![]() |
| 5. tbl. 2005 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Vilji forsætisráðherra að lágmarka opinbert eftirlit
Í ræðu sinni á aðalfundi SA tók forsætisráðherra undir sjónarmið SA um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Þetta er fagnaðarefni, enda er aukin hagkvæmni á þessu sviði gríðarlegt hagsmunamál fyrir atvinnulífið, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann nefnir sem dæmi að í dag þarf gjarnan fimm leyfi til að reka eitt veitingahús og segir blasa við að eitt leyfi hljóti að nægja.
|
|
|
Ríki og sveitarfélög borgi reikningana sína!
Ríki og sveitarfélög á Íslandi greiða ekki reikninga á tilsettum tíma og neita að borga dráttarvexti. Forstjóri Tæknivals, Sigrún Guðjónsdóttir, sagði þetta landi og þjóð til skammar á aðalfundi SA. Könnun SA frá 2003 sýndi fram á verulega greiðslutregðu opinberra aðila en vandamálið virðist enn vera til staðar.
Vinnutími á Íslandi hefur styst
Vinnutími hérlendis hefur styst verulega undanfarin ár samkvæmt gögnum Hagstofunnar. Á almennum vinnumarkaði hefur meðalvinnutími karla styst um rúmar tvær klukkustundir frá 1998 en meðalvinnutími kvenna um rúma klukkustund. Litlu munar nú á vinnutíma fullvinnandi karla og kvenna á almennum vinnumarkaði.
Laun kvenna hækkað meira en karla
Samkvæmt launakönnun Hagstofunnar hafa laun kvenna hækkað jafnt og þétt umfram laun karla frá árinu 1997, alls um 58% á móti 48% hækkun hjá körlum. Þessa þróun má að hluta rekja til áherslna í kjarasamningum, svo sem sérstakra hækkana almennra launataxta.
Tekjumunur kynjanna hefur minnkað
Launakönnun Hagstofunnar sýnir að tekjumunur kynjanna hefur minnkað á undanförnum árum. Hlutfall heildarlauna kvenna af heildarlaunum karla jókst úr 74% árið 1998 í 76% árið 2004. Hjá skrifstofufólki hækkaði hlut-fallið hins vegar úr 70% í 77%. Þar gætir eflaust áhrifa aukinnar mennt-unar og aukins hlutar kvenna í stjórnunarstöðum. Almennt er hlutur karla hins vegar enn stærri í stjórnunarstöðum og yfirvinna meiri.
|
|
|
Hagsmunir atvinnulífsins eru almannahagsmunir
|
|
|
Ráðstefna um Basel II og áhrif á fyrirtækin 25. maí
|
|
|
Halda ber áfram að laga skattaumhverfið
|
|
|
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu formanns samtakanna. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts og sitjandi formaður SA, hlaut 99,4% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður SA starfsárið 2005 til 2006. Kosningaþátttaka var 55,3%.Lækkun félagsgjalda SA
|
|
|
Umsvif erlendis þýða sérfræðistörf á Íslandi
Nýjar reglur um titring á vinnustöðum
Hjá Vinnueftirliti ríkisins eru nú í undirbúningi nýjar reglur um varnir gegn áhrifum titrings á vinnustöðum. Um er að ræða vinnu með titrandi vélar, verkfæri eða áhöld og einnig störf þar sem starfsmenn sitja eða standa á titrandi undirlagi, svo sem í vinnuvélum eða flutningabílum. Nánari upplýsingar má nálgast hjá SA, eða koma á framfæri athugasemdum.
Um 500 milljóna kostnaður vegna siglingaverndar
Þann 1. júlí 2004 tóku gildi lög um siglingavernd hér á landi. Lög þessi eiga að tryggja öryggi vöru, skipa og farþega og eru sett til að draga úr ógn vegna hryðjuverka. Ætla má að árlegur kostnaður vegna þeirra geti verið um 500 mkr. og að þessi kostnaður leggist fyrst og fremst á neytendur með því að vöruverð hækkar. Mikilvægt er að gæta ítrustu hagkvæmni við framkvæmdina.
Mikil frumkvöðlastarfsemi á Íslandi
Frumkvöðlastarfsemi á Íslandi er með því hæsta sem gerist meðal hátekjulandanna í heiminum. Nýsköpunarfyrirtæki búa hins vegar við mikinn fjármagnsskort og athygli vekur að hlutfall háskólamenntaðra er lægra í frumkvöðlastarfsemi hér en í öðrum hátekjulöndum. Þetta er meðal niðurstaðna GEM frumkvöðlarannsóknarinnar sem HR vinnur fyrir Íslands hönd með stuðningi frá SA, Nýsköpunarsjóði og forsætisráðuneyti.
|
|
|
Orkugeirinn í Samtök atvinnulífsins
Stjórn SA hefur samþykkt umsókn Samorku um að gerast aðili að SA sem sjálfstætt aðildarfélag. Samorka, samtök raforku-, hita- og vatnsveitna, verður því áttunda aðildarfélag SA og öll 38 aðildarfyrirtæki Samorku verða jafnframt aðildarfyrirtæki SA. Innganga Samorku eflir enn stöðu SA sem heildarsamtaka íslensks atvinnulífs.
|
|
|
Nýir kjarasamningar
Undanfarnar vikur hefur verið gengið frá kjarasamningum við Félag leiðsögumanna og við VSFÍ um kaup og kjör vélstjóra á fiskiskipum. Þá hafa verið undirritaður samningar vegna einstakra aðildarfyrirtækja, þ.e. Íslenska járnblendifélagsins, Flugstöðar Leifs Eiríkssonar, Björgunar, Iceland Express og Kerfóðrunar. Sjá samning við Félag leiðsögumanna Sjá samning við VSFÍ vegna vélstjóra á fiskiskipum |
|
|
Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum
Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram áherslur sínar í ellefu málaflokkum sem varða starfsskilyrði íslenskra fyrirtækja. Um er að ræða niðurstöður víðtæks og kraftmikils málefnastarfs þar sem fjöldi fólks frá aðildarfélögum samtakanna, einstökum fyrirtækjum og fleiri aðilum lögðu drög að stefnu SA, sem vilja tryggja íslensku atvinnulífi samkeppnishæf starfsskilyrði, landsmönnum öllum til hagsbóta.
Ársskýrsla SA 2004 - 2005
Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2004-2005, sem dreift var á aðalfundi samtakanna 3. maí, má nálgast á vef samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmál, kjaramál o.fl. |
|
|
2,6% atvinnuleysi í mars
Í marsmánuði voru skráðir 87.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.799 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,8% í febrúar sl. en 3,5% í mars á síðasta ári.
|
|
|
Fjögur fyrirtæki fá umhverfisviðurkenningu
Orkuveita Reykjavíkur hlaut Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, í ár. Einnig hlutu fyrirtækin Hjá GuðjónÓ, Málning hf. og Prentsmiðjan Oddi viðurkenningar frá ráðuneytinu, sem vill með þessu móti vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði umhverfismála og hvetja þau og önnur til góðra verka á þessu sviði.
Umsóknir í Þróunarsjóð EFTA
Á næstu vikum verður opnað fyrir umsóknir í Þróunarsjóð EFTA. Verkefnin eiga að snúa að efnaminni aðildarríkjum ESB en æskilegt þykir að hluti fjárins gangi til verkefna sem styrki tengslin milli EFTA-ríkjanna og styrkþegaríkjanna. Verkefnin geta m.a. snúið að endurnýtanlegum orkugjöfum, auðlindastjórnun, umhverfismálum og hugbúnaðarlausnum.
Reykbann, markaðsmál, samgöngumiðstöð...
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar samþykkti m.a. ályktun um stöðu greinarinnar þar sem lýst er yfir vonbrigðum með samdrátt í opinberum framlögum til markaðsmála í greininni, ályktun þar sem fagnað er áætlunum um byggingu samgöngumiðstöðvar og ályktun um reykbann á veitingastöðum frá og með 1. júní 2007.
Nýr forstöðumaður ráðinn til Starfsafls
Kolbrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Starfsafls, starfs-menntasjóðs SA og Flóabandalagsins. Kolbrún hefur m.a. starfað við kennslu, verslun og ferðaþjónustu, en undanfarna tvo áratugi hefur hún verið útibússtjóri hjá Landsbanka Íslands.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf |