2. tbl. ISSN 1670-2220
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Atvinnulífið vill berjast
Ný könnun SA meðal aðildarfyrirtækja sinna leiðir í ljós að íslensk fyrirtæki vilja berjast áfram og ekki gefast upp þrátt fyrir erfið starfsskilyrði. Því skiptir höfuðmáli að stjórnvöld hlusti á atvinnulífið og skapi því starfsskilyrði sem efla baráttuvilja og þor til þess að takast á við erfiðleikana. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Hann ítrekar það sjónarmið SA að æskilegt sé að bankarnir hafi sérstök opin umsýslu- eða eignarhaldsfélög á sínum vegum til þess að fara með eignarhluti í fyrirtækjum sem lenda í þeirra höndum. Mikil hætta sé á spillingu, gerræðislegum ákvörðunum og tortryggni og vandamálum vegna heilbrigðrar samkeppni ef stofna eigi eitt eignarhaldsfélag á vegum ríkisins til þess að eiga og reka mörg af helstu fyrirtækjum landsins.
Fyrirtækin þrjóskast við en tími aðgerða er runninn upp
Tæplega sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA fækkuðu ekki starfsmönnum á síðasta ári þrátt fyrir versnandi rekstrarhorfur. Tæp 18% fyrirtækjanna brugðu á það ráð að breyta fullum störfum í hlutastörf til þess að forðast uppsagnir og um 18% gripu til launalækkana til að tryggja áframhaldandi rekstur. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna. Ríflega helmingur aðildarfyrirtækja hyggst halda óbreyttum starfsmannafjölda á næstu mánuðum en fram kemur í athugasemdum svarenda að þrek margra fyrirtækja dvínar ört. Í könnuninni kemur skýrt fram að stjórnendur fyrirtækja telja að lækka verði vexti fljótt  svo fyrirtækin í landinu geti starfað áfram og koma verði bankaþjónustu í eðlilegt horf á nýjan leik ásamt því að gjaldeyrishöft verði afnumin.
Ætlum að koma standandi út úr kreppunni
„Við fórum standandi inn í þessa kreppu og ætlum helst að koma standandi út úr henni," segir Andrés Sigurðsson rekstrarstjóri Loftorku í Reykjavík, en fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir ákveðin viðbrögð við efnahagsþrengingunum sem nú ríða yfir íslenskt samfélag.
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2009 verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2009 á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram síðdegis á Hilton Reykjavík Nordica en dagskrá verður birt þegar nær dregur. Sjáumst!
Víðtæk sátt um niðurskurð í ríkisrekstri nauðsynleg
Í aðdraganda kosninga til Alþingis og hugsanlegra stjórnarmyndunarviðræðna í kjölfarið þarf Alþingi Íslendinga að taka af skarið og hefja þverpólitíska vinnu við að leita leiða til að spara í ríkisrekstri og ná um það víðtækri sátt. Alþingi á að setja á laggirnar sparnaðarnefnd sem hefur að markmiði að undirbúa sparnað í ríkisrekstrinum á fjárlögum 2010 og leggja línur um sparnað til næstu þriggja ára. Nefndin gæti kallað til sín fulltrúa ráðuneyta og unnið náið með fjárlaganefnd þingsins. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA.

Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að fólk fái eins raunsanna mynd af ástandi efnahags- og ríkisfjármála og frekast er kostur. SA hafa því á árinu 2009 birt og munu á næstunni birta á vef SA greinar sem er ætlað að upplýsa fyrirtæki og almenning um stöðu mála m.a. um stöðu ríkissjóðs og fleiri grunnstærðir.

Lækkun vaxta mikilvægasta aðgerðin í atvinnumálum
Hröð lækkun vaxta er lang mikilvægasta aðgerðin í atvinnumálum sem hægt er að grípa til á Íslandi. Ljóst er að við núverandi vaxtastig verður engin atvinnusköpun þar sem vart finnst sú fjárfesting sem stendur undir því. Það er óeðlilegt ástand að búa við 18% stýrivexti en vegna hins háa vaxtastigs verða engin ný störf til og störfum fækkar jafnframt óðfluga. Lækkun stýrivaxta í 8% gæti hugsanlega tryggt 7.000 fleiri störf á Íslandi á næsta ári en ella.
Tuttugu þúsund störf
Sá efnahagsskellur sem Íslendingar hafa orðið fyrir er af nánast áður óþekktri stærðargráðu í nútímasögunni. Bankakerfið hrundi nánast eins og það lagði sig á einni viku og gengi íslensku krónunnar lækkaði meira en nokkurn gat órað fyrir. Afleiðingarnar eru rekstrarerfiðleikar fyrirtækja og vaxandi atvinnuleysi. Það er í senn megin áhyggjuefnið og viðfangsefnið á næstunni. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA. Skapa verði tuttugu þúsund ný störf til ársins 2015 og vinna til baka þau störf sem hafi tapast. Nauðsynlegt sé að marka leið út úr þeim ógöngum sem íslenska þjóðarbúið hafi ratað í.
Ráðningar fólks samkvæmt reglum um vinnumarkaðsúrræði
Ráðning vegna frumkvöðlastarfs í fyrirtækjum og þróun eigin viðskiptahugmyndar eru meðal þeirra úrræða sem Vinnumálastofnun getur boðið en nýjar reglugerðir voru settar um vinnumarkaðsaðgerðir í  byrjun janúar. Ennfremur er þar kveðið á um reynsluráðningar og starfsþjálfunarsamninga. Í lögum um vinnumarkaðsaðgerðir  eru tiltekin helstu vinnumarkaðsúrræði sem Vinnumálastofnun skal annast, en þar er um að ræða styttri námskeið, starfstengd úrræði, námsúrræði, atvinnutengda endurhæfingu og ráðgjöf.
Aðgerðir gegn atvinnuleysi
Félags- og tryggingamálaráðherra hefur ýtt úr vör vinnu við fjölbreyttar aðgerðir gegn atvinnuleysi.
Mikil fjölgun örorkulífeyrisþega heldur áfram
Mikil fjölgun örorkulífeyrisþega á Íslandi hélt áfram á síðasta ári. Í árslok 2008 voru þeir sem fengið höfðu úrskurð um 75% örorku rúmlega 15.000 sem er rúmlega 8% af vinnafli í landinu. Í hópnum fjölgaði um 550 frá árinu áður. Skiptingin milli kynja er þannig að karlar eru 6.000 og konur 9.000 þannig að karlar eru 40% og konur 60%.
Vottun jafnra launa mikilvæg
Samtök atvinnulífsins vænta mikils af samstarfsverkefni SA, ASÍ og félags- og tryggingamálaráðuneytis um að fyrirtækjum og stofnunum verði gert kleift að fá vottun þess að jafnlaunastefna sé virk og í heiðri höfð á viðkomandi vinnustöðum. Þetta kom fram hjá Hrafnhildi Stefánsdóttur, yfirlögfræðingi SA, í umræðum á Jafnréttisþingi sem fór nýverið fram. Hrafnhildur lagði áherslu á að árangursríkar og hagkvæmar leiðir verði farnar á vinnumarkaði til að efla jafnrétti í stað þess að auka skrifræði og kostnað atvinnulífsins.
Nýsköpun Íslendinga í 14. sæti í Evrópu
Ef lagt er mat á nýsköpun í hagkerfinu eru Íslendingar í 14. sæti ríkja í Evrópu og er það svipuð frammistaða og síðastliðin fimm ár þar sem Ísland hefur verið í 13.-15. sæti. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu European Innovation Scoreboard 2008 þar sem borin er saman nýsköpun í ríkjum Evrópu. Í mörg ár hafa Finnar verið í einu af efstu sætunum en á fundi SA 20. janúar var því lýst hvernig Finnar sköpuðu með markvissum hætti nýsköpunarsamfélag að lokinni efnahagskreppunni sem yfir þá gekk á árunum 1991 - 1994.
Skilaboð frá Finnlandi: Verndið fólkið og fyrirtækin
Það er algjört forgangsmál í þeirri kreppu sem Íslendingar glíma við að slá skjaldborg um fólkið í landinu og arðvænleg fyrirtæki. Ríkið verður af miklum skatttekjum við gjaldþrot fyrirtækja sem eru í rekstri og það kostar blóð svita og tár að stofna ný fyrirtæki - sem ekki komast öll á legg. Við þrot fyrirtækja tapast einnig dýrmæt störf og afkoma fjölskyldna versnar.
Þegar áfallið dynur yfir skipta rétt viðbrögð öllu máli
Um 200 hundruð manns sóttu ráðstefnu um áfallastjórnun sem haldin var á vegum KOM almannatengsla, Vinnuverndar ehf, Humus og Samtaka atvinnulífsins miðvikudaginn 11. febrúar. Fjallað var um málefnið út frá ýmsum sjónarhornum en fram kom í máli framsögumanna að mikilvægt væri að standa faglega að málum þegar „hið óhugsanlega gerist". Ekki væri leyst úr áföllum á einni nóttu og mikilvægt væri fyrir stjórnendur að gera sér grein fyrir langtímaáhrifum áfalla á rekstur og ímynd fyrirtækja, líðan starfsmanna, samskipti við nærsamfélagið og ýmsa aðra þætti ásamt því að leita utanaðkomandi stuðnings þegar þess væri þörf.
Hagsýn, framsýn og áræðin atvinnustefna SA
Samtök atvinnulífsins hafa markað hagsýna, framsýna og áræðna atvinnustefnu sem innlegg í umræðu um hvernig hægt er að snúa vörn í sókn. Í núverandi ástandi verður að bregðast rétt við þegar í stað, lágmarka skaðann og auðvelda nýja uppbyggingu. Nauðsynlegt er að grípa til ráðstafana og taka ákvarðanir sem skapa grunn að nýrri framfarasókn.
Samtök atvinnulífsins heimsækja vinnustaði - bókið núna
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins heimsækja aðildarfyrirtæki SA þessa dagana og kynna nýja atvinnustefnu samtakanna. Stjórnendur sem vilja fá Samtök atvinnulífsins í heimsókn til að kynna starfsmönnum stefnuna er velkomið að hafa samband til að finna hentugan tíma.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf