![]() |
| 6. tbl. 2005 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Ekkert eftirlit með gjaldskrám sveitarfélaga
Mjög mismunandi er milli sveitarfélaga hversu há gjöld eru innheimt af fyrirtækjum vegna eftirlits með starfsemi þeirra. Almennt er mörg hundruð prósenta munur á hæsta og lægsta gjaldi og dæmi er um að mismunurinn hlaupi á hundruðum þúsunda. Stórlega er dregið í efa að hæstu gjöldin séu í samræmi við kostnað af eftirliti og geta sveitarfélög þanið eftirlitið út að eigin geðþótta – án eftirlits – og sent atvinnulífinu í landinu reikninginn. Sveitarfélög stunda jafnframt mörg hver umfangsmikinn atvinnurekstur og sjá um að hafa eftirlit með eigin starfsemi, sem er ólíðandi.
Ekki erfiðara fyrir eldra fólk að fá vinnu
Ívið meiri líkur eru á því að fólk á aldrinum 50-59 ára fái vinnu í kjölfar atvinnuviðtals, en fólk á aldrinum 25-49 ára, skv. rannsókn dönsku vinnumálastofnunarinnar. Eldra fólkið er sagt búa yfir sveigjanleika, hreyfanleika og stöðugleika í starfi. Þessar niðurstöður koma vel heim og saman við tæplega árs gamla könnun SA.
|
|
|
Markaðurinn er kynblindur
Það væri óneitanlega gaman, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA m.a., ef jafnréttissinnar krefðust einkavæðingar á þeirri þjónustustarfsemi sem stórar kvennastéttir koma að hjá hinu opinbera og hvettu konur til að stofna fyrirtæki til að taka að sér þessa þjónustu og til að leita jafnréttis á eigin forsendum eftir farvegum markaðarins.
|
|
|
Basel II: hærri vextir og aukinn kostnaður fyrirtækja?
Skiptar skoðanir voru um áhrif gildistöku Basel II regluverksins á ráðstefnu sem haldin var um fyrirbærið á vegum Sambands íslenskra spari-sjóða og SA, en það tekur gildi árið 2007. Fjármálafyrirtæki munu þurfa að meta viðskipta-vini sína mun betur og fyrirtæki að gefa þeim mun ítarlegri upplýsingar. Kostnaður af innleiðingu Basel II er ekki ljós en kjör sumra fyrirtækja gætu batnað á meðan kjör annarra gætu versnað. Þolinmæði fjármálafyrirtækja gagnvart vanskilum mun minnka og innheimta verður hert.
|
|
|
Endurskoðun niðurgreiðslu vaxta
OECD hvetur ríkisstjórnina til þess að stefna að meiri afgangi af fjárlögum en nú sé stefnt að. Bæta þurfi hagstjórnarblönduna og draga úr þörf fyrir vaxtahækkanir. Sérstaklega er nefnt að lækka ætti vaxtabætur til að slá á þensluna á fasteignamarkaðnum. Í ljósi lægri vaxta, lengri lánstíma og lægri greiðslubyrði lántakenda, auk þess jafnvægisleysis og verðbólgu sem spennan á fasteignamarkaðnum hefur skapað, er fullt tilefni til að endurskoða vaxtabótakerfið.
|
|
|
Fimmtíu milljarðar í boði á fimm árum
Íslenskum fyrirtækjum stendur til boða, með samstarfi við aðila í þrettán löndum á EES svæðinu, að fjármagna verkefni í þessum löndum með fé úr nýjum þróunarsjóði EFTA. Um sex hundruð milljónum evra verður úthlutað úr sjóðnum á næstu fimm árum, eða um 50 milljörðum íslenskra króna. Sjóðurinn tók til starfa í kjölfar stækkunar ESB og EES og eiga verkefni í nýju aðildarríkjum ESB auk Spánar, Portúgals og Grikklands rétt á styrkjum úr sjóðnum.
UNICE harma höfnun Frakka
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, harma höfnun Frakka á nýrri stjórnarskrá Evrópusambandsins og telja að hið franska nei muni hafa neikvæð áhrif í álfunni. UNICE eru fylgjandi gildistöku hinnar nýju stjórnarskrár og telja hana vera nytsamlegt plagg, þar sem hún sé nauðsynlegur grunnur fyrir gegnsæja, lýðræðislega og skilvirka stjórnsýslu – eitthvað sem Evrópusambandið vanti sárlega.
|
|
|
2.3% atvinnuleysi í apríl
Í apríl voru skráðir rúmlega 74.200 atvinnuleysis-dagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.542 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,3% atvinnuleysi af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í mars sl. og 3,5% í apríl 2004. Atvinnuleysi í apríl hefur ekki mælst jafn lítið síðan í apríl 2001 en þá mældist það 1,6%.
Ísland í fremstu röð á sviði jafnréttismála
Í nýjasta hefti vikuritsins Economist er birt fróðlegt yfirlit yfir árangur þjóða á sviði jafnréttismála. Yfirlitið byggir á úttekt Alþjóða efnahagsstofnunar-innar (World Economic Forum - WEF) en samkvæmt henni er Ísland í þriðja sæti af 58 löndum sem skoðuð voru, þar sem jafnrétti kynjanna er mest.
|
|
|
Viðskiptasendinefnd til Japans í september
Davíð Oddsson utanríkisráðherra fer fyrir viðskiptasendinefnd til Japans sem nú er í undirbúningi og er ráðgerð dagana 12.-19. september. Meðal annars verða skipulögð viðskiptaráðstefna, sýning og fyrirtækja-stefnumót. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig sem allra fyrst.
Myndskeið af aðalfundi á vef SA
Á aðalfundi SA 3. maí sl. voru sýnd myndskeið um árangur atvinnulífsins, árangur stjórnvalda og framtíðarsýnina, undir yfirskriftinni Áfram í úrvalsdeild? Góður rómur var gerður að efni myndskeiðanna þar sem m.a. er rætt við 20 manns, stjórnendur og athafnafólk um stöðu og horfur. Athygli er vakin á því að hægt er að nálgast þessi myndskeið á vef SA.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf |