![]() |
11. tbl. ISSN 1670-2220 |
| Hægt er að lesa fréttabréfið
í heild á
vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst
getur þú breytt áskrift þinni
hér. |
|
|
Baráttuár framundan í atvinnulífinu
Næsta ár verður mikið baráttuár í öllum skilningi fyrir íslenskt atvinnulíf. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Takast verði á við mikla og margvíslega erfiðleika en réttar ákvarðanir í lykilmálum ráði því hvernig gangi. Ef vel takist til verði kreppan ekki eins djúp og óttast hefur verið. Vilhjálmur segir að aðilar vinnumarkaðarins séu sammála um að reyna að ná almennri samstöðu á vinnumarkaði um þróun kjaramála næstu tvö árin og á það verði látið reyna í byrjun nýs árs.
|
|
|
Skilyrði vegna uppgjörs í erlendri mynt verði rýmkuð
Samtök atvinnulífsins, Samtök fiskvinnslustöðva og Landssamband íslenskra útvegsmanna fagna því að fram sé komið stjórnarfrumvarp á Alþingi um að fyrirtækjum verði heimilað að gera upp ársreikninga í erlendri mynt á þessu ári enda hafa samtökin hvatt til þess að umrædd heimild verði veitt. Samkvæmt frumvarpinu geta félög sótt um heimild ársreikningaskrár fyrir 15. desember 2008 til færslu bókhalds og samningar ársreiknings í erlendum gjaldmiðli annars vegar vegna reikningsárs sem hefst 1. janúar 2008 eða síðar á því ári og hins vegar vegna reikningsársins sem hefst 1. janúar 2009. Samtökin leggja þó áherslu á að skilyrðum sem uppfylla þarf verði rýmkuð og að tímafrestur verði lengdur til 31. desember.
Þakkarkveðjur til atvinnulífs í Færeyjum
Samtök atvinnulífsins hafa sent Føroya Arbeiðsgevarafelag - samtökum atvinnulífsins í Færeyjum - þakkarkveðjur fyrir stuðning á erfiðum tímum í efnahagslífi Íslands. Þór Sigfússon, formaður SA, segir í bréfi til Jóhans Páls Joensen, fomanns FA, að það sé íslensku atvinnulífi mikilvægt að finna stuðning frá frændum okkar þegar á móti blæs. Samskipti íslensks og færeysks atvinnulífs hafi verið ánægjuleg í gegnum tíðina og þau megi vonandi efla enn frekar í framtíðinni.
Ekki verði gengið á rétt smáríkja í loftslagsmálum
Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Poznan í Póllandi lýkur á morgun. Íslenska sendinefndin leggur á það áherslu að ekki verði gengið á rétt smáríkja og að árangur Íslands í loftslagsmálum og sérstaða njóti áfram viðurkenningar. Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, situr ráðstefnuna. Hann segir að samstaða sé um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda en mikill vandi sé fyrir höndum. Öll ríki verði að grípa til aðgerða ef raunverulegur árangur eigi að nást. Auka verði nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, bæta orkunýtingu, auka notkun kjarnorku og binda verði koltvísýring í jarðlög. Aðeins með gríðarlegu átaki á öllum þessum sviðum megi vænta árangurs.
Með skapandi hugsun að vopni
Fjöldi fólks bregst nú við breyttum aðstæðum í atvinnulífinu með því að skapa sér sín eigin tækifæri. Á Torginu er verið að þróa fjölda viðskiptahugmynda og undirbúa stofnun fyrirtækja og í Borgartúni hafa undanfarnar helgar verið haldin fjölsótt stefnumót þar sem fólk viðrar viðskiptahugmyndir sínar og leitar að samstarfsaðilum. Næsta stefnumót verður á laugardaginn.
Spurt og svarað á vef SA
Á vef SA er að finna samantekt frétta um viðbrögð við fjármálakreppunni ásamt tenglum á gagnlega vefi. Einnig er hægt að koma ábendingum á framfæri.
|
|
|
Úr vörn í sókn: Hvað gerðu finnsku fyrirtækin?
Þriðjudaginn 20. janúar 2009 efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri og Finnsk-íslenska viðskiptaráðið til morgunfundar um hvernig finnskt atvinnulíf snéri vörn í sókn með því að bregðast við efnahagsþrengingunum í Finnlandi á árunum 1991-1994. Fulltrúar finnskra fyrirtækja og atvinnulífssamtaka sem stóðu í eldlínunni munu lýsa því hvað finnsku fyrirtækin gerðu. Staðsetning og nánari dagskrá verður birt í byrjun janúar. |
|
|
Áherslur SA vegna aðgerða ríkisstjórnar í þágu fyrirtækja
Í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu fyrirtækja hafa Samtök atvinnulífsins tekið saman áhersluatriði um brýn úrlausnarefni. Þau má nálgast hér á vef SA en þau snúa m.a. að gjaldeyrisviðskiptum, samskiptum við erlenda lánadrottna, lækkun vaxta, uppstokkun atvinnulífsins, nýsköpun og skapandi hugsun, kjarasamningum og skilyrðum fyrir fjárfestingar. Einnig um ársreikninga í erlendri mynt, fjárfestingasjóði, fasteignagjöld, refsiákvæði, opinberar framkvæmdir og ráðdeild í ríkisrekstri.
|
|
|
Aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja kynntar
Ríkisstjórnin hefur lagt fram og kynnt tilllögur sem hafa það að markmiði að mæta vanda fyrirtækja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá forsætisráðuneytinu en tillögurnar má nálgast hér á vef SA.
Mikilvæg stefnumörkun stjórnvalda
Bregðast verður skjótt við vanda atvinnulífsins
|
|
|
Unnið að úrlausn útlánavandamála fyrirtækja
NBI, Nýi Glitnir og Nýja Kaupþing hafa komið sér saman um aðgerðir til að vinna að úrlausn útlánavandamála fyrirtækja. Er það gert í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 2. desember þar sem því var m.a. beint til hinna nýju banka að ráðast í aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja. Samkeppniseftirlitið hefur heimilað bönkunum að vinna saman að þessu mikilvæga máli enda hafa stjórnvöld kallað eftir samræmdum vinnureglum.
|
|
|
Samstarf um menntunarúrræði vegna aðstæðna
Samstarf um menntunarúrræði sem komið var á í haust á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í kjölfar efnahagsþrenginganna, hefur þegar skilað umtalsverðum árangri. Að samráðinu koma Vinnumálastofnun, menntamálaráðuneyti, aðilar vinnumarkaðarins , fræðsluaðilar og starfsmenntasjóðir. Vandinn sem við er að glíma er mikill. Það stefnir í að atvinnuleysi í lok desember verði nálægt 5%. Nú þegar eru tæplega 8.200 manns á landinu öllu atvinnulaus. Breyttar aðstæður í efnahagslífinu hafa víða áhrif í menntakerfinu, t.a.m. eru nú áberandi færri nemendur í framhaldsskólum í hlutastörfum með námi en áður, ekki nema 1-2 einstaklingar í hverjum bekk en voru áður allt upp undir helmingur nemenda í hverjum bekk.
Ársrit um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun komið út
|
|
|
Evrópusamtök atvinnulífsins hvetja ESB til að efla atvinnulíf
Forsetar og formenn aðildarsamtaka BUSINESSEUROPE (Evrópusamtaka atvinnulífsins) hittust á fundi í París föstudaginn 5. desember og ræddu m.a. um efnahagsástandið við Sarkozy, forseta Frakklands og Barroso, forseta framkvæmdastjórnar ESB. Þór Sigfússon, formaður SA, ávarpaði fundinn og tók undir þá skoðun fundarmanna að mikilvægt væri að varast verndarstefnu í lengstu lög þar sem frjáls markaður sé undirstaða hagsældar. Forseti BUSINESSEUROPE hefur sent Sarkozy og Barroso bréf þar sem samtökin hvetja til þess að leiðtogaráð ESB taki réttar ákvarðanir á fundi sínum í lok vikunnar svo flýta megi endurreisn atvinnulífsins við þær erfiðu aðstæður sem nú ríki.
Tækifæri til að auka þjónustuviðskipti
Möguleikar íslenskra fyrirtækja til að bjóða þjónustu sína í Evrópu munu aukast eftir að þjónustutilskipun ESB hefur verið innleidd í íslensk lög á næsta ári. Jafnframt mun erlendum fyrirtækjum reynast auðveldara að sækja inn á íslenskan markað. Stefnt er að því að minnka reglubyrði og einfalda samskipti stjórnvalda og fyrirtækja til að auðvelda samkeppni fyrirtækja milli landa þannig að neytendur njóti aukinna gæða og hagstæðara verðs á þjónustu. Umbætur á lögum og reglum koma jafnframt þjónustuveitendum á innlendum markaði til góða. Þetta kom fram á morgunfundi SA um þjónustutilskipun ESB.
|
|
|
Skrifað undir kjarasamning við SSF
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF). Samningar aðila hafa verið lausir frá 1. október sl. en nýr samningur gildir til ársloka 2010. Megininntak samningsins er hækkun launataxta um 20.500 kr. í upphafi og 14.000 kr. 1. janúar 2010.
Virk endurhæfing á vefnum
Endurhæfingarsjóður hefur opnað nýjan vef - virk.is - en sjóðurinn var stofnaður af Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandi Íslands í sumar. Hlutverk Endurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.
|
|
|
Ferðaþjónusta mikilvæg íslensku efnahagslífi
Stórstígar framfarir hafa orðið í íslenskri ferðaþjónustu þrátt fyrir erfið rekstarskilyrði sem greinin hefur þurft að búa við um langa hríð en nú eru tækifæri til að blása til sóknar. Þetta kom fram í máli Þórs Sigfússonar, formanns SA, á Ferðamálaþingi. Þar sagði hann SA vilja taka þátt í því að efla bæði stór og lítil fyrirtæki og hvetja til nýsköpunar innan þeirra. Fjölmargir möguleikar væru til að efla rekstur ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi sem gætu skilað góðri afkomu en ferðaþjónustan væri mikilvægur þáttur í þeirri uppbyggingu atvinnulífsins sem framundan er. Erlendir ferðamenn hafi t.d. flutt inn gjaldeyri fyrir um 85 milljarða króna á síðasta ári og greinin hafi aflað um 19% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar.
|
|
|
Leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja gefnar út
Viðskiptaráð Íslands, NasdaqOMX Ísland og Samtök atvinnulífsins hafa gefið út leiðbeiningar um stjórnarhætti opinberra fyrirtækja. Markmið leiðbeininganna er margþætt en þeim er fyrst og fremst ætlað að auka gagnsæi í rekstri opinberra fyrirtækja og aðstoða hið opinbera og fyrirtæki í eigu þess að skapa traust um starfsemi sína. Fulltrúa fjármálaráðherra var afhent fyrsta eintak leiðbeininganna.
|
|
|
Framtíðarlandið Ísland
Mikilvægt er að stjórnvöld taki réttar ákvarðanir varðandi framtíð íslensks atvinnulífs. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA, á ráðstefnu Útflutningsráðs sem fram fór á fullveldisdaginn. Þór sagði grundvallaratriði að standa vörð um fyrirtækin í landinu til að þau geti haldið áfram rekstri. Stefna skuli að því að hér á landi verði rekstrarumhverfi þar sem hægt sé að gera áætlanir til minnst tveggja ára sem ómögulegt sé í dag, verðbólga verði ekki hærri en 3% og stýrivextir ekki hærri en 4%.
|
![]() |
| Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf |