2. tbl. 2006
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Íslensk orka sparar okkur tugi milljarða á ári
Með því að nýta endurnýjanlegar orkulindir Íslands, spara Íslendingar sér tugi milljarða króna á hverju ári. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að með því að nýta heitt vatn til að hita upp híbýli landsmanna spari Íslendingar sér allt að 25 milljarða króna á hverju einasta ári sem að öðrum kosti færu í olíuinnflutning.

Hvers virði er stöðugt verðlag?
Miðað við flest OECD ríki hefur verðbólga verið í efri kantinum á Íslandi undanfarin ár og hefur Seðlabanki Íslands verið nokkuð einn á báti með það verkefni að halda aftur af verðbólguþróuninni. Litlar áhyggjur landsmanna af aukinni verðbólgu eru umhugsunarefni, en skaðleg áhrif verðbólgu eru ótvíræð og rétt að rifja hér upp nokkur þau helstu.
Kjarabætur teknar að láni
Í byrjun desember sl. gerði Reykjavíkurborg gamaldags verðbólgusamning í aðdraganda kosninga, nokkuð sem ekki hefur tíðkast í íslenskum stjórnmálum í tæpa tvo áratugi, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA. Hann segir samninginn hafa sett kjaramál annarra sveitarfélaga  í uppnám og að viðbrögð launanefndar sveitarfélaga markist af því. Sveitarfélögin í heild séu hins vegar þegar rekin með halla og verði að slá lán fyrir hærri launagreiðslum. Óhugsandi sé að launagreiðendur hjá hinu opinbera ákveði hvaða launabreytingar gangi yfir samkeppnisgreinar atvinnulífsins.
Breytinga þörf í skattkerfinu
Í ræðu sinni á Skattadegi Deloitte, SA, Viðskiptaráðs og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, að breytinga væri þörf í íslensku skattkerfi. Íslensk stjórnvöld hefðu sýnt framsýni með því að stuðla að bættu skattaumhverfi á Íslandi en gera þyrfti betur. Svo virtist sem samkvæmni skorti milli stefnumörkunar stjórnvalda og eftirfylgni þeirra stofnana sem færu með framkvæmd skattamála. Hömlur væru á fjárfestingu og arðgreiðslum milli landa og Ísland hefði setið eftir við gerð tvísköttunarsamninga.
Orkulindin Ísland – erindin á vef SA
SA, SI og Samorka stóðu á dögunum fyrir ráðstefnu um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi, Orkulindinni Ísland. Kynnt var könnun Gallup um afstöðu til virkjana, áliðnaðar og umhverfismála og fluttur fjöldi áhugaverðra erinda um efnahagsmál, umhverfismál, áhrif stórframkvæmda og álvera á nágrannabyggðir, sviptivinda í umræðunni fyrr og nú, hátæknistörf, útflutning þekkingar, orkuríka vinnustaði o.fl. Í fjörlegum pallborðsumræðum ræddu formaður Landverndar, þrír forstjórar orkufyrirtækja og þrír forstjórar álfyrirtækja um stöðu og horfur.
Erindi frá skattadegi aðgengileg á vefnum
Erindi ræðumanna frá skattadegi Deloitte, SA, Viðskiptaráðs og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins, eru aðgengileg í heild sinni á vefnum. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, ræddi um alþjóðavæðinguna og íslenska skattkerfið, Árni Harðarson, yfirmaður Skatta- og lögfræðisviðs Deloitte, greindi það sem enn má bæta í íslensku skattkerfi. Stig Madsen, einn eiganda Deloitte í Danmörku, ræddi um hvernig hyggilegast er að byggja upp kaup á dönskum félögum. Árni Jón Árnason, verkefnisstjóri í Fjármálaráðgjöf Deloitte, fjallaði um skattaleg áhrif Basel II. Þá fjallaði Kristján Gunnar Valdimarsson, forstöðumaður hjá Landsbanka Íslands, um áhrif Evrópuréttar á íslenska skattkerfið.
Vel sóttir fundir SA með framhaldsskólanemum
Um tvö hundruð nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri og Iðnskólans í Reykjavík áttu fundi með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins á dögunum. Fundirnir mörkuðu upphafið að fundaröð SA með framhaldsskólanemum undir yfirskriftinni Ætlar þú að vinna úti?
Þjónustusamningur um Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Undirritaður hefur verið þjónustusamningur SA, ASÍ og menntamálaráðuneytisins um rekstur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, m.a. á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 15. nóvember 2005, sem gefin var út í tengslum við niðurstöðu um áframhaldandi gildi kjarasamninga. Þar er m.a. fjallað um sérstakt átak til að efla starfs- og endurmenntun ófaglærðra og einstaklinga sem litla menntun hafa, jafnframt því að bæta stöðu erlends starfsfólks í íslensku samfélagi.
Vilhjálmur Egilsson nýr framkvæmdastjóri SA
Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur ráðið Vilhjálm Egilsson í stöðu framkvæmdastjóra samtakanna, í stað Ara Edwald sem tekið hefur við stöðu forstjóra 365 miðla. Vilhjálmur hefur gegnt stöðu ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu frá ársbyrjun 2004 en hefur áður m.a. starfað fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, sem framkvæmdastjóri Verzlunarráðs Íslands, setið á Alþingi og starfað hjá Vinnuveitendasambandi Íslands, eins af forverum Samtaka atvinnulífsins. Hann er hagfræðingur að mennt með doktorsgráðu frá University of Southern California.
María Huldarsdóttir til Brúnáss

María Huldarsdóttir, sem starfað hefur á skrifstofusviði Samtaka atvinnulífsins, hefur hafið störf sem tækniteiknari hjá fyrirtækinu Brúnasi. Samtökin þakka Maríu vel unnin störf og óska henni velfarnaðar í nýju starfi.

Pistlar um loftslagsmál
Á vef Samtaka atvinnulífsins hafa undanfarið birst pistlar þar sem ljósi er varpað á að Ísland stendur vel að vígi í loftslagsmálum. Í þeim hefur m.a. komið fram að Ísland stendur einna best allra ríkja að vígi við að ná markmiðum samkvæmt Kyoto-bókuninni, og að miðað við útstreymi í hlutfalli við landsframleiðslu er Ísland í einu af lægstu sætum allra ríkja og að dregið hefur mjög úr losun hérlendis frá árinu 1990 á þennan mælikvarða.
Eru sveigjanleg starfslok valkostur?
Ráðstefna um sveigjanleg starfslok verður haldin í Salnum Kópavogi, fimmtudaginn 9. febrúar kl. 13:15-16:20. Öldrunarráð Íslands stendur fyrir ráðstefnunni í samvinnu við Samtök atvinnulífsins og fleiri. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Eru sveigjanleg starfslok valkostur? Fjölbreytt erindi verða flutt á ráðstefnunni en hún er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Er þinn vinnustaður fjölskylduvænn?
Hollvinir hins gullna jafnvægis hafa í hyggju að veita í þriðja sinn viðurkenningu fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. Viðurkenningin „Lóð á vogarskálina" verður afhent á ráðstefnunni „Hið gullna jafnvægi: Gjöfult verkefni" sem haldin verður á Nordica hótel 16. febrúar nk. Samtök atvinnulífsins eru meðal hollvina hins gullna jafnvægis. Tekið er á móti ábendingum á vefsvæðinu www.hgj.is til 10. febrúar.
Samið til 2010
Samtök atvinnulífsins og Sjómannasamband Íslands hafa undirritað kjarasamninga um kaup og kjör háseta og þjónustufólks á m.s. Herjólfi sem gilda til ársloka 2010. Fá hóparnir sömu launabreytingar og samið hefur verið um við aðra hópa á kaupskipum í samningum sem gilda til ársloka 2007. Á árunum 2008 – 2010 eru hópunum tryggðar hliðstæðar launabreytingar og samið verður um í kjarasamningum við sambærilega starfshópa.
1,5% atvinnuleysi í desember
Í desembermánuði sl. voru skráðir 50.843 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.317 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið einnig 1,5% í nóvember sl. en 2,7% í desember 2004. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir að atvinnuleysi aukist nokkuð í janúar og verði á bilinu 1,5-1,8%.
Gífurlegt ósamræmi í lífeyriskjörum
Það er gífurlegt ósamræmi á milli þeirra lífeyriskjara sem lögfest hafa verið hér fyrir almenning í landinu og fyrir opinbera starfsmenn í A-deild lífeyrissjóða og hins vegar þess sem Alþingi hefur lögfest fyrir sína þingmenn og ráðherra, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Viðskiptablaðið. Þar sé í mörgum tilfellum í raun um að ræða stærstu og dýrustu starfslokasamninga sem um getur  hér á landi. Þá sé B-deildin gríðarlega dýr fyrir skattborgara landsins.
Nýjar séríslenskar reglur kynntar innan EES
Íslensk stjórnvöld hafa tilkynnt Eftirlitsstofnun EFTA um fyrirhugaðar breytingar á reglugerðum og lögum sem varða hagsmuni fyrirtækja á Ísland en frestur til að gera athugasemdir við breytingarnar rennur út í lok febrúar og mars. Um er að ræða drög að þremur reglugerðum sem lúta að merkingu matvæla, íblöndun bætiefna í matvæli, og drög að reglugerð um innflutt lyf. Þá liggja fyrir drög að frumvarpi um breytingu á tóbakslögum. Samkvæmt þeim verða reykingar óheimilar á veitinga- og skemmtistöðum frá 1. júní 2007, en Samtök ferðaþjónustunnar hafa lagt þetta til á aðalfundi.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf