5. tbl. 2006
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Ógegnsæ launakjör þingmanna og ráðherra
Varanleg sátt um launakjör þingmanna og ráðherra mun ekki skapast nema að eftirlaunakjör þeirra verði færð til samræmis við það sem aðrir landsmenn búa við og umframkjör verði færð inn í grunnlaun þeirra. Slík breyting skapaði grunvöll fyrir raunhæfum samanburði á föstum mánaðarlaunum kjörinna fulltrúa við aðra hópa sem eðlilegt er talið að laun þeirra séu borin við. Umframlífeyriskjör þingmanna í dag eru ígildi 51 milljónar króna starfslokagreiðslu miðað við sex kjörtímabil, borið saman við lífeyrisréttindi í Lífeyrissjóði verzlunarmanna og umframlífeyriskjör ráðherra sem gegnir embætti í þrjú kjörtímabil eru ígildi 102 milljóna króna. Umframlífeyriskjör forsætisráðherra sem situr í tvö kjörtímabil eru ígildi 113 milljóna króna starfslokagreiðslu.
Frumvarpi um aukna gjaldtöku af atvinnurekstri mótmælt
Samtök atvinnulífsins mótmæla eindregið frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 96/1997, um eldi og heilbrigði sláturdýra (heilbrigðiseftirlit og eftirlitsgjald). Í því felast víðtækar heimildir Landbúnaðarstofnunar og landbúnaðarráðherra til að innheimta gjald af atvinnurekstri þannig að jafngildir framsali skattlagningarvalds verði frumvarpið að lögum. Á það verður látið reyna.
Krónan í samkeppni við veðrið
Íslenska krónan er nú í harðri samkeppni við veðrið sem umræðuefni á Íslandi, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann fjallar um kosti og galla krónu gagnvart evru og bendir m.a. á að með evru myndi vinnumarkaðurinn bregðast við sveiflum í hagkerfinu með atvinnustigs- í stað kaupmáttarbreytinga. Ef það tekst ekki að halda verðbólgunni niðri langtímum saman þá verður evran meira aðlaðandi kostur en ella.
Í okkar valdi að koma í veg fyrir langvinnt samdráttarskeið
„Stjórnvöld, bæði á vettvangi ríkis og sveitarfélaga, verða að endurskoða sín framkvæmdaáform og forgangsraða þeim með það að markmiði að auka trúverðugleika efnahagsstefnunnar,“ sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. Hann sagði blikur á lofti í verðlagsmálum og að ástæða væri til að óttast langvinnt skeið samdráttar í efnahagslífinu ef verðbólgan næði að festast í sessi. Slík þróun væri þó fjarri því óhjákvæmileg og í okkar valdi að koma í veg fyrir hana.
Er evran svarið?
Í tilefni af Evrópudeginum býður Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi, í samstarfi við Euro Info skrifstofuna, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, til morgunverðarfundar um evruna mánudaginn 8. maí n.k. undir yfirskriftinni: Er evran svarið? Hlutverk evrunnar í alþjóðavæðingunni. Aðalræðumaður á fundinum er Hervé Carré, aðstoðarframkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu efnahagsmála hjá ESB og einn af hugmyndasmiðum evrunnar.
Nýsköpun, stöðugleiki, bjartsýni
Ánægja með bjartsýni unga fólksins, mikilvægi efnahagslegs stöðugleika og áhersla á mikilvægi nýsköpunar, rannsókna, hugmynda og hönnunar. Þetta er meðal þess sem áhersla var lögð á í umræðum í opinni dagskrá aðalfundar SA. Þátt tóku þau Eggert B. Guðmundsson forstjóri HB Granda, Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins, Guðbjörg Gissurardóttir framkvæmdastjóri Hönnunarvettvangs og Sigríður Olgeirsdóttir framkvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss. Fundarstjóri og stjórnandi umræðna var Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans.
Unga fólkið bjartsýnt á framtíð Íslands
Könnun PSN-samskipta meðal 19-20 ára Íslendinga sýnir að hugur er í unga fólkinu og jákvæðni í garð hnattvæðingar, alþjóðlegrar samkeppni og framtíðar Íslands. 86% aðspurðra telja hnattvæðingu og vaxandi alþjóðlega samkeppni hafa góð áhrif á sín tækifæri í framtíðinni, en einungis tæp 4% telja áhrifin slæm. Lang flestir vilja starfa hjá einkafyrirtæki eða fara út í sjálfstæðan atvinnurekstur, samtals 78%. 13% vilja helst starfa hjá ríki eða sveitarfélögum.
Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu formanns samtakanna. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts og sitjandi formaður SA, hlaut 99,2% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður SA starfsárið 2006 til 2007. Kosningaþátttaka var 55,3%.
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2006 til 2007. Nýir koma inn í stjórnina þeir Jón Karl Ólafsson Icelandair hf., Helgi Magnússon Flügger HarpaSjöfn ehf., Bjarni Ármannsson Glitnir hf., Helgi Bjarnason Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Gunnar Karl Guðmundsson Skeljungur hf. Úr stjórninni ganga þau Ragnhildur Geirsdóttir Promens hf., Þorgeir Baldursson Prentsmiðjan Oddi hf., Óskar Magnússon Tryggingamiðstöðin hf., Hreiðar Már Sigurðsson KB banki hf. og Hjörleifur Jakobsson Egla ehf.
Hnattvæðing: tækifæri og ógnanir
Svokölluð hnattvæðing er ekki eitthvað sem hægt er að velja eða hafna heldur er hún staðreynd sem drifin er áfram af kröftum á borð við gríðarlega öra tækniþróun, mikla fólksfjölgun í þróunarríkjum og gríðarlega aukningu í framleiðni, sagði Quentin Peel, ritstjóri alþjóðamála hjá Financial Times, í ávarpi sínu á aðalfundi SA. Hann sagði hnattvæðinguna einnig valda ýmsum óöryggi og varaði við tilhneigingu til vaxandi verndarstefnu austan hafs og vestan. Mikilvægt væri að senda réttu skilaboðin um kosti alþjóðlegrar samkeppni.
Stækkun ESB dýrmæt „prufukeyrsla“ fyrir hnattvæðingu
Stækkun ESB hefur reynst nýju aðildarríkjunum gríðarlega dýrmæt en einnig haft mjög jákvæð áhrif á atvinnulífið í þeim eldri, skv. nýrri skýrslu Centre for European Reform. Forseti danska starfsgreinasambandsins segir stækkunina hafa verið eins konar „prufukeyrslu“ fyrir hnattvæðinguna. Fyrirtæki í Vestur-Evrópu hafi flutt vinnuaflsfrek störf til austurhluta álfunnar, sem hafi gert þeim kleift að viðhalda samkeppnishæfni sinni og skapa ný störf í staðinn á sviðum þróunar, rannsókna og hönnunar. Skýrslan var unnin fyrir danska starfsgreinasambandið og dönsku samtök iðnaðarins. Bæði samtökin og skýrsluhöfundar telja mikilvægt að flytja þessi skilaboð um jákvæð áhrif stækkunar, en í eldri aðildarríkjunum hafa verið ýmsar efasemdarraddir.
Nýsköpun í öndvegi
Í ræðu sinni á aðalfundi SA fjallaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra m.a. um tilurð Vísinda- og nýsköpunarráðs. „Er það von mín að aðkoma atvinnulífsins að vísindastarfi, rannsóknum og nýsköpun eflist við þessar breytingar, enda nauðsynlegt að atvinnulífið taki höndum saman með háskólum og rannsóknastofnunum í samræmdri sókn ríkis og einkaaðila á þessum mikilvægu og ört vaxandi sviðum íslensks atvinnulífs,“ sagði Halldór. Hann sagði það áskorun til stjórnmálamanna að leita allra leiða til að búa til hagfellt umhverfi fyrir atvinnulífið til þróast og þroskast í.
Hvað er að frumvarpi um RÚV?
Í frumvarpi um RÚV skortir nothæfa skilgreiningu á því hvað RÚV á að gera sem og eftirlit með því hvað það gerir í raun, segir Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá SA, í grein í Morgunblaðinu. Hann segir að Alþingi væri sómi að því að ráða bót á þessu með nútímalegri ákvæðum og forðast nýleg mistök í hliðstæðu máli, en þar vísar hann til nýlegrar niðurstöðu EFTA dómstólsins í máli Íbúðalánasjóðs. Krafa EES samningsins er að ríkisstyrkir raski ekki samkeppni og taldi dómurinn vafa leika á því að fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs stæðist þá kröfu.
SA lýsa undrun á frumvarpi um kjararáð
Í frumvarpi um kjararáð er ákvæði sem heimilar ráðinu að láta launabreytingar þjóðkjörinna manna, dómara og hæst settra embættismanna taka breytingum almennrar launavísitölu. SA lýsa í umsögn sinni undrun á þessu ákvæði frumvarpsins og minna á að  vísitölubinding launa olli miklu tjóni á efnahagslífi landsmanna áratugum saman og að það kostaði gríðarleg átök að afnema hana á níunda áratug síðustu aldar. Samtökin mótmæla þessari heimild frumvarpsins eindregið.
SA aðilar að þróun jafnréttiskennitölu fyrirtækja
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur vegna verkefnisins jafnréttiskennitala fyrirtækjanna. Þróuð verður jafnréttiskennitala 100 stærstu fyrirtækja á landinu og er henni ætlað að sýna hvaða árangri fyrirtækin hafa náð í jafnréttismálum. Að verkefninu standa viðskiptaráðuneytið, SA, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa, auk Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst sem fara mun með framkvæmd verkefnisins.
Ársskýrsla SA á vefnum

 

Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2005-2006, sem dreift var á aðalfundi samtakanna 25. apríl, má nálgast á vef samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmál, kjaramál o.fl.

 

Áhugaverður fyrirlestur Dr. Eagan um umhverfismál
Dr. Patrick D. Eagan prófessor í verkfræði við háskólann í Wisconsin – Madison hélt áhugaverðan fyrirlestur um umhverfismál hjá SA, þann 3. maí, en þar fjallaði hann m.a. um hvernig fyrirtæki geta bætt samkeppnisstöðu sína með því að samtvinna umhverfismál við vöruþróun og framleiðslu. Með í för var eiginkona Dr. Eagan, Lloyd L. Eagan, forstjóri auðlindadeildar fylkisstjórnarinnar í Wisconsin.
Nýr upplýsingavefur um Evrópumál
Evrópufræðasetur Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur hleypt af stokkunum nýjum upplýsinga- og fréttavef um Evrópumál. Á vefnum er að finna margvíslegt fræðiefni um Evrópumál sem og almennar upplýsingar um tengsl Íslands við evrópskt samstarf. Þá er á vefnum rekin fjölbreitt fréttaveita um samstarf Evrópuríkja.
1,5% atvinnuleysi í mars
Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 50.256 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.183 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,6% í febrúar en 2,6% í mars 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið í apríl muni minnka og verða á bilinu 1,2%-1,5%.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf