8. tbl. ISSN 1670-2220
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Raunhæfar væntingar um stöðugleika og hagvöxt
Afstýra verður því að atvinnulífið og almenningur festist í fjötrum tveggja stafa verðbólgu og óstöðugleika. Það má ekki gerast að núverandi erfiðleikar leiði til gamaldags víxlhækkana launa og verðlags sem á sínum tíma gengu nærri bæði starfsfólki og fyrirtækjum. Framfarir verða að byggja á stöðugleika, þannig eru mestar líkur á því að árangur náist. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Það verði eitt af helstu og mikilvægustu viðfangsefnum Samtaka atvinnulífsins á næstu mánuðum að ræða við ASÍ, ríkisstjórnina og aðra aðila til að stuðla að stöðugleika á ný og tryggja hagvöxt í framtíðinni.
SA styðja tvær nýjar rannsóknir á launamun kynja
Samtök atvinnulífsins, Hagstofa Íslands og Alþýðusamband Íslands hafa gert með sér samstarfssamning um rannsókn á launamun kvenna og karla sem byggir á gagnasafni Hagstofunnar. Er samstarfið gert í framhaldi af bókun með kjarasamningi ASÍ og SA frá 17. febrúar 2008 um áherslur samningsaðila í jafnréttismálum og nær til gagna um laun og störf á almennum vinnumarkaði. Þá hafa SA og ASÍ gert samstarfssamning við ParX, Viðskiptaráðgjöf IBM, um rannsókn á launamun kynja fyrir árið 2008 á grundvelli gagnasafns ParX um launagreiðslur.
Ákvörðun um byggingu koltrefjaverksmiðju innan seilingar
Það skýrist snemma á næsta ári hvort ráðist verður í byggingu koltrefjaverksmiðju í Skagafirði en undirbúningsathugun vegna byggingu verksmiðjunnar lýkur á næstu mánuðum. Verði verkefnið að veruleika skilar það Skagfirðingum um 5 milljarða króna fjárfestingu og allt að 120 nýjum störfum. Ætlunin er að í verksmiðjunni verði framleiddur koltrefjaþráður sem nýtist til iðnframleiðslu en gríðarleg aukning er áætluð í notkun koltrefja á næstu árum eða um 15 – 20% á ári. Með notkun á koltrefjum í vöruframleiðslu sparast orka og vörurnar verða umhverfisvænni. Koltrefjar eru m.a. notaðar í felgur á bíla, í báta, skip og farþegaflugvélar.
Viðskiptahindranir gagnast ekki í baráttunni við loftslagsbreytingar
Samtök atvinnulífsins á Norðurlöndum og Samtök breska iðnaðarins hafa í sameiningu sent frá sér skýrslu þar sem fjallað er um hugmyndir um sérstakar viðskiptahindranir til að hvetja til þess að dregið verði úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda í ríkjum sem ekki hafa sett sér útstreymisþak. Hugmyndir um slíkar viðskiptahindranir hafa verið til umræðu í Evrópusambandinu. Í skýrslu samtakanna er sýnt fram á að þessar hugmyndir séu ekki líklegar til að skila árangri í baráttu við loftslagsbreytingar, þær hafi slæm áhrif á lífskjör almennings og skekki samkeppnisstöðu evrópsks atvinnulífs. Þá séu umhverfisáhrifin í besta falli sáralítil og að slíkar aðgerðir geti leitt til gagnaðgerða sem skaði útflutning frá Evrópu.
Óskað eftir aðstoð við kafbátainnflutning
Ein af mörgum djúpum hugmyndum sem rædd var á Hugmyndaþingi SA sem fram fór á Hofsósi þann 5. september síðastliðinn var innflutningur á kafbáti fyrir ferðamenn. Upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar, Freyr Antonsson, hefur undanfarið unnið að því að gera innflutninginn að veruleika og leitar nú stuðnings við verkefnið. Hugmynd hans er að starfrækja kafbát fyrir 36 farþega og sigla um Eyjafjörð á 12 sjómílna hraða ofansjávar og 5 sjómílna hraða neðansjávar, skoða undur  hafsins og elta hvali. Kafbáturinn kostar 400 milljónir króna.

Kynningarfundur um nýjan kjarasamning við aðildarfélög BHM - þriðjudaginn 16. september.  Í Húsi atvinnulífsins - 6. hæð kl. 9. Skráning nauðsynleg. Sjá nánar »

Fundur 18. september um nýja reglugerð um skráningu efna, mat, leyfisveitingar og takmarkanir - sjá á vef SVÞ.

Lokaráðstefna Jafnréttiskennitölunnar 19. september. Ráðstefna um nýtingu mannauðs í stjórnun og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja verður haldin í Salnum í Kópavogi föstudaginn 19. september næstkomandi. Með ráðstefnunni lýkur verkefninu um Jafnréttiskennitöluna. Meðal þátttakenda er Þór Sigfússon, formaður SA, sem spyr hvort við séum að hoppa á öðrum fæti? Sjá nánar » 

Miðvikudagurinn 24. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum, t.d. með því kynna starfsmönnum fræðslustefnu fyrirtækisins, bjóða upp á námskeið eða fá kynningar frá fræðsluaðilum, stéttarfélögum eða styrktarsjóðum.

Íslenska efnahagsundrið er engin bóla
„Þrátt fyrir mjög alvarlega stöðu í íslenskum efnahagsmálum um þessar mundir þá megum við ekki gleyma því að íslenska efnahagsundrið er engin bóla og ef við stöndum rétt að málum þá er Ísland land tækifæranna og horft verður til Íslands um fyrirmyndir á næstu árum og áratugum." Þetta segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, í grein í Markaðnum. Þór sat nýlega fund formanna samtaka atvinnulífsins á Norðurlöndum þar sem var gerður samanburður á framtíðarhorfum milli OECD-landa. Þar kom skýrt fram að Ísland er í forystu í Evrópu á sviðum sem talin eru skipta miklu máli þegar horft er til framtíðarhorfa og langtímahagvaxtar.
SA styðja álver á Bakka
Samtök atvinnulífsins styðja heilshugar þá uppbyggingu sem fyrirhuguð er við álver á Bakka á Húsavík og telja mikilvægt að stjórnvöld sýni virkan stuðning við verkefnið og ekkert sé gert til að leggja stein í götu þess, tefja framkvæmdir eða gera hlutina erfiðari en nauðsynlegt er.
Hægt að ná árangri þótt á móti blási
Staða atvinnulífs á landsbyggðinni var til umræðu á Hugmyndaþingi SA sem fram fór á Hofsósi  þann 5. september. Þingið var mjög vel heppnað en um 70 manns mættu til leiks í Vesturfarasetrinu og hlýddu á valinkunna aðila úr íslensku athafnalífi deila reynslu sinni af atvinnuuppbyggingu auk þess að ræða nýjar leiðir í þeim efnum. 
Menntun og nýsköpun forsenda öflugs mannlífs
Áhersla á menntun og nýsköpun er ein af grundvallarforsendum þess að hægt verði að snúa við þeirri þróun sem landsbyggðin hefur þurft að glíma við í atvinnu- og byggðarmálum. Þetta er mat Ólafs Sigmarssonar, framkvæmdastjóra hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, en KS hefur með margvíslegum hætti unnið að uppbyggingu atvinnulífs í Skagafirði ásamt því að styðja við nýsköpunarverkefni. KS veltir um 14,2 milljörðum króna á ári og hjá því starfa um 600 manns.
Mikilvægi hins smáa og fjölbreytta
Steinunn Jónsdóttir, athafnakona, var meðal frummælenda á Hugmyndaþingi SA á Hofsósi. Þar fjallaði hún um mikilvægi hins smáa og fjölbreytta við atvinnuuppbyggingu. Steinunn sagði tækifærin oft liggja í næsta nágrenni okkar og nefndi í því sambandi Listasetrið Bæ á Höfðaströnd sem er aðsetur listamanna og arkitekta yfir sumartímann. Listasetrið er eini staðurinn á landinu þar sem listamenn með ólíkan bakgrunn dvelja samtímis og skiptast á reynslu og þekkingu en markmiðið er að staðurinn nái alþjóðlegri viðurkenningu innan fárra ára sem einstakur staður fyrir listafólk og arkitekta sem geti m.a. sótt sér innblástur í séríslenskar aðstæður.
Kvikmyndaframleiðsla atvinnugrein á uppleið
Góðir möguleikar eru á að byggja upp þjónustu í kringum kvikmyndaframleiðslu á landsbyggðinni. Á þetta benti Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi á Hugmyndaþingi SA á Hofsósi. Sagði hann sveiflur á íslensku krónunni hafa valdið greininni miklum skaða en aðstæður nú séu hagstæðar til að laða erlend verkefni til landsins. Nauðsynlegt sé að efla innlend kvikmyndafyrirtæki til að takast á við krefjandi verkefni en þau hafi í gegnum tíðina verið of mörg og smá.
Öllum ber að kaupa slysatryggingu
Samkvæmt kjarasamningum SA ber öllum atvinnurekendum að kaupa slysatryggingu vegna launamanna sem hjá þeim starfa. Vanræksla getur verið dýrkeypt. Samtök atvinnulífsins minna atvinnurekendur jafnframt á að mikilvægt er að tilkynna um öll vinnuslys án tafar til Vinnueftirlits ríkisins.
Nýr starfsmenntasjóður SA og Verkstjórasambands Íslands
Þann 1. júlí 2008 var undirritaður viðauki við kjarasamning verkstjóra og SA og samþykktir fyrir nýjan starfsmenntasjóð Samtaka atvinnulífsins og Verkstjórasambands Íslands (VSSÍ). Markmið þessa nýja starfsmenntasjóðs er að starfandi verkstjórum bjóðist ávallt heildstæð grunn- og endurmenntun sem uppfylli þekkingarkröfur sem verkstjórar þurfa að búa yfir á hverjum tíma.
Aukin áhersla á endurhæfingu á norrænum vinnumarkaði
Á Norðurlöndunum eru 10-15% fólks á vinnualdri utan vinnumarkaðar tímabundið eða til frambúðar vegna heilsufarsvanda. Í öllum ríkjunum er nú reynt að bregðast við með því að stórauka endurhæfingu en útlit er fyrir að fólki muni fækka á norrænum vinnumarkaði á næstu árum og áratugum. Aldurssamsetning þjóðanna er að breytast - fjölmennir árgangar eru að fara á eftirlaun og árgangar fólks sem koma út á vinnumarkaðinn eru fámennari auk þess sem ungt fólk byrjar seinna að vinna en áður. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri sameiginlegri skýrslu samtaka atvinnulífsins á Norðurlöndum um stöðu og horfur á norrænum vinnumarkaði. Ísland stendur vel að vígi í norrænum samanburði en skýrslan var kynnt á árlegum fundi formanna og framkvæmdastjóra samtakanna sem fram fór í Reykjavík.
Evrópusamtök atvinnulífsins fagna handboltalandsliðinu
Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, eru meðal þeirra sem fagna glæsilegum árangri landsliðs Íslands í handknattleik karla á Ólympíuleikunum í Peking. Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins eru meðal 40 aðildarfélaga BUSINESSEUROPE í 34 löndum en íþróttamenn landanna rökuðu alls saman 93 gullverðlaunum, 113 silfurverðlaunum og 104 bronsverðlaunum. Árangurinn þykir stórglæsilegur og ljóst að fulltrúar Evrópusamtaka atvinnulífsins hafi skotið öðrum ref fyrir rass, en afburðafimir íþróttamenn Kína hlutu á leikunum 51 gullverðlaun, 21 silfurverðlaun og 28 bronsverðlaun. Samtökin óska verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn - þar með töldum leikmönnum og aðstandendum íslenska landsliðsins í handknattleik.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf