7. tbl. 2005
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Eigið fé Íbúðalánasjóðs tapað á einu ári vegna uppgreiðslna?
Ætla má að tap Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna eldri lána geti numið allt að 15 milljörðum króna frá því um mitt síðasta ár. Það er ríflega tveimur milljörðum meira en allt eigið fé sjóðsins var í árslok 2004. SA áætla að uppgreiðslur eldri lána Íbúðalánasjóðs síðasta árið hafi verið um 140 milljarðar króna og vaxtamunur sjóðsins vegna eldri lána verði neikvæður. Til að bregðast við vandanum hefur Íbúðalánasjóður m.a. lánað fjármálafyrirtækjum yfir 80 milljarða króna með ríkisábyrgð, sem efast má um að samræmist tilgangi hans. Þá virðist einsýnt að sjóðurinn tapi á þeim viðskiptum.
Þúsundir starfa horfin í sjávarútvegi og iðnaði
Hátt gengi krónunnar undanfarin ár hefur stuðlað að verulegri fækkun starfa í iðnaði og sjávar-útvegi, um rúm 4.000 frá árinu 1998, og enn sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Öflugur útflutningsgeiri og kraftmikil samkeppni við innfluttar vörur og þjónustu er hins vegar forsenda jafnvægis í utanríkisviðskiptum og áframhaldandi hagvaxtar.  Hátt kostnaðarstig er því mikið áhyggjuefni.
Opinber fjármálastjórn og fækkun starfa í atvinnulífinu
Störfum fækkar í gengisháðum greinum í alþjóðlegri samkeppni og miklu meira aðhald opinberra fjármála er nauðsynlegt til að sporna gegn þeirri öfugþróun sem hátt gengi krónunnar hefur í för með sér, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA. Hann segir stjórnmálamenn bera litla virðingu fyrir þeim fjárlögum sem þeir samþykkja og að núverandi starfshættir Íbúða-lánasjóðs séu bein ógnun við þann verðstöðugleika sem óumdeilanlega sé helsta forsenda vinnufriðar í landinu. Sveitarfélög auka á vandann.
ESB-tilskipun um leysiefni: Ísland fær viðbótar frest
Ísland hefur fengið samþykktan þriggja ára viðbótar aðlögunarfrest til að uppfylla tiltekin ákvæði tilskipunar ESB um takmörkun á lífrænum leysiefnum í málningu, lakki o.fl., líkt og SA og SI fóru fram á í athugasemdum sínum til utan-ríkisráðuneytisins. Ráðuneytið hefur komið á fót samráðshóp með SA o.fl. til að greina hagsmuni íslensks atvinnulífs við upptöku gerða í EES-samninginn.
Lagafrumvarp um efni og efnavöru: ábendingar berist SA
SA hafa borist til umsagnar drög að frumvarpi til laga um efni og efnavöru, sem unnið var af nefnd opinberra starfsmanna. Þar er m.a. að finna fjölmargar nýjungar um efnavöruskráningu, leyfi til markaðssetningar nýrra efna, ítarlegar kröfur um upplýsingaskyldu auk viðamikilla krafna um eftirlit, leyfisveitingar, gjaldtöku og fleira. SA hafa frest til 20. ágúst til að skila inn athugasemdum við frumvarpið og þeir sem vilja kynna sér frumvarpið og gera við það athugasemdir geta snúið sér til SA.
Hagstjórn þarf gegn þenslu
Nær allir sem tjá sig um efnahagsmál hvetja til þess að fjármálum hins opinbera verði beitt með virkari hætti gegn þenslu. Fjárfestingaráform hins opinbera eru mjög mikil fyrir árið í ár og næsta ár og mikilvægt að dregið verði úr þeim. Hlutfallslega vex samneyslan mun hraðar hjá sveitarfélögum en hjá ríkisvaldinu, en stór verkefni hafa á undanförnum árum verið færð frá ríki til sveitarfélaga. Það er slæmt frá sjónarhorni hagstjórnar því sveitarfélögin axla enga hagstjórnarábyrgð.
Breyta verður Íbúðalánasjóði sem fyrst
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur mikilvægt að starfsemi Íbúðalánasjóðs verði breytt sem fyrst til að tryggja fjármálastöðugleika og að bönkunum verði gert kleift að starfa áfram á húsnæðislánamarkaði. Jafnframt verði stjórnvöld að beita auknu aðhaldi í ríkisfjármálunum til að bregðast við hagsveiflum. Nefndin hefur kynnt sér stöðu efnahagsmála hér á landi og rætt bæði við stjórnvöld og fulltrúa atvinnulífsins.
Verðbólgan næst minnst hérlendis innan EES
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum hækkaði um 0,2% frá apríl til maí sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,3% frá fyrra mánuði. Frá maí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,9% að meðaltali í ríkjum EES en 0,5%, eða næst lægst, á Íslandi. Minnst var verðbólgan í Svíþjóð, 0,2%, en mest í Lettlandi, 6,5%.
Dagur samkeppnishæfni 20. október í Brussel
Fimmtudaginn 20. október munu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir degi samkeppnishæfni í Brussel. Meðal þátttakenda í dagskránni má nefna stjórnendur og stjórnar-menn frá fyrirtækjum á borð við Microsoft, Siemens, Fiat og Tesco, forseta framkvæmda-stjórnar ESB, forseta Evrópuþingsins o.fl. Fyrirtækjastjórnendur alls staðar að úr Evrópu eru hvattir til að mæta.
Sveigjanleiki í starfi eykur hagkvæmni og starfsánægju
Með endurskoðun hefðbundinna vaktakerfa geta fyrirtæki og stofnanir sparað sér fjármuni og skapað svigrúm fyrir hærri launum starfsmanna, en jafnframt aukið starfsánægju og bætt vinnuanda. Með aðstoð hugbúnaðar er vinnutími skipulagður á nýjan hátt, og í stað þess að starfsmenn aðlagi einkalíf að vinnu þá ráða þeir vinnutíma sínum að miklu leyti sjálfir og aðlaga vinnutíma sinn að einkalífinu. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel hjá Neyðarlínunni.
Störfum fjölgar á ný
Fjöldi starfandi manna var 157.520 árið 2004, samkvæmt staðgreiðsluskrá Hagstofu Íslands, og fjölgaði um 1.840 frá árinu áður, eða sem nam 1,2%. Þetta er töluverður viðsnúningur frá síðustu árum en störfum fækkaði bæði árin 2002 og 2003, eða um 0,2% hvort árið. Störfum fjölgaði mest í byggingariðnaði, um 960 störf, en þar á eftir kom opinber stjórnsýsla þar sem fjölgaði um 380 störf og heilbrigðis- og félagsþjónusta þar sem fjölgaði um 300 störf.
2,2% atvinnuleysi í maí
Í maí sl. voru skráðir rúmlega 73.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.332 manns hafi að meðaltali verið á atvinnu-leysisskrá í mánuðinum, eða 2,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,3% í apríl sl. en 3,3% í maí 2004. Atvinnuleysi í maímánuði hefur ekki mælst jafn lítið síðan í maí 2001 en þá mældist það 1,6%.
Nýr forseti UNICE
Ernst-Antoine Seillère hefur tekið við af Dr. Jürgen Strube, stjórnarformanni BASF, sem forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins. Seillère er forstjóri Wendel Investissement og formaður MEDEF, frönsku samtaka atvinnulífsins. Hann segir m.a. að meginskilaboð UNICE verði á mikilvægi hagvaxtar og atvinnusköpunar, og að halda verði á lofti mikilvægi samkeppnishæfni atvinnulífsins.
ESB-ríkin þurfa aukinn hagvöxt og fleiri störf
Formannafundur aðildarsamtaka UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, lagði á það áherslu í yfirlýsingu sinni að það sem ESB-ríkin skorti umfram allt sé aukinn hagvöxtur og fleiri störf. Hagvöxtur sé ófullnægjandi í flestum aðildarríkjunum og atvinnuleysi mikið og brýnustu verkefnin snúi því ekki að stjórnarskrársáttmála heldur að auknum hagvexti, auknum sveigjanleika á vinnumarkaði, frelsi í þjónustuviðskiptum o.fl.
SA gera kannanir með fjármálaráðuneyti og Seðlabanka
Samkomulag hefur orðið um að SA gangi til samstarfs við fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands um gerð kannana meðal fyrirtækja á horfum í rekstri og efnahagsmálum, sem IMG Gallup framkvæmir. Samhliða munu SA láta af gerð eigin kannana meðal aðildarfyrirtækja sinna, sem hafa verið um margt sambærilegar.
Japan í september, Pólland í október
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd til Japans dagana 12.-19. september nk. og fer Davíð Oddsson utanríkisráðherra fyrir sendi-nefndinni. Þá fer Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fyrir viðskiptasendinefnd sem fyrirhuguð er til Póllands í október.
Varað við svikastarfsemi
SVÞ minna nú á að á sumrin lifnar yfir svikastarfsemi sem beinist að því að svíkja út fé af fyrirtækjum, þar sem reynt er að villa um fyrir sumar-afleysingafólki. Einkum vara SVÞ við skráningarfyrirtækinu European City Guide í þessu sambandi. SA vöruðu nýlega við sambærilegri starfsemi sem kennd er við Nordisk Industri.
Svíþjóð: Enginn kynbundinn launamunur
Ekkert styður fullyrðingar um að konum sé mismunað í launum, samkvæmt rannsókn sem sænsku samtök atvinnulífsins, hafa unnið úr gögnum um launagreiðslur aðildarfyrirtækja sinna. Munur á reglulegum launum karla og kvenna skýrist að mestu af menntun, starfsvali, aldri og tegund fyrirtækis.
Af vettvangi kemur næst út 1. september
Vegna sumarleyfa mun fréttabréfið Af vettvangi ekki koma út í ágústmánuði. Það kemur næst út fimmtudaginn 1. september.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf