![]() |
5. tbl. ISSN 1670-2220 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Afstýrum kreppu og atvinnuleysi
Gengislækkun krónunnar og mikil hækkun á verðlagi í kjölfarið hafa skapað nýjar og lakari forsendur fyrir íslenskt atvinnulíf, heimilin og þjóðarbúið allt. Mikilvægasta verkefnið framundan er að vinna þannig úr vandanum að stöðugleiki og atvinna haldist eftir því sem frekast er kostur. Brjótast þarf út úr því umsátursástandi sem ríkir um íslenskan fjármálamarkað og tryggja atvinnulífinu aðgang að erlendu lánsfé á eðlilegum kjörum. Gengislækkunin má ekki setja í gang nýja verðbólguskrúfu með víxlhækkunum launa og verðlags heldur verður að byggja lífskjör þjóðarinnar upp á nýjan leik á traustum grunni. Mestu máli skiptir að hjól atvinnulífsins fái að snúast þannig að atvinna haldist. Þannig verða lífskjörin best tryggð og forsenda sköpuð til að ná því til baka sem tapast hefur og hefja nýja sókn til bættra lífskjara. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA.
|
|
|
Stuðningur við matvælalöggjöf ESB
Samtök atvinnulífsins, Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök fiskvinnslustöðva styðja eindregið að leidd skuli í lög hér á landi matvælalöggjöf Evrópusambandsins. Meginatriði löggjafarinnar er að ekki er lengur greint á milli sjávarafurða, búfjárafurða og annarra matvæla heldur gilda í meginatriðum sömu kröfur um framleiðslu matvæla. Þetta tryggir jafnari samkeppnisstöðu íslenskrar matvælaframleiðslu gagnvart framleiðslu á EES svæðinu og skapar fyrirtækjum aukna möguleika til að flytja inn hráefni til framleiðslu sinnar, aukna möguleika til nýsköpunar, vöruþróunar og almennra viðskipta. Að auki greiðir löggjöfin leið heilnæmra íslenskra landbúnaðarafurða á innri markaðinn í Evrópu. Þrátt fyrir almennan stuðning sem samtökin veita frumvarpinu gera þau athugasemdir við fjölmörg efnisatriði sem tengjast eftirliti, gjaldtöku og fleiru.
Fjarvistir vegna veikinda jukust 2007
Veikindafjarvistir jukust á árinu 2007 hjá fyrirtækjum sem nota þjónustu Heilsuverndarstöðvarinnar við skráningu og greiningu fjarvista eftir að hafa farið minnkandi árin þar á undan. Starfsmenn voru að meðaltali fjarverandi 8,8 vinnudaga vegna veikinda árið 2007 sem nemur 3,9% af heildarvinnudögum. Starfsmenn á miðjum aldri og eldri eru síður fjarverandi vegna veikinda en yngra starfsfólkið og eru yngri aldurshópar tvöfalt meira frá vinnu en þeir eldri. Yngra fólk er oftar fjarverandi frá vinnu en þeir eldri en skemmri tíma í einu, en langtímafjarvistir fara vaxandi með aldri. Konur fá leyfi vegna veikinda barna í mun meira mæli en karlar og er skiptingin 68% á móti 32%, en hlutur karla fer þó vaxandi. Algengasta ástæða veikindafjarvista eru pestir eða flensur sem skýra fjórðung veikindafjarvista.
|
|
|
Inn í framtíðina á aðalfundi SA 2008
Vel á fimmta hundrað karla og kvenna mættu á aðalfund SA sem fram fór í Hafnarhúsinu 18. apríl - fjölmennasta aðalfund samtakanna frá upphafi. Yfirskrift fundarins var Út úr umrótinu - inn í framtíðina. Á fundinum flutti Ingimundur Sigurpálsson, fráfarandi formaður SA, ávarp auk Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, en það var hlutverk þriggja kvenna að líta til framtíðar á fundinum og deila sýn sinni með aðalfundargestum. Þetta voru þær Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans og Ólöf Nordal, alþingismaður. Erindin og upptökur af þeim má nú nálgast á vef SA á sérstakri aðalfundarsíðu.
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins 2008 - 2009
Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2008 til 2009. Nýir koma inn í stjórnina Árni Gunnarsson Flugfélagi Íslands ehf., Halldór J. Kristjánsson Landsbanka Íslands hf., Ólafur Rögnvaldsson Hraðfrystihúsi Hellissands, Sigurður Viðarsson Tryggingamiðstöðinni hf. Úr stjórninni ganga Bjarni Ármannsson Glitni banka hf., Björgólfur Jóhannsson Landssambandi ísl. útvegsmanna, Helgi Bjarnason Sjóvá og Jón Karl Ólafsson Icelandair.
Þór Sigfússon kjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA 18. apríl 2008 var Þór Sigfússon kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin fór fram með rafrænum hætti og var þátttaka góð. Þór var rétt kjörinn formaður starfsárið 2008-2009 með 94% greiddra atkvæða. Þór tekur við formennsku af Ingimundi Sigurpálssyni. Ingimundur var fyrst kjörinn formaður SA á aðalfundi samtakanna árið 2003 og tók þá við að Finni Geirssyni sem gegnt hafði formennsku frá stofnun Samtaka atvinnulífsins í september 1999. |
|
|
Ný framkvæmdastjórn SA 2008-2009
Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar SA var ný framkvæmdastjórn samtakanna kjörin fyrir starfsárið 2008-2009. Bjarni Ármansson gengur úr framkvæmdastjórninni en í hans stað kemur Halldór J. Kristjánsson. Vilmundur Jósefsson var endurkjörinn varaformaður Samtaka atvinnulífsins.
|
|
|
Stjórn SA hvetur til samstillingar ábyrgra aðila
Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar Samtaka atvinnulífsins komu fram þungar áhyggjur af stöðu efnahagsmála. Vandi á fjármálamörkuðum, hátt vaxtastig, fyrirsjáanlegur samdráttur í umsvifum og atvinnu, vaxandi verðbólga erlendis, veik staða krónunnar og mikil verðbólga innanlands um þessar mundir vegna gengislækkunar eru þættir sem hafa gríðarleg áhrif á afkomu fyrirtækja og kjör launafólks. Fyrirsjáanlegt er að aðlögun að breyttum aðstæðum verði erfið og taki tíma. Stjórnin telur afar brýnt að allir aðilar sem áhrif hafa á framvinduna á næstu mánuðum og misserum, þ.e. ríkisstjórn, stjórnarandstaða, sveitarfélög og aðilar á almennum og opinberum vinnumarkaði stilli saman strengi sína með það að markmiði að draga úr verðbólgu og koma í veg fyrir að háar verðbólguvæntingar festist í sessi.
Umsátrinu um Ísland verði aflétt
Íslenska hagkerfið er lokað um þessar mundir og íslenskt atvinnulíf hefur ekki lengur aðgang að erlendu lánsfé nema á afarkjörum. Við þessi skilyrði geta íslensk fyrirtæki ekki vikið sér undan háum vöxtum innanlands og kjör þeirra hafa versnað verulega. Það er líkt og vextir hafi hækkað um nálægt 10% á stuttum tíma og það virkar eins og sleggja á atvinnulífið. Ástandið birtist í raun sem umsátur um Ísland sem er nauðsynlegt að aflétta sem fyrst. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, á morgunfundi Viðskiptablaðsins.
|
|
|
Vel heppnuð jafnréttisnámskeið SA
Samtök atvinnulífsins hafa undanfarnar tvær vikur boðið félagsmönnum sínum upp á námskeið um jafnréttisáætlanir fyrirtækja, gerð þeirra og framkvæmd samkvæmt nýjum lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Námskeiðin voru afar vel sótt og heppnuðust vel en um var að ræða vinnustofu þar sem þátttakendur tóku virkan þátt en efni námskeiðanna var lagað að þörfum þátttakenda hverju sinni og fyrirtækjum þeirra. Fjallað var sérstaklega um samþættingu á gerð jafnréttis- og framkvæmdaáætlana skv. lögunum við stefnumótun fyrirtækja og mannauðsstjórnun þeirra. Leiðbeinendur voru frá Attentus, mannauði og ráðgjöf auk þess sem Samtök atvinnulífsins kynntu sjónarmið sín á sviði jafnréttismála.
|
|
|
Jákvæð þróun á íslenskum vinnumarkaði
Íslenskur vinnumarkaður er opnari og fjölbreyttari en áður og tækifæri fólks af erlendum uppruna til að láta til sín taka eru betri en áður. Þetta segir Tanya Dimitrova en hún er leikskólastjóri á leikskólanum Berg á Kjalarnesi. Samtök atvinnulífsins ræddu við hana fyrir aðalfund SA í tengslum við útgáfu á ritinu Baráttan um besta fólkið. Til að lýsa reynslu sinni tók hún saman pistil sem nú er hægt að horfa á hér á vef SA. Í pistlinum lýsir hún því hvernig hún sneri baki við kommúnismanum í Búlagaríu árið 1989 og hélt á vit ævintýranna til Íslands. Tanya lýsir því hvað tók við henni hér, leið hennar um vinnumarkaðinn og hvernig hún tókst á við þær áskoranir sem fylgja því að læra íslensku og sækja sér aukna menntun.
Kennarasamningur dýr
"Þetta er mjög ríflegur samningur," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í Fréttablaðinu, um nýgerðan kjarasamning grunnskólakennara. "Það hafa engin fyrirtæki efni á að gera svona samning og ég held reyndar að sveitarfélögin hafi það ekki heldur. Málið snýst líka um hvort þessi samningur er fyrirmynd annarra samninga hjá opinberum aðilum." Einnig var rætt við Vilhjálm um málið í hádegisfréttum fréttastofu Útvarps. Þar kom m.a. fram hjá Halldóri Halldórssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, að erfitt verði fyrir mörg sveitarfélög að greiða kennurum laun samkvæmt þessum nýja samningi.
|
|
|
Baráttan um besta fólkið
Samtök atvinnulífsins hafa gefið út nýtt rit Baráttan um besta fólkið þar sem fjallað er um alþjóðavæðingu vinnumarkaðarins. Þar kemur m.a. fram að Ísland stendur Norðurlöndunum í heild að baki við að takast á við áskoranir hnattvæðingarinnar. Ísland stendur vel að vígi í alþjóðlegum samanburði hvað varðar laun og skatta en hátt verðlag og smæð landsins eru ekki aðlaðandi. Á heildina litið er samkeppnisstaða Íslands um hæft starfsfólk í meðallagi þegar litið er til kaupmáttar launa eftir skatt, en baráttan um besta fólkið mun fara harðnandi.
|
|
|
Vettvangur atvinnulífs á Vesturlandi
Þriðjudaginn 6. maí var stofnað til vettvangs atvinnulífsins á Vesturlandi í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Markmiðið er að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum fyrirtækja á Vesturlandi, stuðla að því að atvinnustarfsemi þar sé samkeppnishæf og að áframhaldandi vöxtur og fjölbreytileiki atvinnulífsins verði tryggður. Vettvangurinn er opinn félagsmönnum SA og grundvallast m.a. á nýjum áherslum Samtaka atvinnulífsins í atvinnu- og byggðamálum – Hagvöxt um land allt. Samtök atvinnulífsins, Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Vaxtarsamningur Vesturlands styðja við framtakið. |
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf |