![]() |
| 10. tbl. 2004 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Stefnir í mikla framleiðniaukningu
Undanfarin misseri hefur starfandi fólki fækkað á vinnumarkaði samfara miklum hagvexti þannig að nú stefnir í 6% framleiðniaukningu í ár. Þótt fækkun starfa sé áhyggjuefni þá er þessi mikla framleiðniaukning mjög ánægjuleg tíðindi. Kröft-ugur framleiðnivöxtur er lífsnauðsynlegur, ekki síst í heimi hnattvæðingar, þar sem samkeppni milli ríkja fer sífellt harðnandi. Aukin skilvirkni eykur arðsemi fyrirtækja og leiðir til aukinna fjárfestinga sem aftur skapa ný störf.
Verslað með losunarkvóta
Innan ESB versla fyrirtæki nú með framseljanlega kvóta á losun koltví-sýrings, sem úthlutað hefur verið fyrir árin 2005-2007, til undirbúnings Kyoto bókuninni sem tekur gildi árið 2008. Ísland er aðili að bókuninni en allar líkur eru á að landið uppfylli ákvæði hennar með almennum aðgerðum. Óvíst er hvort tilskipun ESB um kvótakerfi verður tekin upp í EES.
|
|
|
Þungar refsingar vegna skattalagabrota – breytinga þörf
Gera verður kröfu um lágmarkssamræmi milli skattalagabrota og refsi-viðurlaga, segir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. Lágmarkssekt vegna virðisaukaskattsskulda er þannig tvöföld fjárhæð á gjalddaga, án tillits til aðstæðna hverju sinni. Nýlega var forsvarsmaður fyrirtækis sektaður um 121 milljón króna, þótt einungis 8,5 milljónir stæðu eftir af skattskuld. Þá segir Ragnar óviðunandi þá mismunun ríkinu í hag sem í þessu felst gagnvart öðrum kröfuhöfum.
|
|
|
Aukið frelsi í þjónustuviðskiptum
ESB hyggst auka frelsi í þjónustuviðskiptum, sem þegar er til staðar í orði en ekki alltaf á borði, m.a. með því að festa í sessi gagnkvæma viðurkenningu á lögum og reglum á því sviði og draga þannig úr skriffinsku. Leyfi í einu landi verður leyfi í þeim öllum. Ástæða er til að taka fram að tilskipunin mun engin áhrif hafa á kjör erlends starfsfólks hér á landi, sem áfram verða skv. íslenskum lögum og kjarasamningum.
|
|
|
Mótframlag í lífeyrissjóð í 7% um áramót
Um næstkomandi áramót mun mótframlag vinnuveitenda í samtryggingar-sjóði lífeyrissjóða hækka úr 6% í 7% skv. flestum þeim kjarasamningum sem Samtök atvinnulífsins hafa gert við viðsemjendur sína. Á sama tíma fellur niður skylda vinnuveitanda til að greiða 1% fast framlag í séreignar-sjóð, án framlags starfsmanns.
Samið við fiskimenn
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli sjómanna og útvegsmanna. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, er samningurinn skref inn í framtíðina og þótt samningurinn kosti útvegsmenn talsverða fjármuni, skapist með honum möguleikar á hagræðingu sem eigi að geta skilað báðum aðilum meiri tekjum.
Uppfærðir kjarasamningar á vef SA
Á vinnumarkaðsvef SA, sem opinn er félagsmönnum, er nú að finna uppfærða nokkra af helstu heildarkjarasamningum SA með þeim breytingum sem orðið hafa árið 2004. Samningar þessir hafi einnig verið prentaðir og sendir félagsmönnum.
Kaupmáttur jókst um 0,7%
Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 4,0% milli 2. ársfjórðungs 2003 og 2. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun Kjararannsóknar-nefndar. Á sama tíma hækkaði vísitala neyslu-verðs um 3,3% og samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 0,7%. Þessi niðurstaða markast nokkuð af því að verslunar-menn og iðnaðarmenn fengu launahækkanir á miðjum fjórðungnum skv. nýgerðum kjarasamningum, en kjarasamningar verkafólks voru að fullu komnir til framkvæmda þegar þessi mæling var gerð.
Kaupmáttur lágmarkslauna aldrei verið meiri
Í samningunum síðastliðið vor hækkuðu lágmarkslaun í 100.000 kr. á mánuði. Kaupmáttur lágmarkslauna hefur aldrei verið meiri en á þessu ári og var nú í september 70% meiri en hann var fyrir áratug, í ársbyrjun 1995. Kaupmáttur lágmarkslaunanna hefur aukist tæplega tvöfalt meira en kaupmáttur almennra launa skv. launavísitölu Hagstofu Íslands, sem hefur aukist um 38% á sama tíma.
|
|
|
Lóð á vogarskálina - ábendingum má skila til 5. nóv.
Þann 17. nóvember nk. munu hollvinir hins gullna jafnvægis veita árlega viðurkenningu fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. Frestur til að senda rökstudda ábendingu um aðila sem hlotið gætu viðurkenninguna rennur út 5. nóvember.
|
|
|
Opinberir aðilar fylgi markaðri launastefnu
Í ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva er áhersla lögð á mikilvægi aðhalds í opinberum útgjöldum og á varðveislu stöðugleika í íslensku efnahagslífi, en í því sambandi muni reyna á að hið opinbera fylgi eftir markaðri launastefnu í landinu. Þá er fjallað um rannsóknir og opinbert eftirlit.
Afnám línuívilnunar, niðurfelling veiðigjalds...
Á aðalfundi LÍÚ voru samþykktar ályktanir um afnám línuívilnunar, auknar loðnurannsóknir, niðurfellingu veiðigjalds, framsal aflaheimilda, meðalafla við kolmunnaveiðar, eftirlitsiðnað og hvalveiðar.
|
|
|
Forsendur stöðugleika í íslensku efnahagslífi
Í erindi á kynningarfundi Impregilo um áhrif stórframkvæmda á Austurlandi á íslenskt efnahagslíf fjallaði Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmda-stjóri SA, um forsendur þess að það tækist að viðhalda efnahagsstöðug-leika á næstu árum. Sagði hann mikilvægustu aðgerðina gegn ofþenslu á vinnumarkaði vera lipra og snurðulausa útgáfu atvinnuleyfa og vakti athygli á að hlutfall erlends starfsfólks við þessar framkvæmdir hefur hingað til verið mun hærra en spár hafa gert ráð fyrir.
|
|
|
Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands sameinaðir
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing menntamála-ráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins og stjórnenda Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands um stofnun nýs háskóla með samruna skólanna tveggja. Stofnað verður einkahlutafélag og verða SA, SI og VÍ hluthafar.
|
|
|
Umsögn SA um frumvarpsdrög viðskiptaráðherra
Samtök atvinnulífsins sendu viðskiptaráðuneytinu á dögunum ítarlega umsögn um frumvarpsdrög viðskiptaráðherra til breytinga á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög. Samtökin styðja flestar þær breytingartillögur sem þar koma fram en telja óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við nokkur atriði. Umsögnin er vistuð á umsagnasíðu sa.is og hana má nálgast hér (pdf-skjal). Skoðun á þingmáli?
|
|
|
Samningaleiðin skilar varanlegri árangri
Stéttir á almennum vinnumarkaði hafa almennt verið að beita verkfallsvopninu af mikilli varkárni, enda hafa þær lært af langri og oft allbiturri reynslu og vita að þegar upp er staðið skilar samningaleiðin varanlegri árangri, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, m.a. í erindi á fundi Frjálshyggjufélagsins um verkföll. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að menn virtu leikreglur í verkföllum.
2,6% atvinnuleysi í september
Í septembermánuði voru skráðir 85.538 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.891 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,6% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,9% í ágúst sl. og 2,7% í september 2003. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið aukist heldur í október og verði á bilinu 2,6-2,9%.
|
|
|
Nýr móttökuritari til SA
María Huldarsdóttir hefur hafið störf sem móttökuritari hjá Samtökum atvinnulífsins. María er tækniteiknari að mennt og hefur m.a. starfað hjá raftækjaversluninni Expert og hjá Húsasmiðjunni, við hönnun innréttinga, tilboðsgerð o.fl.
|
|
|
Mikil fjölgun ferðamanna
Samkvæmt talningu Ferðamálaráðs fyrir fyrstu þrjá fjórðunga ársins 2004 hefur fjöldi erlendra ferðamanna um Leifsstöð aukist um 14,4% miðað við sömu mánuði árið 2003, eða úr um 260.000 í um 297.000.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum |