að verð á matvælum og rafmagnstækjum er mun hærra hér á landi en í Svíþjóð vegna þessara gjalda. Smásöluverð á appelsínusafa er til dæmis 44% hærra hér á landi en í Svíþjóð og sjónvörp eru 24% dýrari hér vegna álagðra vörugjalda og virðisaukaskatts.
„Lóð á vogarskálina“ til Sjóvár-Almennra og ÍTR
Viðurkenningin Lóð á vogarskálina var afhent í fyrsta skipti á ráðstefnu Hollvina hins gullna jafnvægis, fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki.  Viðurkenninguna hlutu Sjóvá-Almennar og ÍTR.
Íslensku gæðaverðlaunin til Sjóvár-Almennra
Sjóvá-Almennar tryggingar hljóta Íslensku gæðaverðlaunin árið 2003. Í umsögn matsnefndar segir m.a. að stjórnun og stefnumörkun einkennist annars vegar af formföstum aðferðum sem byggja á traustum faglegum grunni og hins vegar á því sem virðist vera traust og virðing milli starfs-manna og stjórnenda.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum