9. tbl
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Allt að 144% munur á gjaldskrám heilbrigðisnefnda
Gjald heilbrigðiseftirlits vegna sýnatöku er lang-hæst í Reykjavík, 144% hærra en á Norðurlandi eystra. Frá fyrri samanburði SA hefur tímagjald heilbrigðisnefnda hækkað um 50% á Kjósar-svæðinu þar sem það var áður lægst, en um 8% á Suðurnesjum þar sem það var hæst. Markmið samanburðar SA var sannarlega ekki að lægstu gjöldin yrðu færð upp að þeim hæstu, sem virðist hafa orðið raunin. Þessi gjöld eiga að endurspegla raunverulegan kostnað og ekkert annað, en gjöldin eru áætluð um 300 milljónir á ári.
Sameiginleg sýn á félagslega ábyrgð fyrirtækja
Í lokaskýrslu til framkvæmdastjórnar ESB hefur víðtækur samráðsvett-vangur atvinnurekenda, verkalýðshreyfingar o.fl. hagsmunaaðila komið sér saman um helstu skilgreiningar í umræðunni um félagslega ábyrgð fyrir-tækja, þ.e. þær skuldbindingar sem fyrirtæki kjósa að taka á sig gagnvart starfsfólki, umhverfi og viðskiptavinum umfram það sem kveðið er á um í kjarasamningum, lögum eða reglugerðum.
Fjárlagafrumvarp og stöðugleiki
Fjárlagafrumvarp ársins 2005 hljóðar upp á 8% aukningu ríkisútgjalda frá frumvarpi síðasta árs, eða 3,5% raunvöxt, og ekki að sjá að frumvarpið markist af miklu átaki til að sporna gegn ofþenslu sem það þyrfti að gera, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Hann segir greiðan aðgang erlends starfsfólks að íslenskum vinnumarkaði gríðarlega mikilvægan á næstu misserum í þessu sama skyni.
Stimpilgjöld - sérstaða Íslands
Ísland er nánast eina vestræna ríkið sem leggur stimpilgjald á öll skuldabréfaviðskipti, og er með sérstöðu í álagningu stimpilgjalds á útgáfu hlutabréfa. Einstaklingar greiða skattinn einkum í tengslum við fasteignakaup, en þar sem hann veitir rétt til vaxtabóta er hann þó að hluta til endurgreiddur að ári. Almennt þekkist ekki á hinum Norðurlöndunum að lagt sé á stimpilgjald í annað sinn í tengslum við endurfjármögnun lána.
Ábyrgt atvinnulíf
Áherslur SA í umfjöllun sinni um samkeppnismál og stjórnarhætti fyrirtækja hafa í öllum megindráttum verið þær nákvæmlega sömu og systursamtaka SA í Svíþjóð, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í Morgunblaðs-grein. Hann segir það að sjálfsögðu markmið SA að vinna með stjórn-völdum að jákvæðri þróun mála á þessu sviði.
Dagur samkeppnishæfni Evrópu 9. desember
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir evrópskum samkeppnisdegi í Brussel fimmtu-daginn 9. desember nk. Yfirskrift dagskrárinnar er „leikið til sigurs" og fjallað verður um nauðsyn þess að auka samkeppnishæfni evrópsks starfsumhverfis. Eru fyrirtækjastjórnendur um alla álfu hvattir til að taka þátt.

Vöxtur, störf og velmegun til framtíðar
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins hafa kynnt sýn atvinnulífsins fyrir Evrópu þar sem áhersla er lögð á vöxt, störf og velmegun til framtíðar. Meðal annars er lagt til að ný forysta ESB leggi bann við frekari laga-setning á félagslega sviðinu sem leggur kvaðir á fyrirtæki, í því skyni að tryggja betri virkni vinnumarkaðarins.
Uppfærðir kjarasamningar á vef SA
Á vinnumarkaðsvef SA, sem opinn er félagsmönnum, er nú að finna uppfærða nokkra af helstu heildarkjarasamningum SA með þeim breytingum sem orðið hafa árið 2004. Samningar þessir hafi einnig verið prentaðir og sendir félagsmönnum.
Málþing um jafnréttisáætlanir

Þriðjudaginn 26. október nk. stendur Jafnréttisráð fyrir málþingi á Grand Hótel Reykjavík um mikilvægi jafnréttisáætlana fyrir vinnumarkaðinn. Meðal framsögumanna verður Ragnar Árnason, forstöðu-maður vinnumarkaðssviðs SA.

 

Borgin beitir sér ekki vegna útboðs Sorpu
Í nýlegu bréfi SA var því beint til borgarstjóra að hann beitti sér fyrir endurskoðun á aðkomu Vélamiðstöðvarinnar að nýlegu útboði Sorpu. Tillaga þess efnis hefur verið felld í borgarráði, en í svari borgarstjóra til SA kemur fram að á meðan Vélamiðstöðin sé á leið úr almannaeigu telji borgaryfirvöld ekki rétt að taka framfyrir hendur stjórnar fyrirtækisins og hugsanlega rýra þar með verðmæti þess.
Bréf til iðnaðar- og viðskiptaráðherra í kjölfar skýrslu
Í kjölfar skýrslu nefndar iðnaðar- og viðskiptaráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi sendu Verslunarráð, Kauphöll Íslands og Samtök atvinnulífsins ráðherra bréf til þess að vekja athygli á hlutverki Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.
Starfsmenntaverðlaunin 2004
Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar árið 2004 hljóta Landsbanki Íslands í flokki fyrirtækja, Samtök verslunar og þjónustu og Viðskiptaháskólinn á Bifröst í flokki fræðslu-aðila, og Janus endurhæfing í opnum flokki. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar.
FA: Óformlegt nám metið til eininga
Menntamálaráðuneytið hefur staðfest mat Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á 5 námsleiðum Mímis-símenntunar til eininga í framhaldsnámi. Á vegum FA er unnið að mati á fleiri námsleiðum, m.a. fagnámi fyrir verslunarfólk.
Nýtt rit um viðskiptasérleyfi
SVÞ og Íslandsbanki hafa gefið út rit um viðskiptasérleyfi (franchise), sem ætlað er að leiðbeina um hvernig staðið er að stofnun og rekstri slíkra fyrirtækja. Viðskiptasérleyfi hafa orðið æ algengari í verslun og þjónustu undanfarin ár, en hingað til hafa engar leiðbeiningar verið gefnar út um þetta málefni hér á landi.
2,9% atvinnuleysi í ágúst
Í ágústmánuði voru skráðir 98.011 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.452 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,9% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 3,0% í júlí sl. og 2,9% í ágúst 2003. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið minnki í september.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum