![]() |
| 8. tbl. 2005 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Þjónustugjöld hins opinbera
Sífellt fjölgar lagabálkum þar sem opinberum aðilum er veitt heimild til innheimtu þjónustu-gjalda og eru slíkar heimildir nú líklega um 100 talsins. Oft virðast engar takmarkanir á þeim kostnaði sem unnt er að velta út í gjaldskrár þeirra og jafnvel ekkert aðhald með því að hagkvæmni og sparnaðar sé gætt. Það er löngu tímabært að settar séu reglur um álagningu og innheimtu þjónustugjalda opinberra aðila ásamt því að rökstuðningur fylgi gjaldskrám þeirra. Eðlilegast væri að láta aðila á markaði veita þjónustuna, sem opinberir aðilar hafa nú á sinni könnu, í meirihluta tilvika.
Óraunhæf neysluviðmið og ákvörðun bóta
Hugmyndir um upptöku opinberra neysluviðmiða við ákvörðun bóta-fjárhæða hafa verið í umræðunni á Íslandi um nokkurt skeið, m.a. á Alþingi og hjá stjórnvöldum. Hugmyndirnar ganga út á að flytja ábyrgðina á ákvörðun bóta yfir á vísindalegar mælingar á neyslu fólks og miða síður að því að tryggja ákveðin lífsgæði. Í Svíþjóð hefur verið gengið einna lengst í að tengja bætur við neyslu, en hugmyndirnar sem hér hafa verið til umræðu ganga mun lengra.
|
|
|
Samkeppnisstaða fyrirtækja aldrei verið verri
Raungengi krónunnar á mælikvarða verðlags er um þessar mundir hærra en nokkru sinni og er samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja verri en hún hefur verið frá upphafi þessara mælinga. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að því fari fjarri að hagkerfið geti staðið undir núverandi gengi krónunnar. Gríðarlegur viðskiptahalli beri því órækt vitni. Hagnaður atvinnulífsins í heild hafi farið minnkandi samhliða hækkandi raungengi. Vissulega finnist ánægjulegar undantekningar í Kauphöllinni, en sá hagnaður eigi að stórum hluta rætur að rekja til starfsemi erlendis.
|
|
|
Ráðstefna: Hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi?
Hreinn ávinningur – hvernig græða fyrirtæki á umhverfisstarfi? er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður á Grand Hótel miðvikudaginn 28. september nk., kl. 8:30-13:00. Þar munu m.a. fulltrúar fjölda fyrirtækja fjalla um umhverfisstjórnun, þýðingu umhverfisstarfs fyrir ímynd fyrirtækja, menningu og samkeppnishæfni og um fjárhagslegan ávinning fyrirtækja af umhverfisstarfi. Umhverfisráðherra flytur lokarorð. Að ráðstefnunni standa SA, SI, Umhverfisfræðsluráð og ASÍ.
Ráðstefna um rafræn viðskipti
Ráðstefna um stjórnun og rafvæðingu innkaupa undir heitinu Falinn fjársjóður, verður haldin þann 15.september n.k. á Grand hótel. Að ráðstefnunni standa ANZA og fjármálaráðuneytið í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið, Landspítala - háskólasjúkrahús og Ríkiskaup. Á ráðstefnunni munu bæði innlendir og erlendir sérfræðingar miðla af reynslu sinni við innleiðingu rafrænnar tækni við innkaup. Á ráðstefnunni gefst tækifæri til að fylgjast með því helsta sem er að gerast á sviði rafrænna viðskipta.
Starfsmenntaverðlaunin 2005
Starfsmenntaverðlaunin verða veitt þann 10. nóvember næstkomandi. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja, flokki fræðsluaðila og í opnum flokki sem nær meðal annars til einstaklinga og verkefna. Tilnefningar sendist á mennt@mennt.is fyrir 28. október á þar til gerðum eyðublöðum.
Vika símenntunar 2005
Vika símenntunar verður haldin á höfuðborgarsvæðinu dagana 25.-30. september nk., en símenntunarmiðstöðvarnar um landið ákvarða hvenær hún verður haldin á hverju svæði fyrir sig. Vikunni er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um að menntun er æviverk og að alltaf er hægt að bæta við sig þekkingu. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir vikunni og eru fyrirtæki hvött til að tileinka fimmtudaginn 29. september fræðslumálum starfsmanna.
|
|
|
Fundur umhverfishóps SA 14. september kl. 8:30
Næsti fundur umhverfishóps SA verður í Borgartúni 35 miðvikudaginn 14. september nk., kl. 8:30 – 10:00. Þar mun Sigrún Pálsdóttir frá Íslenska járnblendifélaginu gera grein fyrir starfi félagsins að umhverfismálum og greina frá athyglisverðum árangri sem náðst hefur. Auk þess verður farið yfir stöðu þeirra verkefna sem hópurinn hefur verið að vinna að en ráðstefnan sem boðuð hefur verið í lok september (Hreinn ávinningur") er sprottin af starfi hópsins. Fundir hópsins eru opnir félagsmönnum SA en vinsamlegast tilkynnið þátttöku til petur@sa.is.
Fundur menntahóps SA 9. september kl. 10:00
Næsti fundur menntahóps SA verður í Borgartúni 35 föstudaginn 9. september nk., kl. 10:00 - 11:30. Þar verður m.a. fjallað um málefni starfsmenntasjóða SA og stéttarfélaga og um fjármögnun raunfærnimats. Fundur hópsins eru opnir félagsmönnum SA en vinsamlegast tilkynnið þátttöku til gustaf@sa.is. |
|
|
Jafnréttisviðurkenning 2005 - tilnefninga óskað
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2005. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 25. september nk.
|
|
|
Umbætur í stærstu ríkjum ESB?
Nýr forsætisráðherra Frakklands hefur auðveldað smærri fyrirtækjum að segja upp starfsfólki og hraðað einkavæðingu. Kristilegir demókratar boða breytingar í svipaða átt í Þýskalandi hafi þeir sigur í væntanlegum þingkosningum, og leiðtogi jafnaðarmanna þar í landi hefur barist fyrir svipuðum umbótum. Ýmislegt bendir því til þess að leiðtogar þessara forysturíkja muni á næstu misserum auka sveigjanleika á vinnumarkaði og frelsi í atvinnulífinu, í þeim tilgangi að auka hagvöxt og draga úr atvinnuleysi.
Danir leita fyrirmynda í íslensku viðskiptalífi
Á aðalfundi Samtaka iðnaðarins í Danmörku (Dansk Industri) verður horft til þeirra þjóða sem njóta velgengni á sviði viðskipta og efnahagsmála. Yfirskrift fundarins er: Meet the Winners en Dönum er hugleikið að finna leiðir til að bæta árangur sinn á sem flestum sviðum þjóðfélagsins til að koma Danmörku í fremstu röð þjóða á tímum þegar alþjóðleg samkeppni fer sífellt vaxandi. Að mati frænda okkar eru Íslendingar í hópi þeirra sem mestum árangri hafa náð og er fjallað sérstaklega um árangur Íslands á fundinum.
|
|
|
Verðbólgan minnst hérlendis innan EES
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum lækkaði um 0,1% frá júní til júlí sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,2% frá fyrra mánuði. Frá júlí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES. Lægst var hún á Íslandi, 0,5%, 0,7% í Svíþjóð og 0,9% í Finnlandi. Mest mældist verðbólgan í Lettlandi, 6,3% og í Lúxemborg, 4,0%.
Neyslan vex mun meira hérlendis en í ESB
Átta sinnum meiri vöxtur varð í veltu dagvöruverslunar á Íslandi en að meðaltali í ESB löndunum frá maí 2004 til maí 2005. Vöxturinn hér var 13% á föstu verðlagi en 1,6% í ESB löndunum. Þannig hafa Íslendingar aukið neyslu í mat og drykk margfalt meira en íbúar ESB landanna á síðustu mánuðum. Þessar upplýsingar koma fram þegar bornar eru saman upplýsingar Rannsóknaseturs verslunarinnar og Eurostat sem birtir sambærilegar tölur fyrir aðildarlönd ESB.
Skattalækkanir skoðist m.a. út frá stöðu á vinnumarkaði
Í samtali við Fréttablaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, erfitt að tjá sig um mögulegar breyttar tillögur um skattalækkanir þar sem þær hafi ekki verið kynntar opinberlega. Hann segir að viðbrögð SA á skattalækkunartillögur ríkisstjórnarinnar hafi verið jákvæð og telur að frekari skattalækkanir þurfi ekki að valda meiri þenslu en viðbótar launahækkanir eða aukin ríkisútgjöld. Það yrði hins vegar mikil goðgá að spila skattalækkunum inn í mögulega upplausn á vinnumarkaði vegna endurskoðunar kjarasamninga.
Vaxtabótakerfið engin heilög kýr
Ég held að það hljóti að koma til álita að endurskoða þetta kerfi [vaxtabótakerfið]. Það má ekki vera nein heilög kýr, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA í samtali við Morgunblaðið. Fólk er hvatt til þess að skulda sem mest. Ég held að það sé nú kannski ekki það sem við þurfum á Íslandi, segir Ari m.a. en undirstrikar að SA séu ekki með þessu að leggja til að horfið sé frá stuðningi við þá sem höllustum fæti standa á íbúðamarkaði.
|
|
|
Guðrún Björk Bjarnadóttir til SA
Guðrún Björk Bjarnadóttir héraðsdómslögmaður hefur hafið störf á vinnumarkaðssviði Samtaka atvinnulífsins. Guðrún Björk er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er með LL.M gráðu í Evrópurétti frá Stokkhólmsháskóla. Áður starfaði Guðrún sem lögmaður á LOGOS lögmannsþjónustu auk þess sem hún hefur verið stundakennari í félagarétti við bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
|
|
|
2% atvinnuleysi í júlí
Í júlí sl. voru skráðir rúmlega 65.800 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.135 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,0% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,1% í júní sl. en 3,0% í júlí 2004.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf |