5. tbl. 2004
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Dýrar kvaðir á apótekum
Vegna umræðunnar um hátt lyfjaverð á Íslandi er fróðlegt að skoða ýmsar ákvarðanir yfirvalda sem eru íþyngjandi fyrir rekstur apóteka. Þannig skulu þau alltaf mönnuð tveimur lyfjafræðingum, en í Danmörku nægir lyfjatæknir. Þá má starfsfólk þeirra ekki samnýta inngang, búnings-, salernis- eða kaffiaðstöðu með öðrum. Þarna er á ferðinni óþarfa reglubyrði og óþarfa kostnaður sem neytandinn ber á endanum.
Fjármagnsmarkaðurinn er samkeppnisstofnun hins frjálsa markaðar
Greinar, þar sem hagnaður er mikill, draga til sín fjármagn og samkeppni. Fjármagnsmarkaðurinn er því samkeppnisstofnun hins frjálsa markaðar. Þetta kemur fram í ritgerð eftir Alan Greenspan, núverandi seðlabanka-stjóra Bandaríkjanna, sem vitnað er til í nýrri skýrslu GJ fjármálaráðgjafar um viðhorf í samkeppnismálum. Skýrsluhöfundur telur sterk rök fyrir afnámi samkeppnislaga.
Samspil aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda
Þríhliða samskipti aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda eru enn mjög mikilvæg, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Eðlisbreyting hafi þó orðið á samskiptum þessara aðila. Kúvending efnahagsstefnu eða íhlutun í stjórn efnahagsmála séu sem betur fer ekki umræðuefni lengur í tengslum við gerð kjarasamninga.
Stöðugleiki mikilvægasta framlagið
Mikilvægasta framlag stjórnvalda til kjara-samningagerðar hefur undanfarinn rúman áratug verið fólgið í stöðugleika, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. Sagði hann áherslur í samskiptum aðila vinnumarkaðar við stjórnvöld hafa tekið miklum breytingum frá því árið 1990, þegar forsenda fyrir gerð kjara-samninga var, að aðilar vinnumarkaðarins tækju höndum saman við stjórnvöld um mótun nýrrar efnahagsstefnu.
Víða má hagræða í opinberu eftirliti
Víða er svigrúm til hagræðingar á sviði eftirlits með atvinnustarfsemi, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, þegar hann kynnti nýja skýrslu samtakanna um eftirlit með atvinnu-starfsemi og tillögur til úrbóta. Sameina mætti eftirlit, samræma framkvæmd, sameina leyfis-veitingar, auka umbun fyrir virkt innra eftirlit fyrirtækja og lækka kostnað.
Skattar fyrirtækja verði ekki yfir 15%
Ef við viljum halda forystuhlut okkar á sviði skattamála eigum við að stefna að því að skattar á fyrirtæki verði ekki yfir 15% í framtíðinni, sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í ræðu sinni á aðalfundi SA. Hann sagði SA gegna lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi og benti á hversu stóran þátt þau ásamt viðsemjendum eiga í þeim stöðug-leika sem nú ríkir í atvinnulífi þjóðarinnar.
Áskorun til ríkisstjórnarinnar
Fimm samtök þeirra sem framleiða, flytja inn, dreifa og selja matvæli hafa sent áskorun til ríkisstjórnarinnar um breytingar á skattlagningu matvæla. Auk Samtaka atvinnulífsins standa að áskoruninni Samtök iðnaðarins, SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Félag íslenskra stórkaupmanna.
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
Á aðalfundi SA var lýst kjöri stjórnar samtakanna fyrir starfsárið 2004 til 2005. Ný koma inn í stjórnina þau Björgólfur Jóhannsson Síldar-vinnslunni, Brynjólfur Bjarnason Landssímanum, Finnur Ingólfsson Vátryggingafélagi Íslands, Grímur Sæmundsen Bláa lóninu, Hjörleifur Jakobsson Olíufélaginu, Hreiðar Már Sigurðsson KB banka, Jens Pétur Jóhannson Rafmagns-verkstæði Jens Péturs, Kristín Jóhannesdóttir Baugi Group og Kristján Björn Garðarsson Kísiliðjunni.
Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu formanns samtakanna. Ingimundur Sigurpálsson, sitjandi formaður, hlaut 99,6% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður SA starfsárið 2004 til 2005. Kosningaþátttaka var 51,3%.
Fyrirtæki setja siðferðisleg viðmið á oddinn
Fyrirtæki leggja vaxandi áherslu á að skapa sér þá ímynd að þau setji siðferðisleg viðmið á oddinn. Öðru vísi njóti þau ekki trausts almennings, neytenda og mögulegs framtíðar-starfsfólks. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Görans Trogen, framkvæmdastjóra hjá sænsku samtökum atvinnulífsins, í erindi hans á aðalfundi SA.
Nýir kjarasamningar
Undanfarnar vikur hafa Samtök atvinnulífsins undirritað nýja kjarasamninga við rafiðnaðar-menn, verslunarmenn, Samiðn og Matvís, auk virkjunarsamnings. Samningurinn við rafiðn-aðarmenn hefur þegar verið samþykktur í atkvæðagreiðslu en atkvæðagreiðsla stendur nú yfir um aðra samninga. 

Sjá nánar um samning við rafiðnaðarmenn. 

Sjá nánar um virkjunarsamning. 

Sjá nánar um samning við verslunarmenn. 

Sjá nánar um samning við Matvís. 

Sjá nánar um samning við Samiðn.
Eftirlit með atvinnustarfsemi – tillögur til úrbóta

 

Skýrsla SA um eftirlit með atvinnustarfsemi þar sem settar eru fram tillögur til úrbóta, almennt og í einstökum atvinnugreinum. Fjallað er um eftirlits-umhverfi rafverktaka, byggingarverktaka, veitinga-húsa, bensínstöðva, fjármálafyrirtækja og fiskeldis-fyrirtækja, um skipaskoðun og matvælaeftirlit. Þá eru dæmi tekin úr fleiri áttum.

Sjá skýrsluna (pdf-skjal).

 

Ársskýrsla SA 2003 - 2004

Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2003-2004, sem dreift var á aðalfundi samtakanna 4. maí, má nálgast á vef samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagmál, kjaramál o.fl.

Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum