![]() |
| 8. tbl. |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Kjarastefnan hefur verið mörkuð
SA og stéttarfélögin hafa markað kjarastefnu á almenna vinnumarkaðnum til næstu fjögurra ára. Á þessu ári hafa samtökin þegar gert 101 sjálf-stæðan kjarasamning sem samtals tekur til 62.500 launamanna. SA eiga eftir að gera kjarasamnina vegna 11.000 starfsmanna. Samningar SA ná yfir 95% hins almenna vinnumarkaðar, en hann nemur 75% af vinnu-markaðnum í heild. Ef samið er við eitt eða fleiri félög opinberra starfs-manna um meiri kostnaðarhækkanir getur það falið í sér ákvörðun um að brjóta á bak aftur þá launastefnu sem mótuð hefur verið á almennum vinnumarkaði, skapað óvissu, vaxandi verðbólgu og óstöðugleika. Það er sú staðreynd sem opinberir samningsaðilar standa frammi fyrir þegar þeir meta hvort þeir ætli að bera ábyrgð á nýrri kjarastefnu í landinu, með meiri launahækkunum.
15% tekjuskattur, afnám stimpilgjalda, afnám vörugjalda...
![]() Lækkun tekjuskatts fyrirtækja í 15% og afnám stimpil-gjalda eru meðal þess sem skattahópur SA lagði til í ítarlegri skýrslu sem gefin var út í maí 2001. Ástæða er til að minna á skýrsluna í tengslum við þær umræður sem nú eiga sér stað um breytingar á skattkerfinu, sem og á stefnumörkun SA og fleiri samtaka í atvinnulífinu frá í vor á sviði vörugjalda og skattheimtu á matvælum. Hár starfsmannakostnaður beinir fjárfestingum úr landi
43% þýskra fyrirtækja hyggjast fjárfesta erlendis á þessu ári og hefur þetta hlutfall vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. Hár starfsmannakostnaður og ósveigjanlegt ráðningarumhverfi koma í veg fyrir að þýsk fyrirtæki fjárfesti heima fyrir.
|
|
|
Stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis
Skýrsla nefndar um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis er vandað og yfirgripsmikið plagg og margar tillögur nefndarinnar eru til bóta, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann leggur áherslu á að samráð sé haft við atvinnulífið áður en frumvörp verði unnin í viðskiptaráðuneytinu. Þá svarar Ari leiðara Morgunblaðsins þar sem hann segir grundvallar-misskilning á ferð.
|
|
|
Alþjóðleg ráðstefna um samkeppnisreglur 10. september
Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur og Euphoria standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um sam-keppnisreglur á Nordica hótelinu föstudaginn 10. september nk., með stuðningi SA o.fl. Virtir erlendir sérfræðingar munu ávarpa ráðstefnuna, en miklar breytingar hafa orðið á samkeppnis-reglum ESB undanfarin ár.
Jafnréttisviðurkenning 2004
Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2004. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 1. október nk.
|
|
|
Skattlagning tekna af vinnu og fjármagni
Umræða um mismun á skattlagningu fjármagns-tekna og launatekna byggist gjarnan á of miklum einföldunum og klárum misskilningi. Í samantekt SA er m.a. sýnt hvernig munurinn getur verið allt frá engu að t.d. 7% við mjög háar tekjur. Sá munur lækkar verulega með væntan-legu afnámi hátekjuskatts og fyrirhugaðri lækkun tekjuskatts. |
|
|
Evrópubúar þurfa að vinna meira
Skortur á sveigjanleika á evrópskum vinnu-markaði, of stutt vinnuvika, of lágur eftirlauna-aldur, of rík uppsagnarvernd. Allt eru þetta kunnuglegar ástæður efnahagslegrar stöðnunar víða í Evrópu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hvetur til umbóta. Michael Deppler, yfirmaður Evrópu-deildar sjóðsins, segir Evrópubúa einfaldlega þurfa að vinna meira til að standast samkeppni og til að kosta velferðarkerfin.
Vilja ekki styttri vinnuviku
Tveir þriðju dansks launafólks telja ekki forsendu fyrir frekari styttingu vinnuvikunnar og rúmur helmingur telur ekki rétt að lengja sumarleyfið, skv. skoðanakönnun. Þess í stað vill meirihluti svarenda lengra fæðingarorlof.
UNICE fagna WTO-niðurstöðu
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, lýsa ánægju með þann áfanga sem náðst hefur á vettvangi WTO, í viðræðum um aukið frelsi í viðskiptum sem vonandi leiði til niðurstöðu sem verði öllum til hagsbóta. Samtökin benda hins vegar á óvissu hvað varðar markaðsaðgang með iðnaðarvörur og minna á áherslu sína á að engir tollar verði yfir 15% á því sviði.
|
|
|
Ný kaupgjaldsskrá SA
Kaupgjaldsskrá SA nr. 5 er komin á vef samtakanna, en hún gildir fyrir samninga sem undirritaðir voru á tímabilinu mars til júní 2004. Prentað eintak verður sent félagsmönnum á næstunni.
Frá kreppu til þjóðarsáttar - Saga VSÍ 1934 til 1999
![]() Út er komin bókin Frá kreppu til þjóðarsáttar - Saga Vinnuveitendasambands Íslands 1934 til 1999, skráð af Guðmundi Magnússyni sagnfræðingi. Í bókinni fjallar Guðmundur fyrstur sagnfræðinga um það hvernig kjarabaráttan hér á landi horfði við atvinnurekendum og byggir hann verkið einkum á ítarlegri könnun frumheimilda.
|
|
|
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í samstarfi við aðra evrópska aðila í starfsmenntamálum, eða vilt koma því á? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskipta- og tilraunaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 1. október 2004. Mennt veitir fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoðar þau við gerð umsókna.
Vika símenntunar 12.-18. september
![]() Vika símenntunar verður haldin dagana 12.-18. september. Að verkefninu standa m.a. mennta-málaráðuneytið, Starfsmenntaráð, Mennt, SA, ASÍ og símennuntarmiðstöðvarnar. Vikan er ekki síst hugsuð fyrirtækjum til hvatningar, en að þessu sinni er athyglinni beint að fræðslumálum ungs fólks.
|
|
|
3% atvinnuleysi í júlí
Í júlímánuði voru skráðir 103.648 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.712 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum eða 3,0% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 3,1% í júní sl. og 3,0% í júlí 2003. |
|
|
Helga B. Jóhannesdóttir til PS Ráðgjafar
|
|
|
Ekki sérlega raunhæfar hugmyndir
Forstjóri Samkeppnisstofnunar hefur varpað fram þeirri hugmynd að eftirlitsskyldir aðilar greiði að hluta eða öllu leyti kostnað við samkeppnis-eftirlitið. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, þessar hugmyndir ekki sérlega raunhæfar við fyrstu sýn. Erfitt sé að afmarka umræddan hóp og eðlilegra að slík starfsemi sé fjármögnuð með almennu skattfé. |
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum |