![]() |
10. tbl. ISSN 1670-2220 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Ljósið logar enn
Mikil vinna hefur farið fram innan Samtaka atvinnulífsins í tengslum við vandamál atvinnulífsins í kjölfar falls bankanna. Markmið þessa starfs hefur verið að finna lausnir á bráðavanda fyrirtækjanna og leita leiða til þess að íslenskt atvinnulíf komist aftur á rétta braut. Ljóst er að aðeins litrík lýsingarorð geta átt við um það ástand sem nú ríkir í atvinnulífinu og allir Íslendingar eiga mikið undir því að það nái góðri viðspyrnu til framtíðar. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA sem fjallar um meginatriði vinnu SA og framtíðarhorfur. Vilhjálmur segir að enn logi á ljósinu sem geti skapað okkur bjarta framtíð.
|
|
|
Rödd atvinnulífsins skýr
Þörf á breiðri samstöðu
Ná þarf breiðri samstöðu um aðgerðir sem horfa til framtíðar til að bregðast við núverandi ástandi. Aðilar vinnumarkaðarins hafa rétt út hönd og boðið ríkisstjórninni til víðtæks samstarfs um leiðir út úr krísunni. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA á opnum fundi samtakanna í morgun. Við vorum boðin og búin í byrjun október þegar krísunni var aflýst í rúman sólarhring en nú erum við aftur reiðubúin að stíga fram." Þór sagði mikilvægt að leggja allt kapp á að undirbúa nýja tíma fyrir Ísland og lagði fram lista yfir sex lykilverkefni sem vinna þurfi að á næstu vikum.
Sterkt atvinnulíf kemur í veg fyrir neyðarástand
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, sagði í erindi sínu á fundi SA að aðrar þjóðir dæli nú fjármagni inn í hagkerfi sín til að halda atvinnulífinu gangandi og forðast neyðarástand. Hér á landi megi ekki til þess hugsa að tugir þúsunda einstaklinga verði atvinnulausir og stjórnvöld hljóti að gera allt til að forðast slíkt ástand og afleiðingarnar sem því fylgi. Það verði best gert með því að atvinnulífið haldist gangandi og hafi aðgang að nauðsynlegu fjármagni.
Erindi Vilhjálms Egilssonar á opnum fundi SA
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, flutti efnismikið erindi á fundi SA í morgun þar sem hann fjallaði um þau brýnu verkefni sem snúa að Íslendingum um þessar mundir. Vilhjálmur leggur út af erindi sínu í leiðara fréttabréfsins, en ítarlegar glærur Vilhjálms má nálgast á vef SA.
Spurt og svarað á vef SA
Ljósritunarvél óskast til góðra verka
Öflugt starf fer fram á Múlalundi en þar eru framleiddar íslenskar vörur á hagstæðu verði. Vegna erfiðra aðstæðna í efnahagslífinu hefur Múlalundur ekki getað bætt við starfsfólki með skerta starfsorku frá því eftir sumarfrí vegna samdráttar. Í ofanálag er gamla ljósritunarvél fyrirtækisins, sem er mikilvægur liður í framleiðslunni, að gefast upp. Ef einhver á ljósritunarvél sem hann nýtir ekki í dag og gæti gagnast Múlalundi er honum bent á að hafa samband við fyrirtækið. Sjá nánar um Múlalund. |
|
|
Núna er tækifærið
Fjöldafundur föstudaginn 14. nóvember 2008 á Hilton Reykjavík Nordica. Markmið fundarins er að hefja markvissa uppbyggingu hátækni- og sprotafyrirtækja með samstarfi stjórnvalda, stjórnenda og starfsmanna fyrirtækjanna. Sjá nánar á vef SI Morgunfundur: Hvað getum við lært af Færeyingum?
Mánudaginn 17. nóvember á Grand Hótel Reykjavík. Sjá nánar á vef KOM almannatengsla. Morgunfundur SA um þjónustutilskipun ESB
Á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 28. nóvember, kl. 8:30-10:00. Erindi flytja Carlos Almaraz frá BUSINESSEUROPE, Gunnar Þór Pétursson hdl. sérfræðingur við lagadeild HR og Valgerður Rún Benediktsdóttir, lögfræðingur hjá Viðskiptaráðuneytinu. Nánari dagskrá verður birt á mánudag og opnað fyrir þátttökuskráningu. |
|
|
Bréf framkvæmdastjóra SI í The Times
Vefútgáfa breska blaðsins The Times hefur birt bréf frá Jóni Steindóri Valdimarssyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Bréfið er ritað vegna greinar Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu sem birtist í blaðinu 28. október. Jón Steindór segir nokkurs misskilnings gæta í grein Bjarkar sem rétt sé að leiðrétta, t.d. upplýsingar um orkunýtingu, mat á umhverfisáhrifum og álframleiðslu. Jón Steindór er þó sammála Björk um að styðja eigi við íslenskt hugvit og umhverfisvæn nýsköpunar- og sprotafyrirtæki sem ekki hafi fengið nægilegan stuðning hingað til.Óskir um blíðan byr frá Færeyjum
Samtökum atvinnulífsins hafa borist hlýjar frændkveðjur frá Føroya Arbeiðsgevarafelag - samtökum atvinnulífsins í Færeyjum. Í bréfi formanns samtakanna segir Jóhan Páll Joensen að Færeyingar viti að framundan sé mikið átak hjá Íslendingum sem fáir geti sett sig inn í og skilið en Færeyingar hafi verið í svipaðri stöðu og notið hlýlegs viðmóts og skilnings frá Íslendingum. Þor og dugur hafi alltaf verið aðalsmerki íslensku þjóðarinnar og segjast færeyskir atvinnurekendur vera sannfærðir um að Íslendingum muni takast að byggja upp blómlegt atvinnulíf að nýju.
Ræða formanns LÍÚ á aðalfundi samtakanna
Í ræðu fráfarandi formanns LÍÚ á aðalfundi samtakanna, sagðist Björgólfur Jóhannsson vera algerlega ósammála þeim sjónarmiðum að Íslandi sé fyrir bestu að gerast aðili að Evrópusambandinu. Björgólfur sagði mikilvægt að útvegsmenn og konur þjappi sér saman á erfiðum tímum og leggi sitt af mörkum við markvissa enduruppbyggingu íslensks efnahagslífs. Hann sagðist bjartsýnn á að leið fyndist út úr erfiðleikunum á tiltölulega stuttum tíma - reynslan hafi sýnt að íslenska hagkerfið sé mjög sveigjanlegt og fljótt að bregðast við í djúpum niðursveiflum.
|
|
|
Staðall búinn til um launajafnrétti kynja
Félags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals sem notaður verði til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. Atvinnurekendur sem uppfylla skilyrði staðalsins eiga síðan að geta fengið formlega vottun fyrir því að launa- og starfsmannastefna þeirra samræmist lögum um jafnrétti kynjanna.
Alcao Fjarðaál fær jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs
Alcoa Fjarðaál hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2008 fyrir störf sín á sviði jafnréttismála. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti verðlaunin. Í ávarpi sem hún flutti við það tækifæri sagði hún meðal annars að stefna Alcoa um að ráða að jöfnu konur og karla til starfa í fyrirtækinu hefði verið áberandi frá upphafi í starfsemi þess. Árangurinn væri sá að 28% af 450 starfsmönnum væru konur, 34% í framleiðslustörfum og 27% í framkvæmdastjórn. Þetta er besti árangur í jafnréttismálum sem náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur á að um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða," sagði Jóhanna.
|
|
|
Evrópusamtök atvinnulífsins hvetja til alþjóðlegra aðgerða
Fjármálakrísan stingur nú víða niður fæti en þjóðir heims finna fyrir afleiðingum hennar í auknum mæli. Mun hagvöxtur í heiminum dragast umtalsvert saman sökum hennar. Aðkoma ríkisvaldsins að atvinnulífi hefur vaxið víða um heim og eru fjölmargir þættir í starfsumhverfi fyrirtækja til endurskoðunar. Evrópusamtök atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) hvetja til þess í ljósi núverandi aðstæðna - að brugðist verði við yfirstandandi vanda á yfirvegaðan hátt með alþjóðlegri samvinnu svo endurvekja megi traust í viðskiptum, auka hagvöxt og fjölga störfum.
|
|
|
Hlutastörf raunhæfur kostur
Alþingi hefur samþykkt frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar. Er þar verulega komið til móts við þá launamenn sem semja um lækkun starfshlutfalls og þeim gefinn kostur á mun hærri greiðslum úr Atvinnuleysistryggingasjóði en núgildandi reglur gera ráð fyrir. Samtök atvinnulífsins hafa hvatt fyrirtækin til að skoða vandlega þann kost að bjóða starfsmönnum upp á lægra starfshlutfall, þar sem því verður við komið, og draga þannig úr fjölda uppsagna.
Viðskiptasetur opnað til að efla atvinnulíf
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur opnað viðskiptasetur í samvinnu við Landsbankann og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja. Viðskiptasetrið er kallað Torgið en opnun þess er liður í samningi sem Samtök atvinnulífsins undirrituðu ásamt Nýsköpunarmiðstöð og SSF í október. Á Torginu munu einstaklingar fá aðstöðu aðstöðu og umgjörð til að vinna að viðskiptahugmyndum. Torgið verður opnað mánudaginn 17. nóvember. Fólk með viðskiptahugmyndir á öllum sviðum er hvatt til að sækja um aðstöðu.
|
|
|
Ákvarðanir um framtíð fyrirtækja byggi á samkeppnislegu mati
Samkeppniseftirlitið hefurbeint því til viðskiptabanka sem eru í eigu ríkisins að við töku ákvarðana er varða framtíð fyrirtækja sé höfð hliðsjón af þeim mikilvægu langtímahagsmunum almennings og viðskiptalífsins að virk samkeppni geti þrifist á sem flestum mörkuðum hér á landi. Hefur Samkeppniseftirlitið beint því til bankanna að hafa tilteknar 10 meginreglur til hliðsjónar við slíkar ákvarðanir.
Samrunar og samstarf fyrirtækja við sérstakar aðstæður
Þegar þrengir að í rekstri fyrirtækja eins og gerist nú í kjölfar fjármálakreppunnar er samruni og/eða samstarf fyrirtækja einn þeirra kosta sem litið er til. Samkvæmt upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu eru samkeppnislög sveigjanleg og geta nýst sem tæki til að leysa ýmis mál sem upp koma í aðstæðum eins og þeim sem nú ríkja. Við ákveðin skilyrði er unnt að heimila samruna sem áður var óhugsandi og sama á við um samstarf fyrirtækja. Samkeppniseftirlitið hefur þegar brugðist við með því að ýta til hliðar málum sem geta beðið. Mikilvægt er að huga að aðgangshindrunum á markaði og á þetta bæði við um stjórnvöld og eins þarf að skoða eðli markaða m.t.t. þessa.
|
|
|
Unnið að tillögum um stjórnarhætti nýrra ríkisbanka
Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands áttu frumkvæði að því að setja fram leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja fyrir röskum fimm árum síðan. Með þessum leiðbeiningum var stefnt að því að skapa meiri festu og gegnsæi í stjórn fyrirtækja og efla traust. Mörg fyrirtæki tóku upp þessar leiðbeiningar en þær verða án efa fyrirferðarmeiri í umræðu um stjórnun fyrirtækja hérlendis á komandi misserum. Ástæðan er einfaldlega sú að nú skiptir miklu að byggja upp traust á íslenskum fyrirtækjum og opna þannig smám saman fyrir erlent fjármagn til starfsemi þeirra og fjárfestinga. Nú hafa þessi sömu samtök ásamt Kauphöll Íslands hafið vinnu við gerð tillagna um stjórnarhætti hinna nýju ríkisbanka.
|
|
|
Starfsmenntaverðlaunin til Samskipa
Samskip hlutu starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki fyrirtækja og félagasamtaka fyrir árið 2008 og fræðslusetrið Starfsmennt í flokki skóla og fræðsluaðila. Undanfarin ár hafa Samskip boðið uppá öflugt og fjölbreytt nám og sérsniðna fræðslu fyrir ákveðna starfsmannahópa. Þá hafa Samskip stofnað Flutningaskóla Samskipa en þar fer fram sérhæft einingametið nám fyrir starfsmenn sem eiga stutta formlega skólagöngu að baki.
|
|
|
Forskráningu efna og efnablanda að ljúka
Fyrir nokkru tók gildi hér á landi ný löggjöf ESB um efni og efnablöndur (REACH). Einfaldari reglur en ella gilda um þau efni og efnablöndur sem eru forskráð fyrir 1. desember nk. og forskráningin því afar mikilvæg. Aðeins örfá íslensk fyrirtæki höfðu nýtt sér forskráningu þann 1. nóvember.
|
|
|
Adolf Guðmundsson nýr formaður LÍÚ
Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyðisfirði, var kjörinn formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna á 69. aðalfundi samtakanna. Adolf tekur við formennsku af Björgólfi Jóhannssyni sem verið hefur formaður LÍÚ síðastliðin fimm ár.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf |