4. tbl. 2004
Hægt er að lesa fréttabréfið í heild á vef SA. Ef póstforritið þitt les ekki html-póst getur þú breytt áskrift þinni hér.

Nýjungar í kjarasamningum
Nýir kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins við félög verkafólks fela í sér ýmsar nýjungar sem ætlað er að auka sveigjanleika fyrirtækjanna og fækka ágreiningsmálum. Mikilvægt er að atvinnurekendur kynni sér vel ákvæði samninganna og framkvæmi rétt frá fyrsta degi.
Úrtaksskoðanir hjá fyrirtækjum
Rafverktökum ber að reka innri öryggisstjórn-unarkerfi, en sæta jafnframt úrtaksskoðunum skoðunarstofa, sem fer fækkandi komi þeir ítrekað vel út. Slíkt fyrirkomulag mætti viðhafa víðar. Varla getur t.d. talist nauðsynlegt að viðhafa árlegt utanaðkomandi eftirlit með öllum starfsstöðvum fyrirtækja sem reknar eru skv. sömu handbókinni, sbr. bensínstöðvar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í væntanlegri skýrslu SA um eftirlit með atvinnustarfsemi.
Vímuefnapróf og öryggi á vinnustað
Það getur ekki verið markmiðið að sjónarmið varðandi persónufrelsi einstakra starfsmanna vegi alltaf þyngra en heilbrigði og öryggi annarra starfsmanna, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA. Tilgangur vímu-efnaprófa sé fyrst og fremst að standa vörð um öryggi starfsmanna en ekki áhugi fyrirtækja á persónulegum högum manna.
Aðalfundur SA 4. maí
Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn þriðjudaginn 4. maí á Grand Hótel Reykjavík. Auk ávarpa formanns SA og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra verður kynnt ný skýrsla samtakanna um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Þá mun framkvæmdastjóri hjá sænsku samtökum atvinnulífsins flytja erindi um leiðir til þess að efla traust almennings á atvinnulífinu.

Að efla traust almennings á atvinnulífinu
Göran Trogen, framkvæmdastjóri hjá sænsku samtökum atvinnulífsins verður gestur á aðalfundi SA, sem haldinn verður á Grand Hótel þriðjudaginn 4. maí nk. Þar mun Trogen flytja erindi um leiðir til þess að efla traust almennings á atvinnulífinu, en hann hefur gegnt lykilhlutverki í viðamiklu starfi sænsku samtaka atvinnulífsins í þessu skyni.
Kaupgjaldsskrá vegna verkafólks
Á kjaramálavef SA er að finna kaupgjaldsskrá SA vegna verkafólks sem gildir frá 1. mars 2004. Starfsfólk SA svarar fyrirspurnum frá félagsmönnum og er þeim innan handar ef skýra þarf einstök ákvæði samninganna.
Samið við SGS og Flóa
Kjarasamningar SA við Starfsgreinasambandið og Flóabandalagið, sem undirritaðir voru 7. mars sl., hafa verið samþykktir í atkvæðagreiðslum stéttarfélaganna, nema á Höfn og í Vestmanna-eyjum þar sem þeir voru felldir. Samningana og umfjöllun um þá er að finna á vef SA.

 

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnin hefur samþykkt yfirlýsingu vegna gerðar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, þar sem fjallað er um starfsmenntamál, lífeyrismál, atvinnuleysisbætur og tryggingagjald.
Mikil frumkvöðlastarfsemi á Íslandi en erfitt að stofna nýsköpunarfyrirtæki
Frumkvöðlakraftur á Íslandi er mikill, með hæsta móti í Evrópu, en hefur þó dvínað. Skortur á áhættufjármagni er talinn stærsti veikleiki í umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi. Þetta er meðal niðurstaðna úr alþjóðlegri rannsókn (GEM) sem Háskólinn í Reykjavík tekur þátt í, með stuðningi SA o.fl.
Leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja
Verslunarráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands hafa kynnt nýjar leiðbeiningar um starfshætti fyrirtækja sem hafa að markmiði að skýra hlutverk og störf stjórnarmanna og stjórnenda fyrirtækja á Íslandi. Með leiðbein-ingunum er þessum aðilum auðveldað að rækja skyldur sínar um leið og hagur allra hluthafa í hlutafélögum er efldur.
Fyrirtækin þurfa að stækka
Í ræðu sinni á aðalfundi SVÞ sagði Sigurður Á. Sigurðsson, formaður samtakanna, m.a. að ekkert bannaði að fyrirtæki yrðu stór og í raun væri það æskileg þróun fyrir atvinnulífið. Ef einhver dæmi væru um misbeitingu á markaðsráðandi stöðu fyrirtækja ætti að beita samkeppnislögum gegn þeim.
Erlent starfsfólk mikilvægt
Í ályktun iðnþings Samtaka iðnaðarins er m.a. fjallað um mikilvægan hlut erlends starfsfólks við stóriðjuframkvæmdir, þörf á framleiðniaukningu, skort á vel menntuðu fólki á sviði iðn-, verk-, tækni- og raungreina, og skort á fjármagni til nýsköpunar.
Málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti
Jón Rúnar Pálsson, lögmaður hjá SA, hefur öðlast réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti og óska samtökin honum til hamingju með áfangann. Þessi áfangi eflir enn vinnumarkaðssvið samtakanna, en þar starfa nú tveir hæstaréttarlögmenn og þrír héraðs-dómslögmenn.

 

3,6% atvinnuleysi í febrúar
Í febrúar voru skráðir 101.921 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.097 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 3,6% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Að mati Vinnumálastofnunar má gera ráð fyrir að atvinnu-ástandið batni lítilsháttar í mars.
Sameiginleg umsögn um siglingavernd
SA og aðildarfélög hafa skilað sameiginlegri umsögn um frumvarp til laga um siglingavernd. Samtökin telja gríðarlega mikilvægt að vel takist til verka við nánari útfærslu laganna sem ýmsum opinberum aðilum er falin í frumvarpinu, þannig að um leið og framkvæmdin uppfylli lágmarks-kröfur alþjóðasamninga þá sé hún ekki um of íþyngjandi hvað varðar kostnað eða umstang.
Skoðun á þingmáli?
SA berst mikill fjöldi þingmála til umsagnar og eru upplýsingar um umsagnarferlið birtar á vef samtakanna, þ.e. hvenær mál barst sam-tökunum, hver sé ábyrgðarmaður málsins og hvenær það sé afgreitt. Félagsmenn SA sem vilja hafa áhrif á gerð umsagnar eru hvattir til að hafa samband við ábyrgðarmann.
Tvöföldun gjaldeyristekna fyrir lok árs 2012
Samtök ferðaþjónustunnar vilja að stefnt verði að tvöföldun gjaldeyristekna af ferðaþjónustu fyrir lok árs 2012 og að beinar gjaldeyristekjur verði þá komnar í a.m.k. 80 milljarða króna. Til þess að þetta megi ganga eftir segja þau nauðsynlegt að tryggja betri arðsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Alaska, Seattle, Litháen, Rússland
Árið 2004 skipuleggur Útflutningsráð m.a. ferðir viðskiptasendinefnda til Alaska og Seattle í maí, sem Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra fer fyrir, til Litháen í byrjun júní og til Rússlands í september.
Aðgerðaáætlun um aukna samkeppnishæfni
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, hafa kynnt sérstaka aðgerðaáætlun um leiðir til að efla samkeppnishæfni álfunnar. Í skýrslu samtakanna er m.a. lögð áhersla á mikilvægi þess að draga úr reglubyrði, auka sveigjanleika á vinnumarkaði og auka stuðning við rannsóknir og þróun.
Knúið af Outcome fréttabréfastjóra frá Vef - samskiptalausnum