1. tbl. ISSN 1670-2220
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Háir vextir uppskrift að nýju hruni
Enginn eðlilegur rekstur stendur undir 25% vöxtum eða þaðan af hærri né heldur tveggja stafa vaxtatölum á verðtryggðum lánum. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Lækka verði vextina ef ekki eigi illa að fara. Vandamál hrannist nú upp í bönkunum í stóran afskriftahaug sem einhvern tímann þurfi að moka burt. „Fyrirsjáanleg útlánatöp með þessum háu vöxtum er ekkert annað en uppskrift að hruni nýju bankanna þá loksins þegar og ef þeir komast af stað,“ segir Vilhjálmur.
Fjárfestingasjóður Íslands – 75 milljarða fjárfestingargeta
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa beitt sér fyrir því á vettvangi lífeyrissjóðanna að stofnaður verði á þeirra vegum Fjárfestingasjóður Íslands í því skyni að taka þátt í endurreisn atvinnulífsins. Þessi sjóður verður öflugur með 75 milljarða króna fjárfestingagetu á þremur árum. Frumvarp um breytingu á lögum um lífeyrissjóði var samþykkt á Alþingi í árslok 2008 í því skyni að auðvelda stofnun hans. Á vettvangi lífeyrissjóðanna er nú verið að fjalla um stofnun sjóðsins og þátttöku þeirra í uppbyggingu hans.
Endurreisn hlutabréfamarkaðar í Kauphöllinni mikilvæg
Endurreisn hlutabréfamarkaðar á Íslandi er lykilþáttur í uppbyggingarstarfi í íslenskum þjóðarbúskap á næstu misserum. Íslenskur hlutabréfamarkaður varð fyrir miklu áfalli við hrun viðskiptabankanna þriggja, enda nam markaðsverðmæti fjármálafyrirtækja fyrir þann tíma yfir 80% af samanlögðu markaðsverðmæti skráðra félaga í kauphöll NASDAQ OMX á Íslandi. Fyrir hrunið var meðalvelta með hlutabréf félaga í úrvalsvísitölunni um 9,8 milljarðar króna á dag, en eftir hrun var meðalveltan einungis um  81 milljónir króna, sem þýðir hvorki meira né minna en liðlega 99% lækkun. Endurvinna þarf traust og tryggja að smærri fyrirtæki eigi greiðan aðgang að hlutabréfamarkaði án yfirþyrmandi regluverks.

SA, Félag kvenna í atvinnurekstri og Finnsk-íslenska viðskiptaráðið efna til morgunverðarfundar um hvernig finnskt atvinnulíf snéri vörn í sókn í efnahagsþrengingunum í Finnlandi á árunum 1991-1994. Þriðjudaginn 20. janúar kl. 8:30-10:00 á Hótel Sögu. Skráning og nánari upplýsingar á www.sa.is 

Jafnréttisþing haldið á Hilton Nordica á morgun
Félags - og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð efna til jafnréttisþings föstudaginn 16. janúar að Hilton Reykjavík Nordica frá klukkan 9 til 17. Á jafnréttisþinginu verður fjallað um fjölmargar hliðar jafnréttisbaráttunnar, svo sem launajafnrétti kynjanna, kynbundið ofbeldi, jafnrétti í atvinnulífi, karla og jafnrétti og jafnréttisstarf í skólum. Sjá nánar á vef ráðuneytisins

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2009 verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2009 á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram síðdegis en dagskrá og staðsetning verður birt þegar nær dregur.

Takið daginn frá.

Ísland áfram í efstu deild þjóða
Hagstofa Evrópusambandsins hefur birt yfirlit yfir landsframleiðslu aðildarríkja ESB og EFTA-ríkjanna undanfarin ár og spá fyrir það ár sem nú er hafið. Hagstofa ESB birtir jafnframt yfirlit yfir meðalmannfjölda ríkjanna og mannfjöldaspár. Á þessum grundvelli hefur hagdeild SA reiknað út landsframleiðslu á hvern íbúa í þessum ríkjum og borið þau saman. Samkvæmt Hagstofu ESB verður verg landsframleiðsla á Íslandi tæplega 10 milljarðar evra á á árinu 2009 eða sem nemur 31 þúsund evrum á hvern íbúa.
Staða og horfur um áramót
Samtök atvinnulífsins birtu á gamlársdag niðurstöður ársfjóðungslegrar könnunar meðal stærstu fyrirtækja landsins á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu. Fyrirtækin mátu aðstæður afleitar en eygja von um bjartari tíð. Ekkert fyrirtæki taldi aðstæður vera góðar. Könnunin var gerð á tímabilinu 24. nóvember til 2. desember 2008.
Ályktun stjórnar SA um stöðu efnahagsmála - 16. desember
Á fundi stjórnar Samtaka atvinnulífsins þann 16. desember var ítrekuð hvatning til stjórnvalda um að lækka vexti. Vandséð væri hvaða markmiðum hinum háu vöxtum er ætlað að ná við ríkjandi aðstæður takmarkana á fjármagnsviðskiptum við útlönd. Stjórnin hvatti ríkisstjórnina og Seðlabankann til þess að afnema nýsettar reglur um gjaldeyrishömlur. Þá hvatti stjórn SA Alþingi til þess að gæta ráðdeildar í ákvörðunum sínum um fjárlög næsta árs og draga eins mikið úr fyrirsjáanlegum fjárlagahalla og frekast er unnt.
Samgönguhópur SA tekur til starfa
Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að setja á laggirnar starfshóp um samgöngumál. Tilgangurinn er tvíþættur, annars vegar að móta almenna stefnu samtakanna um samgöngumál og hins vegar að annast samráð af hálfu atvinnulífsins við samgönguráð vegna mótunar samgönguáætlunar 2011 - 2022. Hópurinn mun því fjalla um vegasamgöngur, flug og flugvelli, siglingar og hafnir.
Takmarkaðir möguleikar til að auka útstreymi eftir 2012
Ísland er í þröngri stöðu gagnvart Loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna og erfitt verður að sækja frekari heimildir vegna endurnýjanlegrar orku, sérstaklega í ljósi þess að iðnríkin beita nú miklum þrýstingi á þróunarríkin um að þau taki einnig á sig byrðar til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Þetta segir Pétur Reimarsson, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs hjá Samtökum atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið og vísar til fyrirhugaðar verslunar með útstreymisheimildir á opnum markaði.
Framlag íslenskra stjórnvalda til loftslagsviðræðna
Á fundi aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna, sem nýverið fór fram í Póllandi, var fjallað um fyrirhugað alþjóðlegt samkomulag um loftslagsmál sem ætlunin er að ljúka á þessu ári. Aðildarríkin hafa að undanförnu sent inn tillögur sínar um það sem þau telja mikilvægt að felist í nýjum samningi. Íslensk stjórnvöld sendu inn sínar tillögur þann 5. desember síðastliðinn en þær eru í fimm hlutum og tengjast nokkurn veginn þeirri efnisskipan sem búast má við að nýr samningur byggi á. Á vef SA er þessum tillögum lýst í stuttu máli en þeir hlutar sem helst tengjast aðgerðum hér á landi er útstreymi gróðurhúsalofttegunda, yfirfærsla tækniþekkingar og endurheimt votlendis.
Skiptar skoðanir innan SA um ESB og evru
Niðurstöður skoðanakönnunar meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins um afstöðu þeirra til þess hvort samtökin eigi að beita sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru voru birtar þann 16. desember 2008. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að SA beiti sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru en meirihluti í þremur er því andvígur. Skoðanir eru mjög skiptar í þessu máli innan samtakanna og á grundvelli niðurstaðna könnunarinnar er staðfest að SA muni ekki beita sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru á Íslandi. SA verða áfram virkur þátttakandi í Evrópuumræðunni og munu gæta hagsmuna allra félagsmanna á grundvelli þess að skoðanir eru skiptar um hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki.
Fyrirtækjum heimilað að gera 2008 upp í erlendri mynt
Alþingi samþykkti þann 19. desember síðastliðinn ný lög sem heimiluðu fyrirtækjum að gera upp ársreikninga sína í erlendri mynt fyrir árið 2008. Heimildin nær til fyrirtækja sem uppfylla skilyrði aljóðlega reikningsskilastaðalsins um annan starfrækslugjaldmiðil en íslenska krónu.
Upplýsingavefur á ensku um efnahagsástandið á Íslandi
Stjórnvöld hafa sett á fót upplýsingavef á ensku vegna efnahagsástandsins á Íslandi. Þar verða aðgengilegar upplýsingar um viðbrögð við því ástandi sem skapast hefur og aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til. Markmiðið er að á vefnum geti fólk fengið heildstæðar upplýsingar á ensku um efnahagsvandann og úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf