9. tbl. ISSN 1670-2220
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Horfum til framtíðar
Helstu viðfangsefni Íslendinga eru að koma gjaldeyrisviðskiptum í samt lag og ná fram hækkun gengis krónunnar og meiri stöðugleika. Lækka verður vexti verulega í því skyni að afstýra verðhruni eigna með tilheyrandi framleiðslutapi og fjöldaatvinnuleysi. Endurreisa verður fjármálaþjónustuna þannig að fyrirtæki og heimili geti farið að starfa og stunda eðlileg viðskipti. Aðkoma Alþjóða gjaldeyrissjóðsins að erfiðleikum Íslands er orðin afar brýn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
Aðkoma IMF treystir fjármálakerfið og tryggir sparifé
Ef Íslendingar leita til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (IMF) um aðstoð við að komast út úr þeim erfiðleikum sem nú blasa við þjóðinni er það til þess fallið að styðja við enduruppbyggingu fjármálakerfis á Íslandi. Aðkoma IMF mun því stuðla að því að sparifé landsmanna verði tryggt en Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og fyrrum stjórnarmaður í IMF, hefur lýst því yfir að rétt sé að Íslendingar leiti eftir aðstoð IMF til að bregðast við yfirstandandi þrengingum.
SA fylgjast með og bregðast við afleiðingum fjármálakreppunnar
Samtök atvinnulífsins hafa stofnað vinnuhóp til að fylgjast með afleiðingum fjármálakreppunnar fyrir atvinnulífið í landinu. Vinnuhópurinn er skipaður fulltrúum aðila vinnumarkaðarins og Viðskiptaráðs Íslands. Safnað verður saman upplýsingum um áhrif á fyrirtæki, vandamál sem upp koma og hvernig unnt er að bregðast við þeim. Samtökin munu koma upplýsingum á framfæri við fulltrúa ríkisstjórnarinnar og gæta þannig hagsmuna fyrirtækjanna.

Mjög mikilvægt er að fyrirtæki láti Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra fylgjast með því hvernig gengur að standast það álag sem ástandið hefur fyrir nánast allt atvinnulíf í landinu.

Fundur SAF um ESB aðild fer fram 16. október. Sjá á vef SAF.

Aðalfundur LÍU fer fram 30.-31. október.

Auður fólginn í aukinni orkuframleiðslu og iðnaðaruppbyggingu
Á næstu árum er hægt að ráðast í framkvæmdir á sviði orkuframleiðslu og iðnaðaruppbyggingu á Íslandi fyrir um 1.000 milljarða króna. Þetta má gera með því að hraða framkvæmdum við ný álver og virkjanir og opna þar með leið fyrir gjaldeyrisstreymi inn til landsins til skemmri og lengri tíma með stóraukinni iðnframleiðslu. Þetta kemur fram í samtali við Þór Sigfússon, formann SA, í Viðskiptablaðinu.
Möguleikar á auknu samstarfi Íslands og ESB í orkumálum
Á fundi framkvæmdastjórnar SA með framkvæmdastjóra orkumála í ESB, Andris Piebalgs, setti hann fram nokkrar hugmyndir um aukið samstarf Íslands og ESB í orkumálum. Aðilar gætu átt samstarf í verkefnum í Afríku, unnið saman að notkun vetnis sem orkubera, lagt saman krafta í rannsóknum og þróunarstarfsemi og stuðlað sameiginlega að aukinni notkun jarðhita. Í ESB væru nokkur ríki sem byggju yfir ónýttum jarðhita og Ísland væri í fararbroddi í heiminum í nýtingu hans.
Upplýsingar um innheimtu vegna Endurhæfingarsjóðs
Í kjarasamningum milli ASÍ og SA sem undirritaðir voru 17. febrúar sl. var samið um nýtt fyrirkomulag endurhæfingar þar sem skipuleggja á þjónustu og veita úrræði fyrir þá einstaklinga á vinnumarkaði sem veikjast til lengri tíma eða slasast þannig að vinnugeta skerðist. Til að standa straum af kostnaði við þessa þjónustu var Endurhæfingarsjóður stofnaður og samkvæmt ofangreindum kjarasamningum þá ber atvinnurekendum að greiða 0,13% af heildarlaunum í sjóðinn frá og með 1. júní 2008.
Forysta SA til Brussel
Forysta Samtaka atvinnulífsins sótti Evrópusambandið heim í byrjun mánaðarins. Samtökin hittu og ræddu við valda aðila innan og utan ESB. Ferðin er liður í umræðum innan aðildarsamtaka Samtaka atvinnulífsins um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Fréttir af heimsókninni af vef SA má nálgast hér að neðan:

Samskipti við ESB efld - staða Íslands styrkt

Viðræður SA í Brussel: Óvænt staða á fjármálamörkuðum

Ræddu viðbrögð ESB við fjármálakreppu

Klókt að auka fjölbreytni í atvinnulífinu
Auka má fjölbreytni verulega í íslensku atvinnulífi og á tímum þegar blæs á móti eiga stjórnendur að nýta tækifærið til að taka til í rekstrinum - leita nýrra leiða til aukinnar hagsældar. Það er klókt að auka nú fjölbreytni í stjórnum fyrirtækja og í stjórnunarstöðum. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA, á afmælisráðstefnu Háskólans á Bifröst .
Framleiðendaábyrgð raftækjaúrgangs - skráning hafin
Frá 1. janúar 2009 bera framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja ábyrgð á réttri úrvinnslu raf- og rafeindatækjaúrgangs. Í ábyrgðinni felst að þeir skulu fjármagna og tryggja meðhöndlun úrgangsins og uppfylla skyldur sínar með rekstri eigin skilakerfis eða með aðild að sameiginlegu skilakerfi fleiri framleiðenda og innflytjenda. Ábyrgð á söfnun úrgangs nær til landsins alls án tillits til hvar varan er seld og skal allur raf- og rafeindatækjaúrgangur fara til meðhöndlunar.
Símenntun eykur hæfni og starfsánægju
Á undanförnum misserum hefur nokkur fjöldi fyrirtækja notfært sér tilboð fræðslusjóðanna Starfsafls og Landsmenntar um að fá mannauðsráðgjafa að láni. Tilgangurinn er að auka hæfni starfsmanna og draga úr starfsmannaveltu. Forstjóri Vífilfells, Árni Stefánsson, segir að viðbótarmenntun starfsfólks skili sér í aukinni hæfni og meiri starfsánægju.Starfsmannastjóri Vífilfells, Anna María Pétursdóttir, segir reynslu fyrirtækisins af viku símenntunar mjög góða.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf