![]() |
| 6. tbl. 2004 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Eitt matvælaþrep í VSK og afnám vörugjalda
Áformað er að gera breytingar á virðisaukaskatti á kjörtímabilinu. Æskilegt væri að afnema vörugjöld af matvælum, skattleggja öll matvæli í sama þrepi og lækka VSK á matvæli í t.d. 12%. Þetta myndi hafa í för með sér 5,3 milljarða króna tekjutap fyrir ríkissjóð miðað við forsendur ársins 2002.
Íslenskir aðilar geta notað .eu
Einstaklingar, fyrirtæki og samtök munu á næstunni geta sótt um vefföng sem enda á .eu. Reglur þar að lútandi gilda á öllu Evrópska efnahags-svæðinu og lögðu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, það til að frumkvæði SA. Íslenskir aðilar geta því sótt um slík vefföng, kjósi þeir svo.
Olíureikningur hækkar um fimm milljarða
Haldist olíuverð óbreytt út árið má búast við að olíureikningurinn hækki um allt að þriðjung frá síðasta ári eða um fimm milljarða króna. Slíkar olíuverðshækkanir hafa veruleg áhrif á atvinnulífið, ekki síst á rekstur sjávarútvegs-fyrirtækja. Áhrifin eru þó ekki jafn mikil og áður fyrr, m.a. vegna betri orkunýtingar, tilfærslu yfir í aðra orkugjafa og aukins vægis þjónustu í þjóðarbúskapnum.
|
|
|
Skattalækkanir
Mikill stuðningur er við stefnumörkun stjórnvalda um lækkun skatta, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Hann segir þó nauðsynlegt að samhliða verði haldið þétt um taumana í opinberum fjármálum á næstu misserum og að þar gegni lykilhlutverki að launaþróun opinberra starfsmanna verði í samræmi við þær hækkanir sem atvinnulífið hefur samið um.
|
|
|
Morgunverðarfundur um veikindafjarvistir á morgun
Á morgun, föstudaginn 4. júní stendur Vinnueftirlitið fyrir morgunverðarfundi um veikindafjarvistir, með stuðningi SA o.fl. Fundurinn er m.a. ætlaður stjórnendum fyrirtækja og starfsmannastjórum og hann ávarpa m.a. tveir sænskir prófessorar. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.
Skemmra komin í markvissri mannauðsstjórnun
Markviss mannauðsstjórnun er skemmra á veg komin hér á landi en í samanburðarlöndunum, skv. fjölþjóðlegri könnun HR o.fl. sem gerð var með stuðningi SA. Þó er ljóst að miklar framfarir hafa orðið á síðustu árum, ekki síst á sviði upplýsingamiðlunar til starfsmanna og frá starfsmönnum til stjórnenda.
Skiptir aldur máli?
Lítil tengsl eru á milli vanda á vinnumarkaði og aldurs. Fátt bendir til að aldurinn skipti máli, en þá almennt séð fremur að hærri aldur sé til hagsbóta viðkomandi fremur en hitt. Þetta var niðurstaða Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðar-framkvæmdastjóra SA, í erindi á ráðstefnu um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði.
|
|
|
Olíugjaldsfrumvarpi mótmælt
Einhugur ríkir meðal þeirra sem reka atvinnubíla um að frumvarp um olíugjald og kílómetragjald o.fl. sé meingallað og feli í sér bæði aukna og flóknari skattheimtu sem ekkert tengist mark-miðum frumvarpsins um að gera rekstur smærri dísilbifreiða hagkvæmari. Samtök í atvinnulífi mótmæla frumvarpinu.
Borgin hættir sorphirðu hjá fyrirtækjum
Borgarráð hefur samþykkt að Reykjavíkurborg hætti sorphirðu hjá fyrirtækjum og stofnunum frá og með 1. janúar 2005, líkt og nokkur nágrannasveitarfélög borgarinnar hafa gert. Eru fyrirtæki í borginni því hvött til að leita til sorphirðufyrirtækja á almennum markaði tímanlega fyrir næstu áramót.
|
|
|
Nýir kjarasamningar
Undanfarnar vikur hafa Samtök atvinnulífsins undirritað nýja kjarasamninga við bókagerðar-menn, lyfjafræðinga í apótekum, skipstjórnar-menn og vélstjóra á kaupskipum og fer nú fram atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna þessara félaga. Samningur sem gerður var við Alþýðusamband Austurlands vegna loðnu-bræðslna var felldur í atkvæðagreiðslu.
Sjá nánar um samning við bókagerðarmenn. |
|
|
Ekki varanleg hækkun á vísitölu neysluverðs
Hækkun vísitölunnar er að hluta til áhyggjuefni en að hluta til markast þetta af röð tilviljana, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmda-stjóri SA, í samtali við Morgunblaðið um hækkun vísitölu neysluverðs. Hann segist ekki telja að um sé að ræða varanlega hækkun verðbólgunnar.
|
|
|
Kynnt úthlutun úr starfsmenntasjóði
Kynnt hefur verið úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins til starfsmenntunar í atvinnulífinu, en alls var rúmum 55 milljónum króna úthlutað til 55 verkefna. Meðal þeirra sem hlutu styrk voru SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sem fengu kr. 2,5 milljónir til námsbrautar fyrir verslunarfólk.
Starfsmenntaverðlaunin - tilnefninga óskað
Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fimmta skiptið í september nk. og er óskað eftir tilnefningum í flokkum fyrirtækja og félagasamtaka, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess að tilnefna rennur út 17. ágúst.
|
|
|
60% vilja léttvín og bjór í matvöruverslanir
Samkvæmt könnun IMG Gallup fyrir SVÞ eru 59,6% landsmanna fylgjandi sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum. Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar nokkrum sinnum áður og niðurstaðan er alltaf sú að meirihluti vill geta keypt léttvín og bjór í matvöruverslunum. 35% svarenda voru andvígir og 5,4% tóku ekki afstöðu.
Saga verslunar á Íslandi
Í tilefni af fimm ára afmæli SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu, hefur Lýður Björnsson sagnfræðingur tekið saman Sögu verslunar á Íslandi.
Viðskiptasendinefnd til Seattle og Alaska
Útflutningsráð hefur frestað för sendinefndar til Seattle og Alaska til september. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra mun fara fyrir nefndinni, en megináherslan verður lögð á sjávarútveg, þ.e. útgerð, fiskvinnslu og fiskeldi.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum |