4. tbl. ISSN 1670-2220
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Er betra að veifa röngu tré en öngvu?
Enn og aftur hefur Seðlabanki Íslands hækkað stýrivexti sína, nú í 15,5%, og enn og aftur er það misráðin ákvörðun af hálfu bankans. Seðlabankinn hefur alveg litið fram hjá því við vaxtaákvarðanir sínar á undanförnum misserum að íslenska fjármálakerfið verður sífellt alþjóðlegra og tengdara erlendum fjármálamörkuðum. Sú staðreynd hefur dregið úr virkni hefðbundinnar peningamálastefnu auk þess sem víðtæk verð- og gengistrygging fjárskuldbindinga hefur haft sömu áhrif. Ótæpilegar vaxtahækkanir Seðlabankans hafa því ekki unnið á verðbólgu heldur verið undirrót ójafnvægis og gengissveiflna sem hafa valdið íslensku atvinnulífi miklum skaða. Þetta segir framkvæmdastjórn SA. Í leiðaranum kemur fram að stjórn SA hafi ákveðið að setja á laggirnar nefnd sérfræðinga til þess að meta möguleika á evruvæðingu atvinnulífsins sem felur í sér að einkaaðilar noti evruna sem gjaldmiðil í öllum viðskiptum sín á milli.
Veðrabrigði í kjölfar gríðarlegs hagvaxtar
Íslenska hagkerfið hefur stækkað um rúmlega fjórðung á síðustu fjórum árum og um þriðjung frá árinu 2000, sem er tvöfalt meiri vöxtur en í öðrum þróuðum ríkjum og verulega umfram það sem samrýmist jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Vöxturinn hefur reynt verulega á þanþol hagkerfisins sem einkennst hefur af útþenslu fjármálageirans, vexti stóriðju- og orkufyrirtækja, uppbyggingu íslenskra fyrirtækja erlendis, mikilli einkaneyslu og fjárfestingum í íbúðarhúsnæði, hækkun eignaverðs og verðbólgu, gengissveiflum krónunnar, miklum launahækkunum, skorti á starfsfólki og aðstreymi erlends starfsfólks. Samfara þessu ójafnvægi náði mældur viðskiptahalli áður óþekktum stærðum og erlendar skuldir þjóðarbúsins hafa aukist verulega. Þetta kemur m.a. fram nýrri ársskýrslu SA sem kemur út 18. apríl næstkomandi.
Slæmar aðstæður í efnahagslífinu
Slæmar aðstæður í efnahagslífinu Í könnun um stöðu og framtíðarhorfur hjá 400 stærstu fyrirtækjum landsins telja stjórnendur hjá um 48% fyrirtækjanna núverandi aðstæður í efnahagslífinu vera slæmar eða mjög slæmar, um 36% telja þær hvorki góðar né slæmar, en einungis um 16% telja þær vera góðar. Þessi niðurstaða er mun lakari en fram hefur komið í fyrri reglubundnum könnunum um sama efni eða allt frá árinu 2002. Ljóst er að fjárfesting í atvinnulífinu dregst nú hratt saman en tekið skal fram að könnunin var gerð á tímabilinu 13. febrúar til 12. mars 2008, þegar vísitala gengisskráningar krónunnar var að meðaltali 131, en næstu daga á eftir lækkaði gengi krónunnar verulega og var vísitala gengisskráningar tæplega 155 stig í síðari hluta marsmánaðar. Þegar könnunin var gerð voru stýrivextir Seðlabankans 13,75% og spáðu forsvarsmenn stærstu fyrirtækja landsins að vextirnir yrðu 11% eftir 12 mánuði.
Ríkisbanki er tímaskekkja
Formaður Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF), Lárus Welding, sagði í ræðu á árlegum SFF-degi sem fram fór í Borgarleikhúsinu í morgun jákvætt að ríkisstjórnin stefni að því að tryggja að fjármálastarfsemi geti áfram vaxið hér á landi og sótt inn á ný svið í samkeppni við önnur markaðssvæði - eins og lýst er í stefnuyfirlýsingu hennar. „Í ljósi þessa skýtur skökku við að stjórnvöld skuli enn sjálf reka banka sem nýtur ýmissa forréttinda og keppir í skjóli þeirra um viðskiptamenn við fjármálafyrirtæki á frjálsum markaði," sagði Lárus og velti því upp hvort núverandi vanda peningastefnunnar og ójafnvægi efnahagkerfisins megi að hluta til rekja til þess að skipulagi Íbúðalánasjóðs var ekki breytt samhliða því að Seðlabanka var gert að taka upp verðbólgumarkmið.
Ingimundur Sigurpálsson hættir eftir fimm ára formennsku
Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður SA. Nýr formaður tekur því við á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer föstudaginn 18. apríl í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Ingimundur var fyrst kjörinn formaður SA á aðalfundi samtakanna árið 2003 og tók þá við að Finni Geirssyni sem gegnt hafði formennsku frá stofnun Samtaka atvinnulífsins í september 1999.

Skráning stendur yfir- sjáumst!

Formannskosning stendur yfir

Nýr formaður tekur við á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer 18. apríl næstkomandi í Hafnarhúsinu. Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá hefur gefið kost á sér til formanns SA en kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna.

Markaðurinn ráði för
Lagasetningu sem er ætlað að jafna hlut kynjanna í viðskiptalífinu fylgja vandamál þar sem hún kallar á tvöfalt stjórnkerfi fyrirtækja og veldur því að ákvarðanir varðandi rekstur þeirra eru ekki teknar á réttum stöðum. Þetta sagði Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital á námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna í morgun. Halla sagðist tala af eigin reynslu frá því hún vann við mannauðsstjórnun í Bandaríkjunum. Halla sagði farsælla að jafna hlut kynjanna á forsendum markaðarins og sagðist hafa fulla trú á því að það væri hægt. Það væri bæði sýnt og sannað að viðskiptalífið verði af miklum auði með því að nýta ekki þá eiginleika sem konur hafi til brunns að bera. Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður SA, sagði valdboð líkt og iðkað er í Noregi ekki réttu leiðina til að velja í stjórnir fyrirtækja. Fjármagn hluthafa og þekking á rekstri ráði mestu um val í stjórnir. Konur þurfi að nýta fjármagn sitt til að tryggja sér stjórnarsæti og stofna fleiri fyrirtæki.
Fjárauður kvenna eykst með ógnarhraða
Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital, hvatti konur til að fara fyrir fjármagni sínu á námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna á Hótel Nordica. Í máli hennar kom fram að fjárauður kvenna um allan heim aukist með miklum hraða - mun meiri hraða en margir geri sér grein fyrir.  Nær helmingur fjármagns í hinum vestræna heimi sé nú í eigu kvenna og það fjármagn þurfi að virkja.  Vísaði Halla til nýlegrar skýrslu Economist fyrir Barcleys bankann, en hún sýnir að konur eigi um 48% af sparnaði í Bretlandi og að árið 2020 verði fleiri konur en karlar orðnir milljónamæringar í Bretlandi.

Áhyggjur af gengi íslensku krónunnar
Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fór fram þann 3. apríl. Í ályktun fundarins um krónuna er áhyggjum lýst yfir miklum sveiflum á gengi hennar. „Þessar sveiflur eru greininni mjög erfiðar og hafa haft mikil áhrif á afkomu fyrirtækja. Gengisþróun, verðsveiflur og háir vextir skekkja samkeppnishæfi íslensks atvinnulífs svo mikið að ekki verður áfram við unað. Miklar sveiflur í gengi koma í veg fyrir virka áætlunargerð innan fyrirtækja," segir m.a. í ályktun aðalfundar SAF.
Undirbúningur gengur vel fyrir álver á Bakka við Húsavík
Alcoa mun síðar í þessum mánuði leggja fram hjá Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun fyrir mat á umhverfisáhrifum vegna álvers á Bakka við Húsavík með um 250.000 tonna framleiðslugetu á ári. Þetta var meðal þess sem kom fram á fjölmennum borgarafundi sem sveitarfélagið Norðurþing stóð fyrir á Húsavík, fimmtudaginn 3. apríl. Á fundinum kynntu fulltrúar Norðurþings, Landsnets, Landsvirkjunar, HRV og Alcoa undirbúning og stöðu mála varðandi fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík. Áætlað er að álver á Bakka skapi 600 - 700 störf á Norðurlandi, um 1000 störf á landinu öllu og umtalsverð útflutningsverðmæti fyrir þjóðarbúið. Ljóst er að bygging álvers á Bakka myndi hafa mjög jákvæð áhrif á Norðurlandi og efla hagvöxt.
Myndarlegt íslenskt atvinnulíf - myndir streyma inn

Það stefnir í myndarlega ljósmyndasýningu í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu föstudaginn 18. apríl næstkomandi. Í tilefni aðalfundar SA óskuðu samtökin eftir myndum frá félagsmönnum sínum til að sýna fjölbreytileikann og kraftinn sem býr í íslensku atvinnulífi. Alls kyns myndir af fólki og fyrirtækjum hafa streymt inn og vilji menn bæta í sarpinn má senda myndir á hordur@sa.is.

Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Outcome hugbúnaði ehf