![]() |
| 7. tbl. 2004 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
50 ára og eldri traustir starfskraftar
Starfsfólk á aldrinum 50 ára og eldra er mun sjaldnar frá vegna veikinda en sér yngra fólk, vinnur kannski ívið hægar en yngra fólkið en er mun jákvæðara í garð vinnunnar. Þetta eru mjög skýrar niðurstöður könnunar SA meðal aðildar-fyrirtækja. Spurningarnar voru samdar í samráði við nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins.
Hreyfing á vinnumarkaði
Nokkur fjölgun starfa virðist framundan á vinnumarkaði, samkvæmt könnun SA. 18% fyrirtækja hyggjast fjölga hjá sér starfsfólki næstu 3-4 mánuði en 10% hyggjast fækka því. Sem fyrr hyggjast þó langflest fyrirtæki halda óbreyttum fjölda starfsfólks, eða 72%. Mest fjölgun virðist framundan í iðnaði og ferðaþjónustu en stærstu fyrirtækin ætla öðrum fremur að fækka starfsfólki.
|
|
|
Samanburðarfræði kennara
Fái aðrir það sama og kennarar krefjast verður afleiðingin neikvæð kaup-máttarþróun fyrir kennara sjálfa eins og aðra hópa launamanna, þótt prósentuhækkanir verði háar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Kennarar ætlist því til að aðrir semji um minna en þeir sjálfir.
|
|
|
Nýir kjarasamningar
Sjá nánar um samning við vélstjóra Sjá nánar um samning við Múrarafélag Reykjavíkur Sjá nánar um samning við Múrarasamband Íslands Sjá nánar um samning við Sveinafélag pípulagningarmanna Sjá nánar um samning við Félag veggfóðrara- og dúklagningarsveina Laun hækkuðu um 1,5%, vísitala neysluverðs um 2,1%
Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 1,5% milli 1. ársfjórðungs 2003 og 1. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun KRN, en vísitala neysluverðs hækkaði um 2,1%. Skv. því rýrnaði kaupmáttur launa að meðaltali um 0,6%, en á þessu tímabili fékk einungis lítill hluti launafólks hækkun skv. kjarasamningi og nýir kjarasamningar komu að mjög takmörkuðu leyti til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi. |
|
|
Starfsmenntaverðlaunin - tilnefninga óskað
Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fimmta skiptið í september nk. og er óskað eftir tilnefn-ingum í flokkum fyrirtækja og félagasamtaka, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess að tilnefna rennur út 17. ágúst.
|
|
|
Aukin skriffinnska ekki besta leiðin
Við teljum mikla skriffinnsku falla illa að veruleika íslenskra fyrirtækja, sem oft eru knappt mönnuð, og erum ekki sannfærð um að hún sé til þess fallin að ýta undir jafnrétti í reynd, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið um dræm viðbrögð fyrirtækja við beiðni félags-málaráðuneytis um upplýsingar um jafnréttisáætlanir.
Flutningur á hættulegum efnum
Samgönguráðuneytið hefur óskað eftir umsögn SA um drög Umferðarstofu að endurbættum reglum um flutning á hættulegum efnum, þar sem m.a. er horft til flutnings um jarðgöng. Aðildarfyrirtæki sem málið tengist eru hvött til að koma hugsanlegum sjónarmiðum á framfæri við SA.
|
|
|
Pétur Reimarsson til SA
Óskar Maríusson lætur af störfum
Óskar Maríusson efnaverkfræðingur hefur látið af störfum hjá Samtökum atvinnulífsins fyrir aldurs sakir, eftir alls tólf ára starf hjá SA og þar áður hjá Vinnu-veitendasambandi Íslands. Samtökin þakka Óskari vel unnin störf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.
Nýr starfsmaður SA í Brussel
Ástfríður Margrét Sigurðardóttir hefur verið ráðin í hlutastarf á Evrópuskrifstofu atvinnulífsins í Brussel og hefur störf 1. september. Ástfríður er matvælafræð-ingur að mennt og hefur m.a. starfað hjá Hollustu-vernd ríkisins. Þá hefur hún nýlokið meistaranámi í Evrópufræðum við háskólann í Leuven í Belgíu. Ástfríður mun gegna stöðu varafastafulltrúa SA hjá UNICE, Evrópusamtökum atvinnulífsins.
Kristófer Már lætur af störfum hjá SA
Í kjölfar flutnings og breytinga á rekstri Evrópuskrifstofu atvinnulífsins í Brussel hefur Kristófer Már Kristinsson ákveðið að flytja heim og hefur hann látið af störfum hjá Samtökum atvinnulífsins, eftir nær ellefu ára starf hjá SA og þar áður Vinnuveitenda-sambandi Íslands og Samtökum iðnaðarins. Samtökin þakka Kristófer vel unnin störf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni. Gústaf Adolf Skúlason tekur við stöðu fastafulltrúa SA hjá UNICE, Evrópusamtökum atvinnulífsins, með aðsetur á Íslandi. Jafnframt hefur verið ráðinn í starfsmaður í hlutastarf með aðsetur í Brussel. Sumarlokun skrifstofu SA – símsvörun
Skrifstofa Samtaka atvinnulífsins verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 19. til 30. júlí, en svarað verður í síma samtakanna og brugðist við áríðandi erindum. |
|
|
3,3% atvinnuleysi í maí
Í maímánuði voru skráðir 102.875 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.900 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3,3% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Samkvæmt því er atvinnuleysið á niðurleið en það mældist 3,5% í apríl sl. og 3,6% í maí árið 2003.
|
|
|
Lög á kjaradeilu fiskimanna á dagskrá ILO-þings
Afskipti ríkisvaldsins af kjaradeilu fiskimanna vorið 2001 voru til umræðu á þingi ILO, þ.e. hvort íslenska ríkið hefði brotið gegn samningsfrelsi aðila. Niðurstaða þingisins felur ekki í sér neinn alvarlegan áfellisdóm og lýtur fyrst og fremst að því að fara þurfi yfir framkvæmd kjarasamningaviðræðna fiskimanna og umgjörð þeirra.
|
|
|
Verðbólgan meiri en hægt er að sætta sig við
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir verðbólguna miklu meiri en hægt sé að sætta sig við, í samtali við Morgunblaðið. Hún ógni þó ekki kjarasamningum eins og er en forsendur samninganna koma til skoðunar í nóvember 2005. Hannes segir eðlilegt að endurskoða áform um stórauknar lánveitingar til húsnæðiskaupa og húsnæðisbygginga.
|
|
|
Rússland, Seattle, Alaska, Rúmenía, Búlgaría...
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefndir á erlenda markaði, þar sem skipulagðir eru fundir með mögulegum viðskiptaaðilum, auk fræðslu og kynningar. Í haust hefur ráðið þegar skipulagt slíkar ferðir til Rússlands, Seattle og Alaska, Rúmeníu og Búlgaríu. Þá er ferð til Slóvakíu og Tékklands í bígerð.
Af vettvangi kemur næst út 2. september
Vegna sumarleyfa mun fréttabréfið Af vettvangi ekki koma út í ágústmánuði. Það kemur næst út fimmtudaginn 2. september. |
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum |