![]() |
| 3. tbl. 2005 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Nýtt eftirlit án lagastoðar?
Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega nýju eftirliti Aðfangaeftirlitsins með útfluttu fiskmjöli og lýsi. Samtökin telja þetta nýja eftirlit og gjaldtöku ekki eiga sér neina stoð í lögum. Dæmi er um að einu sjávarútvegsfyrir-tæki sé gert að greiða á annan tug milljóna á ári í ný eftirlitsgjöld. Inn-heimta eftirlitsgjaldanna er nú fyrir dómstólum. Sjávarútvegsráðuneytið telur þetta nýja eftirlit bæði ólögmætt og óþarft.
Garðabær sker sig úr
|
|
|
Af erlendu starfsfólki og svartri atvinnustarfsemi
Það er að sjálfsögðu með öllu óþolandi fyrir heiðarleg fyrirtæki að þurfa að keppa við aðila sem fara framhjá lögum og reglum, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA. Hún segir slíka starfsemi ekki eiga neinn rétt á sér og að hana beri að uppræta. Slík starfsemi megi hins vegar ekki verða til þess að kasta rýrð á þá útlendinga sem hér starfa á eðlilegum forsendum og þá vinnuveitendur sem nýta sér krafta erlends starfsfólks eftir löglegum leiðum.
|
|
|
Aðalfundur SA þriðjudaginn 3. maí á Nordica
|
|
|
Endurskoða þarf hlutverk Íbúðalánasjóðs
Bæði Seðlabankinn og SA hafa ítrekað bent á að í stað þess að hækka almenn lán Íbúðalánasjóðs væri fyllsta þörf á að endurskoða hlutverk sjóðsins, en hækkun húsnæðisverðs skýrir um helming allrar hækkunar vísitölu neysluverðs síðustu 12 mánuði. Ríkið er þarna í mótsagnarkenndu hlutverki, þar sem Íbúðalánasjóður keppir um útlán við fyrirtæki á frjálsum markaði á meðan Seðlabankinn eykur aðhald peningastefnunnar með hækkun stýrivaxta.
|
|
|
Hættulega rangur skilningur á kapítalismanum
Talsmenn aukinnar félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja eiga það sameiginlegt að byggja á hættulega röngum skilningi á kapítalismanum, segir í leiðara vikuritsins Economist. Heiðarleg fyrirtæki sem virða lög og reglur og starfa á samkeppnismarkaði þjóna stöðugt almannahag, án þess þó að hafa það beinlínis að markmiði. Skaðleg góðvild er algeng niðurstaða áherslu á aukna félagslega ábyrgð.
ESB: 2006 verði ár hreyfanleika á vinnumarkaði
Framkvæmdastjórn ESB áformar að lýsa árið 2006 ár hreyfanleika á vinnumarkaði og stuðla þannig að því að fólk nýti sér í auknum mæli réttinn til að sækja sér vinnu í öðrum aðildarríkjum. Tilgangur þess er að auka skilvirkni á evrópskum vinnumarkaði og stuðla þannig að auknum hagvexti og þar með bættum lífskjörum.
|
|
|
Skýrsla um skattsvik: niðurstöður á veikum grunni
Niðurstöður skýrslu starfshóps um umfang skattsvika hér á landi eru því miður á veikum grunni byggðar og geta því með engu móti myndað grundvöll að svo róttækum breytingum sem hópurinn leggur til, segir í umsögn SA. Virðist í raun sem tillögurnar séu óskalisti þeirra embættis-manna sem starfshópinn skipuðu, en þær miða gjarnan að auknu eftirliti og valdheimildum til þeirra eigin embætta.
Skoðun á þingmáli?
SA berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar og eru upplýsingar um umsagnarferlið birtar á vef samtakanna, þ.e. hvenær mál barst samtökunum, hver sé ábyrgðar-maður málsins og hvenær það sé afgreitt. Félagsmenn SA sem vilja hafa áhrif á gerð umsagnar eru hvattir til að hafa samband við ábyrgðarmann.
|
|
|
Aðkoma lífeyrissjóða að uppbyggingu sprotafyrirtækja
Það þýðir ekki að höfða til samvisku lífeyrissjóða þegar þeim eru kynnt fjárfestingartækifæri. Hlutverk þeirra er að ávaxta sitt pund og greiða lífeyri. Þetta kom fram í máli Ara Edwald framkvæmdastjóra SA á sprota-þingi, þar sem hann fjallaði um aðkomu lífeyrissjóða að uppbyggingu sprotafyrirtækja. Ari sagði þó að langtímasjónarmið lífeyrissjóða hlytu að meta einhvers sköpun framtíðarfjárfestinga, störf og iðgjöld. Hann sagði eðlilegt lagaumhverfi skorta hér á landi fyrir slíkar fjárfestingar.
|
|
|
Nýir kjarasamningar
Undanfarnar vikur hafa verið undirritaðir nokkrir samningar fyrir fyrirtæki innan SA sem hafa sérstaka kjarasamninga við verkalýðsfélög, eitt eða fleiri. Samningarnir eru yfirleitt til fjögurra ára og gilda til nóvemberloka 2008. Fyrirtækin eru Sementsverksmiðjan, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Björgun, Landssíminn, Íslenska útvarpsfélagið, Steinullarverksmiðjan, Flugfélag Íslands, ISAL og Íslandspóstur. Samningur vegna starfsfólks Íslenska járnblendifélagsins var felldur í atkvæðagreiðslu og eru viðræður hafnar um breytingar á honum. |
|
|
Nýta megi endurnýtanlegar orkulindir
Mikilvægt er að skuldbindingar um minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda nái til fleiri ríkja en nú er, þar á meðal til Bandaríkjanna og landa á borð við Indland og Kína. Þá er afar mikilvægt að Íslendingar og aðrir fái áfram að nýta endurnýtanlegar orkulindir. Þetta er meðal þess sem fram komi í máli Péturs Reimarssonar frá SA á málþingi um Kyoto-bókunina.
|
|
|
Styrkir vegna starfsmenntunar
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu. Í ár njóta forgangs umsóknir sem snúa að tækifærum miðaldra og eldra fólks til starfsmenntunar, og að yfirfærslu þekkingar og reynslu innan fyrirtækja og stofnana. Til úthlutunar eru 55 milljónir og umsóknarfrestur er til 18. mars.
Meirihluti vill léttvín og bjór í matvöruverslanir
Meirihluti þjóðarinnar vill geta keypt léttvín og bjór í matvöruverslunum. Samkvæmt niðurstöðum í nýjum Þjóðarpúls Gallup eru 59% fullorðinna Íslendinga hlynnt afnámi einkasölu ríkisins á smásölu léttvíns og bjórs. Þessi niðurstaða er sambærileg við fimm aðrar sambærilegar kannanir sem gerðar hafa verið síðastliðin fimm ár. Sjá nánar á vef SVÞ.
3% atvinnuleysi í janúar
Í janúar voru skráðir 91.369 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.352 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til saman-burðar mældist atvinnuleysið 2,7% í desember sl. og 3,7% í janúar 2004.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf |