7. tbl. ISSN 1670-2220
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Að óbreyttu stefnir í atvinnuleysi
Seðlabanki Íslands tilkynnti nú í morgun um óbreytta stýrivexti, 15,5%. Fáir höfðu reiknað með því að bankinn lækkaði vexti þrátt fyrir ærið tilefni þannig að framundan er sú braut fyrir atvinnulífið sem mörkuð hefur verið með takmörkuðum aðgangi að erlendu lánsfé og einstaklega óhagstæðum kjörum á innlendu sem erlendu lánsfé. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann segir að óbreyttu stefni í verulega erfiðleika og atvinnuleysi á haustmánuðum. Staðan í atvinnumálum sé einstaklega dökk og tilrauninni með nýrri peningastefnu frá 2001 sé nú lokið. Á næstu mánuðum muni Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin auka enn á samskipti sín vegna þróunar atvinnumála. Mikilvægasta verkefnið sé að skapa atvinnulífinu viðunandi starfsgrundvöll og efla það með fjárfestingum og hagvexti á næstu árum m.a. með stórum verkefnum á sviði virkjana og orkunýtingar.
Mjög slæmar aðstæður í efnahagslífinu
Um 76% stjórnenda í 400 stærstu fyrirtækjum landsins telja að aðstæður í efnahagslífinu séu frekar eða mjög slæmar, um 22% telja þær hvorki góðar né slæmar og einungis 2% telja þær góðar. Þetta kemur fram í ársfjórðungslegri könnun Capacent Gallup um stöðu og horfur í atvinnulífinu sem gerð er fyrir SA, Seðlabankann og fjármálaráðuneytið. Þegar litið er hálft ár fram í tímann eru efnahagshorfur á hinn bóginn skárri. Telja stjórnendur hjá um 32% fyrirtækjanna að aðstæður verði þá betri, um 26% vænta óbreytts ástands en um 42% búast við verri aðstæðum. Vísitala efnahagslífsins miðað við núverandi aðstæður er lægri en áður hefur komið fram í sambærilegum könnunum allt frá 2002. Meirihluti fyrirtækjanna býst við óbreyttum starfsmannafjölda næstu sex mánuði en um fjórðungur hyggst fækka starfsfólki.
SA kanna rekstrarhorfur meðal félagsmanna
Mánudaginn 7. júlí fá aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins senda rafræna könnun á rekstrarhorfum fyrirtækjanna.  Markmiðið með könnuninni er að fá skýrari mynd af núverandi stöðu mála og horfunum framundan í íslensku atvinnulífi - bæði hjá stórum fyrirtækjum og smáum og eins innan atvinnugreina. Hægt verður að svara könnuninni  til föstudagsins 11. júlí. SA hvetja félagsmenn til að taka þátt en umsjón með könnuninni hefur Outcome hugbúnaður ehf. og verða svör ekki rakin til þátttakenda.
Stefnir í 90 milljarða olíuinnkaup Íslendinga
Verðmæti innflutts eldsneytis án álagningar og skatta nam 37,2 milljörðum króna á síðasta ári og 36,4 milljörðum árið 2006. Sé miðað við óbreytta notkun á þessu og næsta ári og gengi krónunnar eins og það er um þessar mundir gæti verðmætið numið 75 milljörðum króna á þessu ári og 90 milljörðum á því næsta. Þá eru kaup íslenskra aðila erlendis ótalin en ætla má að þau nemi allt að 15 milljörðum króna á þessu ári. Haldist olíuverð áfram jafn hátt eða hækki enn eins og ýmsar spár standa til, mun það valda miklum búsifjum hér á landi sem annars staðar. Mikilvægt er að þróun vistvænna orkugjafa verð hraðað.
Skrifstofa SA lokar vegna sumarleyfa – símsvörun
Vegna sumarleyfa verður skrifstofa Samtaka atvinnulífsins lokuð dagana 21. júlí til 4. ágúst (að báðum meðtöldum), en svarað verður í símann og brugðist við áríðandi erindum.
Nýtt skilakerfi raf- og rafeindatækja - undirbúningsstofnfundur
Fimmtudaginn 10. júlí fer fram í Húsi atvinnulífsins undirbúningsstofnfundur félags til að reka skilakerfi framleiðenda og innflytjenda raf- og rafeindatækja. Markmið félagsins er m.a. að kosta geymslu raf- og rafeindatækjaúrgangs og tryggja söfnun og móttöku á raf- og rafeindatækjaúrgangi frá söfnunarstöðvum. Fundurinn fer fram á 6. hæð - Borgartúni 35 og hefst kl. 8:30
Skipulagsstofnun á villigötum
Skipulagsstofnun virðist í fjölmörgum dæmum hafa farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt á undanförnum misserum. Í fjölda tilvika hefur stofnunin lagt fram skoðun sína á umhverfisáhrifum einstakra framkvæmda í stað þess að leggja megináherslu á að meta hvort matsskýrsla á umhverfisáhrifum framkvæmdanna sé fullnægjandi og uppfylli ákvæði laga. Það er lögbundið hlutverk stofnunarinnar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum frá 2005 og var það m.a. undirstrikað af umhverfisnefnd Alþingis að það væri ekki hlutverk Skipulagsstofnunar að meta hvort rétt væri að ráðast í tilteknar framkvæmdir eða ekki - hlutverk stofnunarinnar væri að leggja mat á hvort sá sem veitir leyfi fyrir tiltekinni framkvæmd sé upplýstur um umhverfisáhrif hennar og athugasemdir almennings þegar afstaða til framkvæmdaleyfis er tekin. Nauðsynlegt er að umhverfisráðuneytið tryggi að stofnunin starfi eftir þeim lögum sem um hana gilda.
Sveigjanleikaákvæði mikilvægur hluti Kyoto-bókunarinnar
Iðnríkin sem tóku á sig skuldbindingar um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu 2008-2012 geta með verkefnum í þróunarríkjunum aflað sér heimilda til útstreymis sem nýtast heima fyrir. Verkefnin sem ráðist er í verða að draga úr útstreymi í þróunarríkjunum frá því sem ella hefði orðið og uppfylla skilyrði sem almennt eru sett til viðurkenningar verkefnanna. Töluverðir möguleikar eiga að geta falist í því fyrir íslensk jarðhitafyrirtæki að huga að þessum möguleikum þegar undirbúin eru verkefni í þróunarríkjunum.
Þensla á húsnæðismarkaði var fyrirséð
Sú kólnun sem nú gengur yfir fasteignamarkaðinn er afleiðing mikillar þenslu á undanförnum árum, en hún var fyrirséð og við henni varað m.a. af Samtökum atvinnulífsins og Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Með stefnumörkun stjórnvalda sumarið 2003 og upptöku 90% lána Íbúðalánasjóðs sumarið 2004 var atburðarrás hrundið af stað sem leiddi til þess vanda sem nú er við að glíma. Mikil hækkun lána og lánshlutfalls almennra lána í opinbera íbúðalánakerfinu leiddu til sviptinga á verði íbúðahúsnæðis og röskuðu jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Staðan sem blasir við í dag verður því ekki rakin til bankanna. Íbúðaverð tók að hækka þegar í kjölfar Alþingiskosninga 2003 þegar loforð um 90% íbúðalán voru færð í stjórnarsáttmála. Þetta kemur fram í nýrri greinargerð SA um þróun á húsnæðismarkaði 2003-2008.
Skýrsla um fjölmyntavæðingu atvinnulífsins
Sérfræðinganefnd SA sem framkvæmdastjórn samtakanna fól í apríl síðastliðnum að skoða fjölmyntavæðingu atvinnulífsins hefur lokið störfum og skilað af sér skýrslu sem má nálgast hér á vefnum. Viðfangsefni nefndarinnar var að draga saman greiningu á fjölmyntavæðingu atvinnulífsins, þ.e. aukinni notkun erlendra gjaldmiðla í skuldbindingum og viðskiptum einkaaðila með auknu frjálsræði í viðskiptum og alþjóðavæðingu og án beins atbeina stjórnvalda. Einhugur var í nefndinni um að auka ætti sveigjanleika atvinnulífsins hvað gjaldmiðlanotkun varðar og greiða ætti götu þess að viðskipti og notkun eða tenging við gjaldmiðla gæti þróast óhindrað eftir þeim leiðum sem markaðsaðilar telja hagkvæmast hverju sinni. Nefndinni var ekki falið að fjalla um hugsanlega aðild Íslands að ESB.
Stefna SVÞ í Evrópumálum
Innan SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu hefur að undanförnu farið fram skoðun á því hvort félagsmenn telji hag sínum betur borgið með öðrum gjaldmiðli en íslensku krónunni. Þessi vinna hefur verið framkvæmd í framhaldi af því að stjórn Samtaka atvinnulífsins beindi því til aðildarfélaga sinna síðastliðið haust að þetta mál yrði tekið til ítarlegrar skoðunar. Stjórn SVÞ ákvað að fela Evrópunefnd SVÞ að fjalla um málið og hefur hún skilað tillögum sínum.
Rætt um hópmálsóknir innan ESB
Á vettvangi Evrópusambandsins (ESB) er nú mikið rætt um hvort samræma eigi löggjöf aðildarríkja um  hópmálsóknir og þá með útgáfu nýrrar tilskipunnar ESB. Hefur framkvæmdastjóri ESB á sviði neytendamála, Meglena Kuneva, sýnt slíkri löggjöf mikinn áhuga. Samtök atvinnulífsins í Evrópu, BUSINESSEUROPE, hafa hins vegar vakið á því athygli að óeðlilegt sé að ESB sé beinlínis að hvetja til lögsókna með löggjöf sinni. Vænlegra sé fyrir alla aðila, jafnt einstaklinga sem fyrirtæki að leggja fremur áherslu á og styrkja þau úrræði sem nú þegar eru til staðar og hægt er að sækja utan dómstóla s.s. til gerðardóma, sáttameðferða og kærunefnda.
Íslenskir feður taka þýska karla í nefið
Fréttir berast nú frá Þýskalandi um að feðraorlof njóti mikilla vinsælda meðal þýskra karlmanna. Á fréttavef  mbl.is má t.d. lesa að 18,5% þýskra karlmanna óski eftir að taka feðraorlof eftir að breytingar voru gerðar á lögum um feðraorlof í Þýskalandi fyrir 18 mánuðum, en þýskir feður fá tvo þriðju hluta launa greidd í feðraorlofi. Þjóðverjarnir standa þó íslenskum karlmönnum langt að baki því 90% íslenskra karlmanna fara í feðraorlof við fæðingu barns og mun það vera ótvírætt heimsmet.
Barcelona myndi falla ef því væri stjórnað eins og háskóla
Knattspyrnuliðið Barcelona sem leikur í efstu deild á Spáni er stjörnum prýtt og er iðulega í baráttu um meistaratitilinn á Spáni og Evrópumeistaratitilinn. Háum fjárhæðum er varið í kaup á leikmönnum og þjálfarar eru reknir umsvifalaust ef þeir skila ekki árangri og lélegir leikmenn seldir. Leikur Barcelona olli vonbrigðum í vetur og því þarf liðið að leita leiða við að bæta árangur sinn fyrir næsta tímabil. Svarið við raunum liðsins er þó ekki að finna í stjórnunaraðferðum opinberra háskóla - því ef þeim væri beitt á Nývangi, heimavelli liðsins, myndi það falla eins og skot niður um deild. Þetta er mat Xavier Sala-i-Martin prófessors í þjóðhagfræði við Columbia háskóla í New York og fyrrverandi forseta Barcelona.
Af vettvangi kemur næst út í september
Vegna sumarleyfa mun fréttabréfið Af vettvangi ekki koma út í ágústmánuði. Það kemur næst út í byrjun september.
Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu 2009
Ákveðið hefur verið að stefnumót atvinnulífsins í Evrópu, European Business Summit, fari fram dagana 26.-27. mars 2009 í Brussel. Þetta verður í sjöunda skiptið sem stefnumótið fer fram en samantekt um það sjötta má nú nálgast á vefnum. Orku- og umhverfismál voru þar í fyrirrúmi. Evrópusamtök atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) og framkvæmdastjórn ESB eru meðal þeirra sem standa að stefnumóti atvinnulífsins í Evrópu en þar koma saman ráðamenn þjóða, stjórnmálamenn, stjórnendur stórfyrirtækja, leiðtogar ESB, fulltrúar félagasamtaka og fjölmiðla til að ræða framtíðina.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf